Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 75
MÁNUDAGUR 21. ágúst 2006 35
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla
FYLKIR-ÍA3-3
BREIÐABLIK-KR0-1
ÍBV-GRINDAVÍK2-1
KEFLAVÍK-FH2-1
VALUR-VÍKINGUR0-0
STAÐAN
FH 14 9 3 2 24-11 30
KEFLAVÍK 14 6 4 4 27-15 22
VALUR 14 5 6 3 21-14 21
VÍKINGUR 14 5 4 5 19-11 19
FYLKIR 14 5 4 5 20-20 19
GRINDAVÍK 14 4 5 5 21-19 17
BREIÐABLIK 14 5 2 7 14-26 17
ÍA 14 4 2 8 19-25 14
ÍBV 14 4 2 8 13-32 14
1. deild karla
STJARNAN-KA3-1
1-0 Daníel Laxdal (65.), 1-1 Sveinn Elías Jónsson
(70.), 2-1 Dragoslav Stojanovic (83.), 3-1 Gunnar
Ásgeirsson (91.).
Enska úrvalsdeildin
MANCHESTER UNITED-FULHAM5-1
1-0 Luis Saha (7.), 2-0 Sjálfsmark (15.), 3-0 Wayne
Rooney (16.), 4-0 Cristiano Ronaldo (19.), 4-1
Sjálfsmark (40.), 5-1 Wayne Rooney (64.).
CHELSEA-MANCHESTER CITY3-0
1-0 John Terry (11.), 2-0 Frank Lampard (26.), 3-0
Didier Drogba (79.).
Sænska úrvalsdeildin
HÄCKEN-MALMÖ FF3-1
Emil Hallfreðsson kom inn á sem varamaður hjá
Malmö en Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði
Häcken.
Þýska úrvalsdeildin
ARMINIA BIELEFELD-VFB STUTTGART2-3
0-1 Fernando (39.), 1-1 Ahanfouf (65.), 1-2 Cacau
(73.), 2-2 Böme (76.), 2-3 Cacau (82.).
VFL BOCHUM-BAYERN MÜNCHEN1-2
0-1 Makay (42.), 1-1 Fabio (52.), 1-2 Lahm (65.).
Belgíska úrvalsdeildin
WESTERLO-ANDERLECHT3-4
LOKEREN-GENT1-1
Rúnar Kristinsson kom inn á sem varamaður á
64. mínútu í liði Lokeren.
Danska úrvalsdeildin
SILKEBORG-AC HORSENS0-2
Hörður Sveinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson voru
í byrjunarliði Silkeborg.
AAB-RANDERS FC2-1
ESBJERG-FC MIDTJYLLAND4-2
OB-FC NORDSJÆLLAND2-1
BRÖNDBY-VIBORG3-0
Hollenska úrvalsdeildin
AJAX-RKC WAALWIJK5-0
FC GRONINGEN-FEYENOORD3-0
HERACLES ALMELO-FC TWENTE3-0
Arnar Þór Viðarsson var á varamannabekk
Twente.
PSV EINDHOVEN-NEC3-1
Spænski ofurbikarinn
BARCELONA-ESPANYOL
1-0 Xavi (3.), 2-0 Deco (12.), 3-0 Deco (61.)
Barcelona vann samanlagt, 4-0.
