Fréttablaðið - 21.08.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 21.08.2006, Síða 74
 21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR34 Kópavogsvöllur, áhorf.: 1041 Breiðablik KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 14–15 (5–6) Varin skot Hjörvar 4 – Kristján 5 Horn 6–5 Aukaspyrnur fengnar 16–10 Rangstöður 3–0 KR 4–4–2 Kristján 8 Sigþór 7 Gunnlaugur 7 Pauletic 7 Vigfús 6 Cizmek 6 (82. Skúli Jón -) Bjarnólfur 7 Kristinn 4 Sigmundur 5 Grétar 4 Björgólfur 8* (88. Tryggvi -) *Maður leiksins BREIÐABL. 4–4–2 Hjörvar 7 Árni K. 6 Guðmann 6 Gasic 6 Haaland 5 (73. Arnór Sveinn -) Olgeir 4 (64. Steinþór 5) Podzemsky 7 Arnar 7 Kristján Óli 4 Sivanovic 5 Ellert 3 (Viktor Unnar -) 0-1 Björgólfur Takefusa (41.) 0-1 Erlendur Eiríksson (6) Fylkisvöllur, áhorf.: 755 Fylkir ÍA TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–12 (6–7) Varin skot Fjalar/Bjarni 4 – Bjarki 4 Horn 3–5 Aukaspyrnur fengnar 6–0 Rangstöður 12–12 ÍA 4–3–3 Bjarki Freyr 7 Kári Steinn 5 Árni Thor 7 Heimir 7 Guðjón Heiðar 7 Pálmi 6 Bjarni 8 Bjarki Gu. 8 (77. Jón Vilhelm -) Þórður 6 (46. Ellert Jón 6) Hafþór Ægir 7 (58. Dean Martin 5) Arnar 6 *Maður leiksins FYLKIR 4–3–3 Fjalar 5 (46. Bjarni Þ. 6) Arnar Þór 7 Ragnar 6 Guðni Rúnar 6 Þórir 5 Páll 4 (70. Jón B. 6) Ólafur 6 Eyjólfur 7 Albert 6 Haukur Ingi 8* Christiansen 3 (33. Sævar Þór 8) 0-1 Guðjón Heiðar Sveinsson (7.) 0-2 Bjarni Guðjónsson (32.) 1-2 Sævar Þór Gíslason (51. 1-3 Heimir Einarsson (79.) 2-3 Haukur Ingi Guðnason (81.) 3-3 Sævar Þór Gíslason (82.) 3-3 Ólafur Ragnarsson (7) Keflavíkurvöllur, áhorf.: 2070 Keflavík FH TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 16–8 (9–4) Varin skot Ómar 3 – Daði 7 Horn 6–6 Aukaspyrnur fengnar 14–11 Rangstöður 5–2 FH 4–3–3 Daði 8 Ásgeir Gu. 6 Nielsen 7 Ármann 7 Heimir Snær 6 (77. Madzen -) Siim 4 Sigurvin 6 Matthías 5 (68. Atli 7) Tryggvi 4 Ólafur Páll 3 Lindbaek 4 (82. Dyring -) *Maður leiksins KEFLAVÍK 4–3–3 Ómar 6 Guðjón Árni 7 Gustafsson 7 Guðm. Mete 7 Milicevic 6 Jónas Guðni 7 Baldur 8* Hólmar Örn 8 Símun 7 Guðm. St. 7 Magnús 7 (73. Þórarinn -) 1-0 Baldur Sigurðsson (67.) 1-1 Atli Guðnason (68.) 2-1 Baldur Sigurðsson (90.) 2-1 Einar Örn Daníelsson (7) FÓTBOLTI Það var boðið upp á prýði- lega skemmtun á Fylkisvellinum í gær þegar heimamenn gerðu 3-3 jafntefli gegn Skagamönnum. Gestirnir voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik en seint í leiknum skoraði Haukur Ingi Guðnason tvívegis með mínútu millibili og Fylkir náði því í stig. Í fyrri hálfleiknum var ÍA með mikla yfirburði á vellinum og hafði algjörlega undirtökin. Fjalar Þorgeirsson varði vel skot frá Arnari Gunnlaugssyni snemma leiks en Arnar var kominn í ákjós- anlegt færi. Örstuttu síðar kom fyrsta markið en það var bakvörð- urinn Guðjón Heiðar Sveinsson sem komst upp vinstri vænginn eftir frábæra sendingu Arnars og skaut föstu skoti í fjærhornið. Skagamenn