Fréttablaðið - 21.08.2006, Qupperneq 72
32 21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Hjálmar Þórarinsson, U21 landsliðsmaður
Íslands, hefur fengið fá tækifæri
með skoska úrvalsdeildarliðinu
Hearts á þessu tímabili. Hjálmar
er tvítugur og var hann í síðustu
viku orðaður við 1. deildarliðið
Hamilton í Skotlandi og
var talað um það að
félagið vildi fá hann
að láni út þetta
tímabil.
„Ég veit
eiginlega
lítið um
þetta mál, þetta kom
vel til greina á tímabili
og ég held að þetta sé
enn inn í myndinni.
Það á bara eftir að
koma í ljós hvað gerist í þeim málum.
Félagaskiptaglugginn lokar núna í lok
ágúst og því ætti þetta að fara að
koma í ljós,“ sagði Hjálmar Þórarins-
son við Fréttablaðið í gær en hann
er samningsbundinn Hearts út þetta
tímabil og einnig það næsta.
„Mér líður mjög vel
hérna úti og er ekkert
mikið að stressa
mig þótt maður
vilji náttúrulega fá
sín mál á hreint,“
sagði Hjálmar sem
viðurkennir að
honum finnist
hann ekki hafa fengið
nægilega mörg tækifæri. „Tækifærin
ættu samt að koma ef maður heldur
áfram að leggja sig fram og þá verður
maður að ná að grípa tækifærið þegar
það kemur.“
Hjálmar er sóknarmaður og hefur
hann farið út til reynslu hjá liðum í
Skandinavíu að undanförnu, norska
1. deildarliðinu Álasundi og sænska
úrvalsdeildarfélaginu AIK Solna. „Ég
hef mikinn áhuga á því að fara í lið á
Norðurlöndunum ef rétta tækifærið
gefst,“ sagði Hjálmar sem er uppalinn
hjá Þrótti og keypti Hearts hann frá
félaginu í marsmánuði í fyrra. Hann
viðurkennir að hafa íhugað að snúa
aftur heim þar sem honum hefur
gengið illa að vinna sér inn sæti í liði
Hearts. „Ég hugleiddi það á tímabili en
eins og staðan er núna held ég að ég
verði hérna áfram í einhvern tíma.“
HJÁLMAR ÞÓRARINSSON: HEFUR FÁ TÆKIFÆRI FENGIÐ HJÁ SKOSKA LIÐINU HEARTS
Hugleiddi það að snúa aftur heim
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Wayne
Rooney hefur hótað að hætta allri
sjálfboðavinnu fyrir enska knatt-
spyrnusambandið í mótmælaskyni
vegna þriggja leikja bannsins sem
hann þarf að afplána. Paul Stret-
ford, umboðsmaður hans, sendi
bréf til enska sambandsins þar
sem hann lýsti yfir undrun sinni á
því að leikbannið hafi ekki verið
afturkallað af sambandinu.
Þá hótar Rooney að draga sig út
úr öllum auglýsingum og góð-
gerðarstarfsemi fyrir sambandið.
Leikbannið tekur gildi á miðviku-
daginn og verður hann því ekki
með í leikjum gegn Charlton, Wat-
ford og Tottenham. „Rooney mun
halda áfram að spila fyrir lands-
liðið ef hann verður valinn í það
verkefni. Hann er hins vegar mót-
fallinn því að nafn hans eða andlit
sé notað í kynningarskyni fyrir
FA,“ sagði meðal annars í bréfinu.
Hann fer í bann vegna mjög
umdeildrar brottvísunar sem hann
fékk í æfingaleik gegn Porto á
hinu svokallaða Amsterdam-móti.
Hann lenti í skallaeinvígi og
slæmdi hendinni í leikmann Porto
með þeim afleiðingum að hann féll
í jörðina.
Dómari leiksins sýndi Rooney
samstundis rauða spjaldið en í
endursýningum sást það greini-
lega að þetta var ekki viljaverk og
hefði í allra mesta lagi verðskuld-
að gult spjald. Dómarinn sendi
þó skýrslu til FA, enska knatt-
spyrnusambandsins, og þó að
Manchester United hafi áfrýjað
dómnum var hann látinn standa.