Laugardalsvöllur, áhorf.: 878
Valur Víkingur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–3 (3–2)
Varin skot Kjartan 2 – Ingvar 3
Horn 5–2
Aukaspyrnur fengnar 11–20
Rangstöður 0–0
VÍKINGUR 4–3–3
Ingvar 7
Höski 7
Grétar 7
Milos 8
Hörður 7
Stefán 5
Jökull 6
Viktor 6
Valur 5
(90. Þorvaldur -)
Arnar Jón 5
Davíð 4
(80. Daníel x)
*Maður leiksins
VALUR 4–4–2
Kjartan 6
Steinþór 6
Smith 7
Atli Sveinn 7
Birkir 6
Pálmi 6
Sigurbjörn 8*
Baldur -
(12. Kristinn 6)
Matthías 5
Guðmundur Ben. 5
(78. Þorvaldur M. -)
Garðar 5
0-0
Garðar Örn Hinriksson (7)
Hásteinsvöllur, áhorf.: 514
ÍBV Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–8 (8–3)
Varin skot Hrafn 2 – Helgi 5
Horn 7–7
Aukaspyrnur fengnar 18–11
Rangstöður 2–0
GRINDAVÍK 4–4–2
Helgi Már 7
McShane 5
Hannah 7
Guðmundur A. 6
(33. Ray 5)
Kristján 5
(72. Ahandour -)
Jóhann H. 5
Eysteinn Húni 6
Óli Stefán 5
Orri Freyr 6
(62. Andri St. 5)
Óskar Örn 5
Jóhann Þ. 7
*Maður leiksins
ÍBV 4–5–1
Hrafn 7
Schulte 6
Bjarni Hólm 8*
Mwesigwa 7
Long 7
Atli 7
Andri 6
(74. Lundbye -)
Henriksen 8
Bjarni Geir 7
Ingi Rafn 8
(85. Anton -)
Sævar 6
(57. Pétur R. 6)
1-0 Bo Henriksen (6.)
1-1 Eysteinn Húni Hauksson (44.)
2-1 Ingi Rafn Ingibergsson (54.)
2-1
Eyjólfur Kristinsson (4)
FÓTBOLTI Stjarnan vann í gær 3-1
sigur á KA í eina leik dagsins í 1.
deild karla. Með sigri Stjörnunnar
hafði liðið sætaskipti við KA og
situr í fimmta sæti en KA í því
sjötta. Bæði lið sigla lygnan sjó og
eiga hvorugt möguleika á að vinna
sér sæti í Landsbankadeildinni né
að falla í 2. deildina.
Daníel Laxdal, Dragoslav
Stojanovic og Gunnar Ásgeirsson
skoruðu mörk Stjörnunnar en
Sveinn Elías Jónsson fyrir KA. Sig-
urbjörn Ingimundarson úr Stjörn-
unni fékk að líta rauða spjaldið á
lokamínútu leiksins. - esá
1. deild karla:
Góður sigur
Stjörnunnar
HANDBOLTI Dregið var um helgina í
undankeppni EM í handbolta sem
fer fram í Noregi árið 2008. Dregið
var í sjö 3-4 liða riðla þar sem eitt
lið úr hverjum riðli kemst áfram í
umspilsleiki um sæti í sjálfri
úrslitakeppninni. Svíþjóð er áber-
andi sterkasta liðið í undankeppn-
inni en Svíar töpuðu gegn Íslend-
ingum í umspili um laust sæti á
HM í Þýskalandi í vor. Svíþjóð var
dregið í sjöunda riðli, ásamt liðum
Bosníu og Belgíu. - esá
Undankeppni EM 2008:
Dregið í riðla
SVÍAR Spila í undankeppninni.
FÓTBOLTI Eyjamenn fögnuðu dýr-
mætum sigri í harðri fallbaráttu
Landsbankadeildarinnar í gær-
kvöldi þegar þeir lögðu Grindavík
að velli 2-1 í Vestmannaeyjum.
Það voru leikmenn ÍBV sem
mættu mun grimmari til leiks í
blíðunni á Hásteinsvellinum en
aðstæður voru hreint frábærar í
gærkvöldi, stillt veður og völlur-
inn glæsilegur á að líta. Það var
verðskulduð forysta sem Bo
Henriksen náði fyrir ÍBV strax á
6. mínútu þegar hann skoraði af
miklu harðfylgi. Eyjamenn héldu
áfram að þjarma að Grindvíking-
um sem virtust vera heillum horfn-
ir framan af leik. Þeir sóttu hins
vegar í sig veðrið undir lok hálf-
leiksins og náðu að jafna þegar
Eyjólfur Magnús Kristinsson,
dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu.
Eysteinn Húni Hauksson skoraði
örugglega úr vítaspyrnunni.
En þegar aðeins níu mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik voru
Eyjamenn aftur komnir yfir eftir
ágætt mark Inga Rafns Ingabergs-
sonar eftir laglegan undirbúning
Henriksen. Aðeins tveimur mínút-
um síðar fékk Bjarni Geir Viðars-
son, leikmaður ÍBV sína aðra
áminningu, fyrir ætlaðan leikara-
skap og þótti dómurinn í besta falli
vafasamur.
