Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 5
Hvern hefur ekki dreymt um að
eiga stól úr Leiðarljósi, nú eða
míkrafón úr American Idol, svo
ekki sé minnst á rúmið hennar
Parisar Hilton? Þessir eitt sinn
fjarlægu draumar eru nú innan
seilingar á aðgengilegasta stað
veraldar, internetinu.
Allt sem þarf að gera er að fara á
heimasíðuna www.starstyle.com og
yfirbjóða aðra sjónvarpsaðdáend-
ur. Á síðunni eru reglulega haldin
uppboð á munum úr þáttunum
American Idol, Leiðarljósi, The
Real World, As the World turns,
The young and the restless, og
What I like about you. Þrír fyrst-
töldu þættirnar hafa allir verið
sýndir á Íslandi við mismiklar vin-
sældir og ættu því að vekja áhuga
sjónvarpsþyrstra sófaunnenda.
Ef leikmunirnir úr þessum sex
þáttum ná ekki að innrétta húsið
þitt, nú eða þú vilt einfaldlega
breyta til, skaltu halda þér fast
núna. Framundan er uppboð á dót-
aríi úr hinum geysi vinsæla þætti
„The Simple Life“ þar sem Paris
Hilton hóteldrottning og Alicia
Bean mynduðu gáfumannadúett
sem fór á kostum í sveitinni. Enn er
deilt um hveru góðir þessir kostir
voru en látum það liggja milli hluta.
Meðal þess sem boðið verður upp
eru húsgögnin og munirnir sem
sjást á meðfylgjandi myndum.
Allt sem þarf að gera til af kom-
ast í ból Parisar Hilton (eins og svo
margir hafa reyndar gert) er að
fara inn á www.startstyle.com,
bjóða í gripinn og bíða svo spennt-
ur niðri á höfn eftir gámnum. Þar
geturðu hengt upp hengirúmið úr
The Real world sem er falt fyrir
litlar 7.000 krónur og er örugglega
enga stund til landsins með
FedEx.
Hægt verður að nálgast myndir af öllum
húsgögnunum á www.starstyle.com innan
tíðar.
Viltu sofa í rúmi Parisar Hilton?
Hérna hefur án efa ýmislegt farið fram. NORDICPHOTO/GETTY IMAGES
Verslunin Brynja hefur hafið
innflutning á vönduðum en
ódýrum rafmagnshandverkfær-
um frá Frakklandi.
Í Technum-línunni frá franska
fyrirtækinu Fargroup er að finna-
meðal annars hleðsluborvélar,
stingsagir, hjólsagir, fræsara, slípi-
rokka og hefðbundnar borvélar.
Verkfærin hafa verið vinsæl í
Frakklandi og hefur sala þeirra
hér á landi einnig farið vel af
stað.
Technum-verkfærin eru hugs-
uð fyrir fagmenn jafnt sem frí-
stundasmiði og eru á góðu verði.
Verkfæri á
góðu verði
Brynja hefur hafið innflutning á ódýrum
rafmagnshandverkfærum frá Frakklandi.
Hvernig er best
að bora?
ÞAÐ ERU NOKKUR ATRIÐI SEM VERT
ER AÐ HAFA Í HUGA Í TENGSLUM
VIÐ BORUN, SEM ERU UPPTALIN
Á HEIMASÍÐU HÚSASMIÐJUNNAR
WWW.HUSASMIDJAN.IS:
1. Borið þannig
að sú hlið
sem er meira
áberandi sé sama hlið
og byrjað var á að bora.
2. Til að minnka hættu
á því að tré eða plast
springi þegar borinn
fer í gegn er gott að þvinga trébút á
bakvið þar sem hann kemur út.
3. Æskilegt er að draga borvél út
áður en borinn hættir að snúast.
4. Það er sniðugt að setja límband
á flöt þar sem á að bora sé um hart
og slétt efni að ræða, því þá skríður
borinn síður til í upphafi.
góð ráð }
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar M-CLASS nuddstóllinn
áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp á meðfylgjandi fjarstýringu velur
þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni. Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú
vilt og þar sem þú vilt. M-CLASS nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga.
Við bjóðum þér að koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast.
Heilsunudd þegar þér hentar
Kynnum 2007 módelið á sérstöku tilboðsverði!
*Gallup Október 2005
Mest
lesna tímaritið *