Steve McClaren, landsliðs-
þjálfari Englands, er meðal
þeirra sem hafa lýst yfir undrun
sinni á að leikbann Rooneys hafi
ekki verið afturkallað. „Þetta mál
á ekki eftir að bæta samskipti
milli mín og félaganna,“ sagði
McClaren.
- egm
Umboðsmaður Wayne Rooney sendi bréf til enska knattspyrnusambandsins:
Wayne Rooney alls ekki sáttur
WAYNE ROONEY Var rekinn af velli í leik gegn Porto. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Varnarmennirnir John
Arne Riise og Jamie Carragher
verða báðir fjarverandi í tvær
vikur vegna meiðslanna sem þeir
urðu fyrir í leik Liverpool og
Sheffield United í fyrradag. Báðir
fóru þeir af velli í fyrri hálfleik en
leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli.
Norðmaðurinn Riise meiddist
á vinstri ökkla og virtist mjög
þjáður en Carragher haltraði af
velli eftir að hafa tognað á lið-
böndum, einnig á ökkla. Báðir
missa þeir því af viðureign Liver-
pool gegn Maccabi Haifa í Kænu-
garði á morgun. - esá
Riise og Carragher:
Verða frá í
tvær vikur
RIISE ÞJÁÐUR Fór meiddur af velli í fyrra-
dag. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Knattspyrnuþjálfarinn
Sir Bobby Robson þarf að gangast
fljótlega undir heilaskurðaðgerð.
Hann veiktist illa þann 5. ágúst
síðastliðinn er hann fylgdist með
leik Ipswich á heimavelli liðsins,
en hann er forseti félagsins.
Hann var eitt sinn þjálfari liðsins
sem og landsliðsþjálfari Eng-
lands.
Robson segir að hann sé með
heilaæxli sem þurfi að fjarlægja.
„Aðgerðin verður gerð á miðviku-
daginn. Læknar segja mér að ég
sé annars heill heilsu og ætti því
að geta náð mér að fullu.“ - esá
Sir Bobby Robson:
Fer í heila-
skurðaðgerð
SIR BOBBY ROBSON Er orðinn 73 ára gam-
all. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Teitur Þórðarson þjálfari
KR gagnrýnir í sínum nýjasta
pistli sem birtist á stuðnings-
mannasíðu KR-inga, krreykja-
vik.is, Garðar Jóhannsson sem
fyrir skömmu var seldur frá KR
til Vals. Garðar sló í gegn hjá Vals-
mönnum og skoraði fjögur mörk í
sínum fyrstu tveimur leikjum hjá
félaginu.
Teitur segir ástæðuna fyrir
sölu Garðars vera sú að Valur hafi
gert gott tilboð í leikmanninn sem
hefði hvort eð er yfirgefið félagið
að tímabilinu loknu. „Garðar er
góður leikmaður, en ein af ástæð-
unum fyrir því að hann náði aldrei
að festa sig í sessi í KR liðinu er án
efa blanda af þó nokkrum meiðsl-
um og einnig það að hann kannski
var ekki tilbúinn að leggja það á
sig sem þurfti og var krafist,“
segir í pistli Teits. - esá
Teitur Þórðarson:
Gagnrýnir
Garðar í pistli
FÓTBOLTI Valsmaðurinn Ari Freyr
Skúlason var í byrjunarliði BK
Häcken er liðið mætti Malmö FF í
sænsku úrvalsdeildinni í gær. Ari
gekk til liðs við félagið fyrir aðeins
fáeinum vikum síðan og má því
segja að hann hafi farið beint í
byrjunarlið félagsins.
Ari stóð sig vel í gær en var
skipt af velli á 59. mínútu. Häcken
vann leikinn, 3-1, og kom Emil
Hallfreðsson inn á sem varamað-
ur fyrir Malmö þegar um átján
mínútur voru til leiksloka. - esá
Fyrsti leikur Ara Freys:
Ari fór beint í
byrjunarliðið
Sjálfsmark eða ekki?
