Fréttablaðið - 21.08.2006, Side 78
21. ágúst 2006 MÁNUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT:
2 utan 6 bardagi 8 sær 9 sarg 11
tveir eins 12 missa marks 14 hvæsa
16 í röð 17 löng 18 fiskur 20 samtök
21 stígur.
LÓÐRÉTT:
1 þráður 3 skammstöfun 4 land 5
kraftur 7 hálsklútur 10 kjaftur 13 fugl
15 hástétt 16 rámur 19 kusk.
LAUSN:
Þjóðverjarnir Werner Finke og
Jürgen Krämer kalla ekki allt
ömmu sína. Þeir eru miklir hjól-
reiðamenn og hafa ferðast um ein
níu lönd á hjólunum einum saman,
m.a. Rússland, Ungverjaland,
Eistland, Svíþjóð og Noreg. Nú er
röðin komin að Íslandi en þeir
félagarnir komu hingað á laugar-
dag fyrir viku og hafa síðan hjólað
um 120 km á dag.
Blaðamaður Fréttablaðsins
rakst á þá hjá Vegamótum á Snæ-
fellsnesi þar sem þeir hugðust fá
sér hressingu, en ætlun þeirra er
að hjóla hringinn í kringum land-
ið. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir
sækja Ísland heim, en bæði veðr-
áttan og náttúran kom þeim á
óvart.
„Á leið okkar til Selfoss var
vindasamt, mikil rigning og ekki
nema átta stiga hiti,“ segja þeir og
hrylla sig við tilhugsunina. „Við
hjóluðum þaðan að Geysi og Gull-
fossi, Laugarvatni, yfir Kaldadal,
að Borgarnesi og loks hingað.
Náttúran hér er stórbrotin og það
gleður okkur að sjá að hér er ekki
of mikill túrismi.” Þeir bættu því
við að þeir svæfu aldrei í tjaldi og
byrjuðu hvern dag á að biðja guð
um að sleppa rokinu.
Biðja guð um logn á ferð um landið
ÞÝSKIR HJÓLREIÐAKAPPAR Þeir Werner
og Jürgen hjóla um 120 kílómetra á dag á
ferð sinni um Ísland og sofa aldrei í tjaldi.
Félagarnir byrja alla daga á því að biðja
guð um að sleppa rokinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Megnið af starfsmönnunum eru
vinir mínir sem ég sópaði til mín.
Þetta snýst auðvitað allt um að
búa til skemmtilegt vinnuum-
hverfi og ég get sagt að það er
afar skemmtilegt að vinna hérna,“
segir Júlíus Jóhannsson á fast-
eignasölunni Stórborg. Fasteigna-
salan er ekki nema fimm mánaða
gömul en hefur þegar vakið tals-
verða athygli. Helsta ástæða þess
er að starfsmennirnir eru flestir
landsþekktar poppstjörnur. Koll-
egarnir eru því farnir að kalla
Stórborg Fasteignasölu fræga
fólksins.
Júlíus hefur starfað við fast-
eignasölu í nokkurn tíma og á Stór-
borg með Stefáni Hrafni Stefáns-
syni, lögmanni og löggiltum
fasteignasala, sem hefur verið í
um 20 ár í bransanum. Þeir fengu
til liðs við sig Gunnar Ólason,
söngvara og gítarleikara úr Skít-
amóral, sem hefur starfað í brans-
anum um hríð. Júlíus hefur ein-
mitt verið í afleysingum sem
hljómborðsleikari í Skítamóral. Þá
eru ótaldir Grétar Örvarsson úr
Stjórninni, Jón Axel Ólafsson fyrr-
verandi útvarpsmaður og Bene-
dikt Brynleifsson trommuleikari,
sem þekktur er fyrir leik sinn með
Pálma Gunnarssyni og fleirum.
„Grétar kemur nýr inn en er
mjög ferskur enda reyndur sölu-
maður. Það þarf ekki að kenna
honum neitt. Jón Axel hefur svo
reynslu úr öllum áttum,“ segir
Júlíus sem segir það ekki vera
kröfu að menn séu tónlistarmenn
eða skemmtikraftar. „Þetta er nú
meiri tilviljun heldur en kröfur, en
það skemmir ekki. Við erum nú að
leita okkur að bassaleikara til að
við getum stofnað hljómsveit,“
segir Júlíus.
Athygli vekur þegar komið er
inn á Stórborg að þar hefur verið
komið fyrir afar athyglisverðu
fundarborði, en það keypti Jón
Axel á markaði með vörur frá
varnarliðinu. „Já, þetta er eitt
flottasta fundarborð á Íslandi. Ég
held að þarna hafi verið tekin
ákvörðun um að herinn myndi
fara, þetta borð er fyrir allan pen-
inginn,“ segir Júlíus.
Þó að mikið sé um grín og glens
hjá starfsmönnunum á Stórborg
leggur Júlíus áherslu á að þeir séu
fagmenn. „Við vitum að við erum
oft að meðhöndla aleigu fólks og
tökum vinnuna því alvarlega. Við
ætlum okkur að ná mjög langt.“
hdm@frettabladid.is
JÚLÍUS JÓHANNSSON: EINN EIGENDA SKEMMTILEGRAR FASTEIGNASÖLU
Fasteignasala fræga
fólksins slær í gegn
FASTEIGNASALA FRÆGA FÓLKSINS Starfsmenn Stórborgar hafa komið víða við í heimi popptónlistar og afþreyingar. Frá vinstri eru Stefán
Hrafn, Grétar Örvarsson, Júlíus, Valdimar Örn Matthíasson og Gunnar Ólason. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
HRÓSIÐ
... fær Andrés Ölversson bóndi
sem sem selur Andrésar andar-
egg.
