Fréttablaðið - 21.08.2006, Page 34

Fréttablaðið - 21.08.2006, Page 34
 21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR14 Í Norðurmýrinni leynast persónur úr Íslendingasögun- um á hverju götuhorni. Reisuleg skeljsasandsklædd hús umvafin grænum reynitjrám eru einkennandi fyrir hverfið. Norðurmýrin er gamalgróið hverfi í hjarta Reykjavíkur og afmarkast af Snorrabraut í vestri, Miklubraut í suðri og Rauðarárstíg í austri. Norðurmörk hverfisins eru örlítið óljósari og eru ýmist talin við Njálsgötu, Grettisgötu eða Laugaveg. Eins og gefur að skilja dregur hverfið nafn sitt af mýrlendi, en meðan Reykjavík var enn bara lítið þorp við sjávarsíðuna var stærðarinnar mýri milli Skólavörðuholts- ins og Rauðarárholts. Norðurmýrin hóf að byggjast upp á ofanverðum fjórða áratugnum. Samkvæmt fyrstu tildrögum að bæjarskipulagi Reykjavíkur, frá árinu 1927, var gert ráð fyrir að járnbraut- arstöð risi í Norðurmýri. Ekkert varð af þeim áformum og svæðinu var ráðstafað undir hefðbundna íbúðarbyggð. Ef til vill er það tákn um aukinn lýðveldisanda þjóðar- innar, á þeim árum sem hverfið var að byggjast, að göturn- ar í hverfinu draga nöfn sín af persónum Íslendingasagn- anna og Landnámu. Auðarstræti, Flókagata, Gunnarsbraut, Kjartansgata, Skarphéðinsgata og Vífilsgata minna á glæst- ar hetjur fortíðarinnar og skipulagið ber vott um dálitla skynsemi þar sem göturnar eru í stafrófsröð. Þótt hetjur Íslendingasagnanna svífi yfir vötnum þá hefur Norðurmýrin einnig sinn sess í nútímabókmenntum. Spennusagan „Mýrin“ eftir Arnald Indriðason gerist í Norð- urmýrinni og þar er það einmitt mýrin sjálf, sem hverfið er byggt í, sem er í aðalhlutverki. Eftir því sem bókin kemur út á fleiri tungumálum fjölgar þeim ferðamönnum sem kjósa að rölta um Norðurmýrina og skoða hverfið meðan á Íslandsheimsókn þeirra stendur. -þo Skemmtileg garðskreyting. Norðurmýrin er ekki hátt yfir sjávarmáli og það getur reynst örðugt að ná góðu sjónvarpsmerki.Þessi gamla eldavél stendur í garði við Skeggjagötu. Köttur úti í mýri - Norðurmýri. Í Norðurmýrinni er blómleg byggð. Þessi skemmtilegi kofi kúrir í garði og er kannski ekki dæmigerður fyrir þann arkítektúr sem einkennir svæðið. Norðurmýrin er gróið hverfi og víða í görðum er að finna há og falleg tré. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI Göturnar í hverfinu draga nöfn sín af persónum Íslendingasagnanna og Landnámu. Hverfið í mýrinni Rauð og girnileg rifsber.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.