Fréttablaðið - 21.08.2006, Page 67
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 27
Íslenska óperan frumsýnir „Brott-
námið úr kvennabúrinu“ eftir Moz-
art í lok september og í tengslum
við sýninguna verður efnt til nám-
skeiðs um verkið og störf tón-
skáldsins á vegum Vinafélags
Íslensku óperunnar og Endur-
menntunar Háskóla Íslands. Þetta
er í fyrsta sinn sem þessi ópera er
sett upp hérlendis en í ár eru 250 ár
liðin frá fæðingu tónskáldsins.
Í tilkynningu frá óperunni er
þess getið að „Brottnámið úr
kvennabúrinu“ hafi verið fyrsta
óperan sem Mozart samdi fyrir
óperuhús Vínarborgar eftir að hann
fluttist þangað í óþökk fjölskyldu
sinnar vorið 1781 en með henni
sýndi hinn 25 ára gamli Mozart að
hann hafði þegar náð fullkomnum
tökum á óperuforminu og væri fær
í flestan sjó.
Á námskeiðinu verður óperan og
efni hennar kynnt, helstu einkenni
tónlistarinnar rædd og skoðuð með
tóndæmum. Auk þess verður fjall-
að um „tyrknesk“ áhrif í tónlist
Mozarts í óperunni og víðar, en
óperan gerist í Tyrklandi á 17. öld.
Námskeiðið hefst í byrjun okt-
óber og endar með ferð á sýningu
Íslensku óperunnar þar sem þátt-
takendum gefst einnig kostur á að
spjalla við aðstandendur sýningar-
innar. . Kennari á námskeiðinu er
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistar-
fræðingur en nánari upplýsingar
má finna á www.opera.is. en skrán-
ing er hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands.
ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON Kennir nám-
skeið um „Brottnámið úr kvennabúrinu“.
Námskeið um óperu Mozarts
24. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
25. ágúst - kl.20:00 - Uppselt
31. ágúst - kl.20:00 - laust sæti
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur, miði og frítt
í Göngin til baka í boði
Landnámsseturs
Frá kr. 4000 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600
Sýnt í Landnámssetri
í Borgarnesi
Föstudag 25. ágúst kl. 20 Uppselt
Laugardag 26. ágúst kl. 20 Laus sæti
Laugardag 2. september kl. 20 Uppselt
Sunnudag 3. september kl. 15
Sunnudag 3. september kl. 20
Fimmtudag 7. september kl. 20
Föstudag 8. september kl. 20
Laugardag 9. september kl. 20
Sunnudagur 10. september kl. 16
Föstudagur 15. septemberkl. 20
Laugardagur 16. september kl. 20
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
18 19 20 21 22 23 24
Mánudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Kammersveitin Ísafold
heldur tónleika í Listasafni Íslands.
Stjórnandi er Daníel Bjarnason.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Íslenska Ferðaleikhúsið
sýnir Best of Light Nights í Iðnó.
Höfundur og leikstjóri er Kristín G.
Magnús. Sýnt er á ensku.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Sýningar Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsi og á
Kjarvalsstöðum eru opnar frá kl.
10-17 alla daga. Ókeypis á mánu-
dögum
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Götuljós Reykjavíkurborgar
verða slökkt í tilefni af opnun
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinn-
ar í Reykjavík sem hefst þann 28.
september. Fram kemur í frétta-
tilkynningu frá hátíðinni að borg-
in verði myrkvuð frá 22 til 22.30
og að þetta sé í fyrsta sinn sem
slík myrkvun sé skipulögð nokk-
urs staðar í heiminum. Sérlegur
hugmyndasmiður þessa er rithöf-
undurinn Andri Snær Magnason
en sýningartjald himinsins verð-
ur án ef það stærsta sem kvik-
myndahátíðin býður upp á í haust.
Ennfremur hvetja aðstandend-
ur hátíðarinnar til þess að borgar-
búar og fyrirtæki slökkvi ljós sín
til þess að leyfa fegurð himinsins
að njóta sín. -khh
ANDRI SNÆR MAGNASON Rithöfundur og
talsmaður myrkursins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Myrkur í borginni