LÁRÉTT: 2 nema, 6 at, 8 haf, 9 urg, 11
ll, 12 geiga, 14 fnæsa, 16 hi, 17 síð, 18
áll, 20 aa, 21 slóð.
LÓÐRÉTT: 1 taug, 3 eh, 4 malasía, 5
afl, 7 trefill, 10 gin, 13 gæs, 15 aðal, 16
hás, 19 ló.
Ofurtala
10 23 30 35 38
1 5 7 35 43 47
6 34 30
3 2 5 6 7
8 4 8 8 5
16.8.2006
Fjórfaldur
1. vinningur næsta
laugardag
1. vinningur gekk ekki út
7
19.8.2006
Einfaldur
1. vinningur
næsta laugardag
1. vinningur gekk ekki út
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrirsætan og ljósmyndarinn Elísabet Davíðsdóttir fagnaði þrítugsafmæli
sínu á föstudagskvöldið. Afmælisveisl-
an var haldin á skemmtistaðnum Rex
og var vel sótt af vinum og fjölskyldu
Elísabetar og þótti afmælisbarnið líta
glæsilega út. Margir af vinum hennar
frá New York flugu yfir
hafið til að vera viðstödd,
til að mynda Svenni
ljósmyndari og Andrea
förðunarfræðingur sem
unnið hefur mikið með
Björk. Hrafnhildur og Bára
Hólmgeirsdætur voru og
mættar og hárgreiðslu-
maðurinn Jón Atli Helga-
son var plötusnúður.
Oddný Sturludóttir varaborgarfull-trúi og Hallgrímur Helgason spúsi
hennar voru mætt í veislu Elísabetar.
Oddný og Elísabet eru æskuvinkonur
og við þetta tækifæri voru rifjaðar upp
margar ógleymanlegar sögur af þeim
vinkonunum. Meðal annars það að í tví-
tugsafmæli Elísabetar var Oddný einmitt
á föstu með Hallgrími en Elísabet var
með Roger O‘Donnell, hljómborðsleik-
ara The Cure. Í þrítugsafmælinu á
föstudagskvöld var líka
plötustýran Sóley
Kristjánsdóttir. Hún
gengur nú með fyrsta
barn sitt og var fæðingin
sett á laugardaginn. Sóley
skynjaði þó að frumburð-
urinn ætlaði eitthvað að
láta bíða eftir sér og
ákvað að reyna að
koma skrið á málin
með því að dansa vel
og lengi í veislunni.
Ekki gekk þetta plan
alveg eftir því þegar
síðast fréttist var
Sóley enn að bíða.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er aftur farin að blogga eftir neyð-
arlega uppákomu á dögunum. Þá
þurfti fegurðardrottningin að
loka bloggsíðunni sinni og
breyta færslum sem þóttu
ekki sæmandi. Unnur er
hress í skrifum sínum sem
fyrr og segir nú frá ferð
sinni til New York þar
sem hún var dugleg
að versla. Unnur Birna
er nú komin aftur
heim og við tekur
grámyglaður hvers-
dagsleikinn, í smá tíma
að minnsta kosti. Í dag
byrjar skólinn nefnilega
aftur en Unnur er að
læra lögfræði í Háskól-
anum í Reykjavík. - hdm
Kvikmyndaleikstjórinn Hrafn
Gunnlaugsson hefur komið sér
upp heimasíðu þar sem hægt er að
nálgast upplýsingar um hann sjálf-
an og fjölmörg verk hans.
Hrafn heldur úti Viking-
films.net og er ótrúleg-
ustu hluti þar að finna.
Öllum kvikmyndum
meistarans eru
gerð skil,
nýgræðingum
gefst tækifæri
til að kynna
sér myndirnar
frá grunni en
aðdáendur
Hrafns fá líka
tækifæri til að
lesa erlendar
umsagnir og fleira. Síðan er þó
greinilega enn á vinnslustigi og á
Hrafn eftir að bæta við meira efni
þegar fram líða stundir.
En það er ekki bara hægt að
lesa sér til um kvikmyndir Hrafns
á heimasíðu hans.
Leikstjórinn fjallar
sömuleiðis ítarlega
um sjálfan sig.
Þannig er hægt
að skoða ætt-
artré hans,
umfjöllun um
hús hans í
Laugarnesinu, minningargreinar
sem Hrafn hefur skrifað um vini
sína, doktorsritgerð föður hans og
svo mætti lengi telja. Það er óhætt
að fullyrða að heimasíða Hrafns
Gunnlaugssonar er hafsjór af
fróðleik um manninn og verk
hans.
En Hrafn lætur sér ekki
heimasíðuna nægja. Hann
hefur komið sér upp bloggsíð-
unni hrafngunnlaugsson.blog-
spot.com. Þó Hrafninn sé
nýbyrjaður að blogga
verður ekki annað sagt
en að hann lofi góðu.
Fyrsta færslan er þýð-
ing hans á lagi Lennons
Imagine yfir á
spænsku. Því næst birt-
ir hann bréf sitt til
borgarráðs
Reykjavíkur þar
sem hann kvart-
ar yfir gegnd-
arlausum hey-
skap á
umferðareyj-
um borgarinn-
ar. Og þetta eru
bara tvær af
þeim þremur
færslum sem inn
eru komnar. - hdm
Þýðir Imagine yfir á spænsku
HRAFN GUNNLAUGSSON
Kvikmyndaleikstjórinn
hefur komið sér upp
heimasíðu og er byrjað-
ur að blogga.
LENNON & YOKO
Hrafn hefur þýtt
Imagine yfir á
spænsku.