Heiðar Helguson skoraði í gær eina
mark Fulham, sem mátti þola 5-1 tap
gegn Manchester United. Erlendir fjöl-
miðlar eru þó ekki sammála um hvort
markið sé í eigu Heiðars en boltinn
hafði viðkomu hjá Rio Ferdinand og vilja
því flestir skrá markið sem sjálfsmark á
hann.
> Töpuðu öllum leikjunum
Íslenska drengjalandsliðið í körfubolta,
skipað leikmönnum 16 ára og yngri, reið
ekki feitum hesti frá keppni í A-deild
Evrópumeistaramótsins sem hefur farið
fram á Spáni undanfarna daga. Íslenska
liðið tapaði öllum sínum leikjum, síðast
gegn Þjóðverjum í gær, og lenti því í
16. og neðsta sæti. Liðið féll sömuleiðis
niður í B-deild keppninnar. Lokatölur
leiksins í gær voru 63-47 en stigahæstur
í íslenska liðinu
var Sigmar
Logi
Björns-
son
með
21 stig.
Alfreð
Elías-
son
skoraði
20 stig.
FÓTBOLTI Manchester United hóf
tímabilið með látum í fyrri leik
dagsins í gær og skoraði fjögur
mörk gegn lánlausum leikmönnum
Fulham á fyrstu átján mínútum
leiksins. Heiðar Helguson klóraði í
bakkann fyrir Fulham skömmu
síðar en United bætti við fimmta
markinu í síðari hálfleik og þar við
sat. Chelsea hóf einnig leik í gær og
byrjaði með sterkum 3-0 sigri á
Manchester City.
Wayne Rooney skoraði tvívegis
fyrir United og Cristiano Ronaldo
gerði eitt mark í leiknum. Fögnuðu
þeir hvor öðrum mjög en þeir voru
í sviðsljósinu eftir HM í sumar
þegar þeir áttust við í leik og Rooney
fékk að líta rauða spjaldið. Alex
Ferguson, stjóri United, lofaði báða
leikmenn eftir leik. „Þeir náðu vel
saman í leiknum. Það er augljóst að
þeir eru góðir vinir,“ sagði Fergu-
son. „Fólk er alltaf að leita að söku-
dólgi en jafnvel stuðningsmenn
Fulham hættu að baula á Ronaldo
undir lok leiksins. Ég held að þeir
hafi séð að drengurinn er frábær
knattspyrnumaður.“
Chris Coleman er þegar orðinn
valtur í starfi eftir fyrsta leik tíma-
bilsins en þakkaði fyrir að þurfa
ekki að mæta Manchester United í
hverri viku. „Þeir völtuðu yfir
okkur. Við gátum ekki náð boltan-
um og þegar við fengum hann
létum við hann frá okkur allt of
auðveldlega,“ sagði Coleman eftir
leik. „Við eigum leik gegn Bolton á
miðvikudag og verðum að spýta í
lófana fyrir þann leik. Ég er viss
um að við getum átt farsælt
tímabil.“
Chelsea hóf titilvörn sína í gær
með sigri á Manchester United,
3-0, og komu mörkin frá þeim John
Terry, Frank Lampard og Didier
Drogba. Jose Mourinho stillti upp í
4-4-2 leikkerfi með þá Drogba og
Andryi Shevchenko í framlínunni.
Fyrir leikinn hafði Mourinho lýst
yfir áhyggjum sínum um hversu
margir af hans mönnum hafi verið
fráverandi vegna landsleikja í
síðustu viku en það virtist ekki
koma að sök í gær, en hann stillti tíu
landsliðsmönnum í byrjunarlið sitt.
„Við spiluðum mjög vel í dag,“
sagði Mourinho. „Frammistaða liðs-
ins fór fram úr mínum björtustu
vonum.“
Þetta var ekki dagur Manchester
City í gær en til að bæta gráu ofan á
svart þá fékk Bernardo Corradi að
líta rauða spjaldið.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
BESTU VINIR Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo fagna einu marka Manchester United í gær ásamt félögum sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY
United og Chelsea byrja með stæl
Manchester United og Englandsmeistarar Chelsea hófu í gær leik í ensku úrvalsdeildinni er liðin unnu auð-
velda sigra á Fulham og Manchester City. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham og átti ágætan dag.