Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 59
RAÐAUGLÝSINGAR
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 39
A. Þ. Þrif
Framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í þrifum á
nýbyggingum óskar eftir starfsmönnum í fullt starf
vegna mikilla umsvifa. Góð laun í boði fyrir réttan
aðila. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
Upplýsingar gefur Steini í síma 821-9908.
Kópavogsbær
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar
Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögum:
Dalsmári 7. Kópavogsvöllur. Deiliskipulag.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 18. maí 2006 til-
lögu að breyttu deiliskipulagi Dalsmára 7. Í tillögunni
felst að gert er ráð fyrir 12-1500 manna áhorfenda-
stúku vesta Kópavogsvallar. Hámarkshæð (miðað við
kjallarahæð) er áætluð 15 metrar, breidd allt að 20
metrar og lengd allt að 90 metrar. Í kjallara er gert ráð
fyrir búningsklefum og á 2. hæð veitingasal. Tillagan
var auglýst í samræmi við skipulags- og byggingarlög
frá 28. mars til 2. maí 2006 með athugasemdafresti
til 16. maí 2006. Engar athugasemdir og ábendingar
bárust. Tillagan var lögð fram að nýju og samþykkt í
skipulagsnefnd 16. maí 2006 og í bæjarráði 18. maí
2006. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og
gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um
samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Aug-
lýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild
Stjórnartíðinda 21. ágúst 2006.
Vallakór 2-6. Verslunar- og þjónustumiðstöð.
Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 27. júní 2006
tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðirnar Vallakór
2-6. Í breytingunni felst að lóðunum nr. 2, 4 og 6 er
breytt í tvær lóðir, Vallakór 2 og 4. Á lóð nr. 2 (suður
hluti deiliskipulagssvæðisins) er deiliskipulagi frestað
en á lóð nr. 4 er gert ráð fyrir einu verslunar- og þjón-
ustuhúsi á 1-5 hæðum. Flatarmál fyrirhugaðs verslun-
ar- og þjónustuhúss er áætlað allt að 9.000 m2 og
miðað er við 1 stæði á hverja 35 m2 í húsnæði. Á lóð-
inni er gert ráð fyrir bílgeymslu að mestu neðanjarð-
ar. Lóð undir spennistöð (við Þingmannaleið) er færð
til. Enn fremur er svæði fyrir hverfisgáma fært til inn-
an lóðar. Tillagan var auglýst í samræmi skipulags- og
byggingarlög frá 10. apríl til 15. maí 2006 með at-
hugasemdafresti til 29. maí 2006. Athugasemd barst.
Tillagan var lögð fram að nýju í skipulagsnefnd 20.
júní 2006 ásamt framkominni athugasemd og um-
sögn bæjarskipulags. Er umsögnin dags. 13. júní
2006. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu
óbreytta og vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs
og bæjarstjórnar. Tillagan var lög fram að nýju í bæj-
arstjórn og samþykkt 27. júní 2006 eins og að ofan
greinir. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing
um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög.
Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-
deild Stjórnartíðinda 21. ágúst 2006.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar
deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslur þeirra er hægt
að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6,
200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til
fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar
Kópavogs á auglýstum tillögum að deiliskipulagi.
Innritun í fimleika
fyrir veturinn 2006/7
FIMLEIKADEILD GRÓTTU verður með innritun fyrir
veturinn 2006/7 í íþróttahúsi Gróttu dagana
22., 23. og 24. ágúst milli klukkan 14:00-18:00,
einnig er hægt að innrita á netinu
www.grottasport.is og senda innritunarblaðið
á netfangið grotta@grottasport.is. Við viljum minna
eldri nemendur á að staðfesta innritun sína sem
fyrst. Grótta bíður upp á stúlkna- og drengjafimleika,
byrjenda- , framhaldshópa í tromp og
áhaldafimleikum.
Fimleikadeild Gróttu
Vinna með
námi hjá Hive
Hive vantar gott fólk í úthringiver sitt.
Við erum að hringja milli kl.18:00 og 22:00 og starfsmenn
vinna að meðaltali 2-4 daga í viku. Þetta er tilvalin vinna
með námi og frábærir tekjumöguleikar í boði.
Áhugasamir sendi póst með helstu
upplýsingum um sig á soluver@hive.is.
GRINDAVÍKURBÆR
ÚTBOÐ
Grindavíkurbær óskar hér með eftir tilboðum
í verkið: „Norðurhóp – Hópsbraut.
Gatnagerð og lagnir“.
Verkið felst í jarðvegsskiptum og lagningu frá-
veitulagna og niðurfalla í götum og bílastæðum,
neysluvatnslagna, hitaveitulagna, símalagna raf-
strengja, ídráttarröra, uppsetningu ljósastaura og
yfirborðfrágang.
Helstu magntölur og stærðir eru eftirfarandi:
Uppúrtekt 6300 m3
Fyllingar 33700 m3
Malbikun 16160 m2
Hitaveitulagnir 1525 m
Raflagnir 6180 m
Símalagnir 10800 m
Fráveitulagnir 1339 m
Vatnslagnir 3210 m
1. áfanga skal vera lokið 15. nóember 2006
2. áfanga skal vera lokið 15. febrúar 2007
3. áfanga skal vera lokið 1. júlí 2007
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Suður-
nesja að Víkurbraut 13 í Reykjanesbæ og á Bæjar-
skrifstofum Grindavíkur að Víkurbraut 62 í Grinda-
vík frá og með mánudeginum 21. ágúst n.k.
Tilboð skulu hafa borist til skrifstofu Grindavíkur-
bæjar, Víkurbraut 62, Grindavík, eigi síðar en
þriðjudaginn 5.september 2006 kl. 11:00 og
verða þau þá opnuð þar í viðurvist þeirra bjóð-
enda sem viðstaddir verða.
Bæjarverkfræðingur Grindavíkurbæjar