voru algjörlega með leikinn í hendi sér í fyrri hálf- leiknum og Hafþór Ægir Vil- hjálmsson átti gott skot sem fór naumlega framhjá. Það var síðan eftir rúman hálftíma sem þeir náðu að bæta við marki og var það Bjarni Guðjónsson sem skoraði stórglæsilega beint úr aukaspyrnu frá vinstri, spyrnur Bjarna voru hættulegar í leiknum. Fyrsta skot Fylkis kom ekki fyrr en tíu mínút- ur voru eftir af fyrri hálfleiknum og Skagamenn með tveggja marka forskot í hálfleik. Bjarni Þórður Halldórsson kom inn í mark Fylkis í seinni hálfleik þar sem Fjalar Þorgeirsson lenti í harkalegu samstuði í þeim fyrri. Fylkismenn komu mun ákveðnari til síðari hálfleiksins og á 51. mín- útu renndi Albert Ingason boltan- um Arnar Þór Úlfarsson sem átti góða fyrirgjöf, Boltinn rataði beint á Sævar Þór Gíslason en hann var einn og óvaldaður og skoraði. Sævar kom inn sem varamaður í fyrri hálfleiknum og átti mjög góðan leik. Hann átti hættulegt skot rétt yfir þegar tuttugu mínút- ur voru eftir og þá átti Haukur Ingi flottan sprett skömmu síðar en Bjarki varði vel. Það var svo á 79. mínútu sem varnarmaðurinn Heimir Einars- son kom ÍA í 3-1 þegar hann skor- aði með hnakkanum eftir horn- spyrnu og þá héldu margir að sigurinn væri tryggður. Fylkir gafst þó ekki upp, Haukur Ingi skoraði tveimur mínútum síðar en þá átti Arnar Þór hörkuskot sem Bjarki varði í slánna en Haukur fylgdi vel á eftir og skoraði. Mín- útu eftir það mark kom síðan jöfn- unarmarkið 3-3 en þá skoraði Haukur aftur með skalla, nú eftir aukaspyrnu. Bjarki Guðmundsson kom síðan í veg fyrir að heima- menn stælu öllum stigunum þrem- ur er hann varði frábærlega skalla frá Guðna Rúnari Helgasyni í við- bótartíma. „Fyrri hálfleikurinn var alveg ömurlegur hjá okkur, við vorum eiginlega ekki með. Við hunds- kömmuðumst okkar og náðum að rífa okkur upp í seinni hálfleikn- um og vorum þá ívið sterkari. Það kom ekkert annað til greina en að reyna að bjarga andlitinu og það tókst. Við hefðum viljað öll stigin en getum sætt okkur við eitt,“ sagði Haukur Ingi eftir leikinn en hann var sífellt ógnandi í leikn- um. Árni Thor Guðmundsson, varn- armaður ÍA, sagðist líta svo á að þarna hefði liðið tapað tveimur stigum. „Þetta var virkilega svekkjandi og skelfilegt að missa þetta niður í jafntefli. Við spiluð- um oft frábærlega vel í fyrri hálf- leiknum og vorum með þvílíka yfirburði, fengum lítið af færum á okkur. Í seinni hálfleik dettum við of aftarlega. Í hálfleik var talað um að við þyrftum að halda út fyrsta kortérið og fá ekki á okkur mark en það gekk ekki,“ sagði Árni Thor en Skagamenn eru enn í fallsæti og því hörð barátta fram- undan hjá þeim í síðustu leikjun- um. elvargeir@frettabladid.is SVEKKTUR ÞJÁLFARI Arnar Gunnlaugsson má vel vera svekktur að hafa ekki fengið þrjú stig í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fylkir bjargaði andlitinu eftir hlé Fylkismenn sýndu mikinn dug eftir að hafa