En þrátt fyrir að vera leik-
manni færri tókst Eyjamönnum
að halda aftur af slökum Grind-
víkingum en gestirnir náðu varla
að ógna marki ÍBV að neinu ráði.
Það var helst Jóhann Þórhallsson
sem ógnaði með skotum sínum.
Ian Paul McShane gerði sig sekan
um vafasama framgöngu undir
lokin þegar hann virtist traðka á
Bo Henriksen sem lá í jörðinni.
McShane fékk hins vegar aðeins
áminningu.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
Eyjaliðsins stýrði sínum mönnum í
fyrsta sinn á heimavelli í sumar og
var afar ánægður með vinnufram-
lag sinna manna. „En við ætlum að
halda áfram á þessari braut,
bætum okkur í hverjum leik og
safna stigum. Ég held að vinnu-
semi leikmanna hafi aldrei verið
meiri í sumar enda var þetta mikil-
vægur sigur fyrir okkur. Það er
langt síðan við unnum síðast og
þetta eykur sjálfstraustið í hópn-
um. Ég var hins vegar ósáttur við
margt í dómgæslunni, vítaspyrn-
una sem við fáum dæmda á okkur,
brottvísunina og sömuleiðis að
McShane hefði sloppið með áminn-
ingu undir lokin,“ sagði Heimir í
leikslok.
Kollegi Heimis hjá Grindavík,
Sigurður Jónsson óskaði hins
vegar eftir því við sína leikmenn
að þeir tækju sig saman í andlitinu
enda hefði hans liðið leikið mjög
illa. „Við erum komnir í þessa fall-
baráttu af fullum krafti, höfum
komið okkur þangað sjálfir og
verðum núna að vinna okkur út úr
henni aftur.“
ÍBV vann gífurlega mikilvægan sigur á Grindavík í Vestmannaeyjum:
Sigurinn eykur sjálfstraust okkar
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
skemmtanagildið í leik Vals og
Víkings á Laugardalsvellinum í
gær hafi verið með lægsta móti og
úrslitin í samræmi við það, 0-0.
Bitleysi var í sóknarlínu beggja
liða og leikur liðanna oft ansi til-
viljanakenndur. Viktor Bjarki
Arnarson átti fyrsta skotið þegar
stundarfjórðungur var liðinn af
leiknum en það var laust og Kjart-
an Sturluson átti ekki í nokkrum
erfiðleikum með að verja. Eftir
rúman hálftíma átti Arnar Jón Sig-
urgeirsson ágæta skottilraun úr
aukaspyrnu en yfir fór boltinn.
Tilþrif leiksins komu þó á 42. mín-
útu þegar Sigurbjörn Hreiðarsson
var ekkert að tvínóna við hlutina
og skaut hörkuskoti af löngu færi
sem Ingvar Kale varði vel í horn.
Sigurbjörn var með frískari
mönnum á vellinum og átti hann
ágætis skot á 61. mínútu en aftur
varði Ingvar, Guðmundur Bene-
diktsson tók aukaspyrnu og renndi
knettinum til hægri á Sigurbjörn
sem komst í ágætis færi. Seint í
leiknum átti Pálmi Rafn Pálmason
skalla sem fór rétt yfir mark Vík-
inga.
Hinum megin átti Viktor Bjarki
ágætis skalla eftir fínan sendingu
Harðar Bjarnasonar en Kjartan
varði. Undir lokin átti Pálmi Rafn
Pálmason ágætis skot af löngu
færi en enn og aftur var Ingvar
vel á verði í markinu. Það má segja
að Valsmenn hafi fengið ögn
hættulegri færi en Víkingar í
leiknum í gær en hann var með
eindæmum leiðinlegur áhorfs og
markalaust jafntefli niðurstaðan.
Varnarmenn beggja liða lentu ekki
í teljandi vandræðum í gær og þá
var veðrið með besta móti meðan
á leik stóð.
Bæði lið virtust bara sætta sig
við úrslitin miðað við en Valsmenn
eru nú í þriðja sæti Víkingar í því
fimmta.