verið tvívegis tveimur mörkum undir í leiknum gegn Skaga- mönnum í gær og jöfnuðu metin undir lok leiks. Skagamenn þurftu sárlega á þremur stigum að halda. HANDBOLTI Alfreð Gíslason og læri- sveinar hans í Gummersbach fögnuðu um helgina sigri á átta liða æfingamóti sem nefndist Bundesliga-cup. Gummersbach vann alla leiki sína í mótinu og landslið Egypta í úrslitaleik, 39- 31, þar sem Guðjón Valur Sigurðs- son skoraði sjö mörk. - esá Æfingamót í Þýskalandi: Gummersbach fagnaði sigri FÓTBOLTI Fyrri hálfleikur fór mjög fjörlega af stað en það voru heima- menn í Keflavík sem tóku völdin strax í byrjun.Keflavíkurstrák- arnir voru gríðarlega vel stemmd- ir, spiluðu boltanum hratt á milli sín, notuðu fáar snertingar og voru það hreyfanlegir að staðir FH-ingar voru alltaf skrefi á eftir. Keflvíkingar fengu tvö fín færi á fyrstu tíu mínútum leiksins en Daði Lárusson var á tánum og bjargaði vel í bæði skiptin fyrir Íslandsmeistarana. Eftir tuttugu mínútna leik vaknaði FH aðeins til lífsins og Andre Linbaek fékk þröngt færi en Ómar varði vel. Eftir það dó leikurinn í bókstaf- legri merkingu og síðustu 25 mín- útur hálfleiksins voru álíka fjör- ugar og veðurfréttirnar á Rúv. Sama ládeyðan var upp á ten- ingnum í upphafi síðari hálfleiks en þegar rúmur klukkutími var búinn af leiknum byrjuðu liðin að spyrja bolta á nýjan leik. Færin komu hvert á fætur öðru og Guð- mundur Steinarsson fékk besta færi ársins á 63.mínútu þegar hann stóð inn í markinu en á ein- hvern ótrulegan hátt kom hann boltanum yfir markið. Aðeins fjórum mínútum síðar komust heimamenn yfir þegar Samuelsen gaf fastan bolta á fjær- stöng og þar var mættur Mývetn- ingurinn Baldur Sigurðsson og hann ýtti boltanum yfir línuna. Keflavík var enn að fagna markinu þegar FH brunaði upp vinstri kantinn, boltinn var sendur í teiginn og þar stóð varamaðurinn Atli Guðnason, nýkominn inn á, einn á auðum sjó og hann var ekki í vandræðum með að koma boltan- um yfir línuna. 1-1 og mikið líf í leiknum. Bæði lið gerðu hvað þau gátu til að skora sigurmarkið en Keflavík var alltaf líklegra. Úr varð að þeir tóku öll stigin þrjú þegar Baldur kórónaði góðan leik og skoraði sitt annað mark þegar tveir mínútur voru komnar fram yfir venjuleg- an leiktíma eftir góðan undirbún- ing Hólmars. Sigur Keflavíkinga var sann- gjarn en þeir réðu ferðinni lengst- um og hefðu getað skorað fleiri mörk en Daði varði oft vel. Baldur, Hólmar og Jónas voru góðir á miðjunni og mun sterkari en and- stæðingarnir. Framherjarnir – Símun, Guðmundur og Magnús – voru mjög líflegir og gerðu meisturunum oft erfitt fyrir. „Þetta var frábær frammistaða og við vorum búnir að bíða lengi eftir sigri gegn FH. Við höfum oft verið nálægt og átt meira skilið og því var þetta sérstaklega sætt,“ sagði maður leiksins, Baldur Sig- urðsson sem spilaði allan leikinn með spjald á bakinu en hann var spjaldaður á fyrstu mínútu leiks- ins. henry@frettabladid.is Mývetningurinn Baldur Sigurðsson tryggði Keflavík öll stigin gegn Íslandsmeisturum FH: Baldur sá um Íslandsmeistarana fyrir Keflavík HETJAN HYLLT Baldur Sigurðsson skoraði bæði mörk Keflvíkinga í gær. Hér er honum innilega fagnað. VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS FÓTBOLTI KR-ingar löguðu stöðu sína í Landsbankadeildinni veru- lega með 1-0 baráttusigri á Breiða- blik í Kópavoginum í gær. Liðið er komið upp fyrir miðja deild en með tapinu féll Breiðablik niður um eitt sæti og er áfram með 17 stig, óþægilega nálægt fallsæti. „Þetta var ofsalega dýrmætur sigur,“ sagði Kristján Finnboga- son, fyrirliði og markvörður KR, eftir leikin. „Það kom aldrei til greina að tapa þessum leik í dag. Bæði lið voru náttúrulega í erfiðri stöðu en á heildina fannst mér við eiga þetta skilið. Við spiluðum vel og héldum auk þess hreinu, það er ekki eins og það gerist oft,“ bætti Kristján við. Blikar voru án stjörnufram- herja síns Marels Baldvinssonar, sem á ennþá við meiðsli að stríða, og áttu þeir eftir að sakna hans sárt í leiknum. Leikurinn í gær var stórskemmtilegur á að horfa, bæði lið spiluðu ágæta knatt- spyrnu og mörg fín færi litu dags- ins ljós. Þegar uppi var staðið var það þó mark Björgólfs Takefusa á 40. mínútu sem skildi liðin af, en þá skallaði hann góða sendingu Sigþórs Júlíussonar í netið. Heimamenn sóttu af krafti eftir mark Björgólfs og í upphafi síðari hálfleiks varði Kristján Finnboga- son meistaralega í þrígang. KR- ingar fengu þó einnig sín færi í leiknum og hefðu vel getað náð að skora fleiri mörk. Eftir því sem leið á síðari hálf- leikinn minnkaði fjörið, KR-ingar settustu aftar á völlinn og vörðust en beittu hættulegum skyndisókn- um þess á milli. Þegar tæpar 10 mínútur voru eftir fengu Viktor Unnar Illhugason og Grétar Ólaf- ur Hjartarson báðir að líta rauða spjaldið, Viktor fyrir ljóta tveggja fóta tæklingu á Grétari sem svar- aði fyrir sig með því að slá til Vikt- ors. Skömmu síðar fékk Sigmund- ur Kristjánsson sitt annað gula spjald en níu KR-ingar héldu leik- inn út án þess að fá á sig mark og tryggðu þrjú dýrmæt stig. Ljóst er að Marels var sárt saknað hjá Blikum í gær og náði Ellert Hreinsson, tvítugur strákur sem var að spila sinn þriðja leik í efstu deild í gær, aldrei að ógna miðvörðum KR-inga að neinu viti. Leikmenn liðsins spiluðu vel á milli sín á miðjusvæðinu, enda Arnar Grétarsson og Petr Podzems- ky eitt allra öflugasta miðjupar deildarinnar, en slagkraftinn vant- aði þegar á síðasta þriðjung vallar- ins var komið. - vig HÁLOFTALEIKAR Kr-ingarnir Dalibor Pauletic og Gunnlaugur Jónsson berjast um boltann við Hjörvar Hafliðason markvörð Blika. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eitt mark skildi á milli Breiðabliks og KR í mikilvægum leik í Kópavoginum í gær: Björgólfur tryggði KR dýrmætan sigur í Kópavogi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.