„Það var ekki mikið um opin
færi í þessum leik, bæði lið eru
með sterkar varnir og erfiðlega
gekk að finna glufur. Það var mik-
ilvægt fyrir bæði lið að tapa ekki
þessum leik því pakkinn er þéttur.
Bæði lið voru varkár og kannski
full rög við að taka áhættur. Þetta
var baráttuleikur og það leit alltaf
út að þessi leikur myndi enda
svona eða að það myndi detta eitt-
hvað pot mark inn eftir klafs.
Þetta var ekki skemmtilegur
leikur áhorfs en það var gaman að
spila hann. Eftir þrjá leiki á móti
bikarmeisturunum höfum við
unnið tvo og gert eitt jafntefli og
erum því sáttir,“ sagði Höskuldur
Eiríksson fyrirliði Víkings. - egm
HÖRÐ BARÁTTA Garðar Jóhannsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarsson berjast hér um bolt-
ann í leik Vals og Víkings í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Dautt jafntefli í Laugardal
Valur og víkingur gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í gær í leik sem
var allt annað en skemmtilegur. Liðin halda áfram að sigla lygnan sjó í deildinni.
FÓTBOLTI Eins og í fyrri leik lið-
anna var Eiður Smári Guðjohnsen
ekki í byrjunarliði Barcelona sem
tók á móti grannliðinu Espanyol í
síðari leik liðanna um ofurbikar-
inn svokallaða, keppni meistara
síðasta tímabils. Börsungar stilltu
upp sterku liði og voru þeir Lionel
Messi og Giovanni van
Bronckhorst í byrjunarliði Börs-
unga.
Og heimamenn byrjuðu með
látum og skoruðu fyrsta mark
leiksins strax á þriðju mínútu.
Eins og í fyrri leiknum var Ron-
aldinho allt í öllu í marki liðsins,
hann átti eitraða sendingu fyrir
markið frá vinstri á Xavi Hern-
andez sem skoraði með laglegum
skalla.
Aðeins tíu mínútum síðar bættu
Börsungar við öðru marki og það
var ekki síður glæsilegt en það
fyrra. Í þetta sinn var það Deco
sem skoraði framhjá Kameni. Juli-
ano Belletti átti gott hlaup upp
hægri kantinn og renndi boltanum
í miðjan vítateiginn þar sem Portú-
galinn Deco var mættur og skor-
aði auðveldlega.
Eins og svo oft áður voru þeir
Messi og Ronaldinho nánast
óstöðvandi í sóknarleik Barcelona
og á 23. mínútu fékk Brasilíumað-
urinn Eduardo Costa sig fullsadd-
ann af bjargarleysinu og gaf Messi
vænlegt olnbogaskot þannig að
blæddi úr nefi Argentínumanns-
ins unga. Messi hélt þó ótrauður
áfram.
Á 29. mínútu var Ronaldinho
nærri búinn að bæta þriðja mark-
inu við en skaut framhjá eftir að
hafa leikið varnarmenn Espanyol
upp úr skónum.
Í upphafi síðari hálfleiks var
svo loksins komið að því að Eiður
Smári Guðjohnsen fengi að
spreyta sig og kom hann inn á í liði
Barcelona í stað Samuels Eto‘o
sem hafði haft fremur hægt um
sig í leiknum.
En þriðja mark leiksins átti
margt sameiginlegt með því öðru.
Enn átti Beletti sendingu frá
vinstri og í þetta sinn sýndi Deco á
sér sparihliðina og skoraði laglega
með bakfallsspyrnu í mark Espan-
yol. Greinilegt var að allur vindur
var úr gestunum og var hann
reyndar sleginn úr þeim strax í
upphafi leiks.
Annars var síðari hálfleikur
heldur rólegur og komst Eiður
Smári ágætlega frá sínu þó svo að
hann hafi eins og flestir aðrir haft
fremur hægt um sig. En hann
hefur brotið ísinn og fær væntan-
lega fleiri tækifæri í haust og
vetur til að sýna hvað í honum
býr.
- esá
DECO OG RONALDINHO Börsungar fóru létt með Espanyol í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Síðari leikur Barcelona og Espanyol fór fram á Nou Camp í gærkvöldi:
Eiður fékk að spreyta sig í sigri Börsunga