Fréttablaðið - 21.08.2006, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
�������������������
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
0
12
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
TVEIR FYRIR EINN
Þú tekur Nissan Pathfinder og Nissan Micra á rekstrarleigu og greiðir sömu
upphæð fyrir báða bílana og fyrir rekstrarleigu á einum Toyota Land Cruiser,
eða 99.800 kr. á mánuði**
Nissan Pathfinder er lipur blanda af kraftmiklum fjórhjóladrifnum jeppa og rúmgóðum fólksbíl
og hann er að mati bílablaðamanna sambærilegur Toyota Land Cruiser.
Dæmi um rekstrarleigu:
Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur 75.300 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Micra beinskipt 24.500 kr. á mánuði m/vsk.
Nissan Patrol Elegance 80.757 kr. á mánuði m/vsk.
Í TILEFNI AF 35 ÁRA AFMÆLI NISSAN Á ÍSLANDI BÝÐUR INGVAR
HELGASON NÚ ALGERLEGA EINSTAKT REKSTRARLEIGUTILBOÐ*
ÞÚ FÆRÐ MEIRA FYRIR MINNA MEÐ NISSAN
*Innifalið í rekstrarleigu er smur- og þjónustueftirlit skv. þjónustubók.
Rekstrarleiga getur tekið gengisbreytingum myntkörfu fjármögnunarfyrirtækis.
Leiga miðast við 39 mán. og 65 þús. km.
**www.toyota.is
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Richard Nixon varð fyrstur bandarískra forseta til að
hrökklast úr embætti en hann
hafði áður verið varaskeifa hjá
Eisenhower þeim sem barðist við
Hitler. Þá afsögn töldu margir
boða upphaf nýrra og betri tíma.
Það var árið 1974. Þá var þjóðhá-
tíð á Íslandi. Það ár tók Halldór
Ásgrímsson sæti á Aþingi.
DAGINN EFTIR að þriðja
Stjörnustríðsmyndin var frum-
sýnd var Halldór skipaður sjáv-
arútvegsráðherra. Það var 26.
maí 1983, árið sem Ronald Reag-
an Bandaríkjaforseti kallaði Sov-
étríkin „heimsveldi hins illa“.
ÁRIÐ SEM fyrrnefndur Nixon
burtkallaðist héðan af heimi og
Nelson Mandela var kjörinn for-
seti Suður-Afríku varð Halldór
Ásgrímsson formaður Framsókn-
arflokksins. Það var árið 1994.
MÁNUÐI EFTIR að Nick Lee-
son var gómaður fyrir að setja
Barings-banka á hausinn með
bjartsýni í verðbréfaviðskiptum
varð Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra, 23. apríl 1995.
Á ÁRINU sem Sameinuðu þjóð-
irnar helguðu minningunni um
baráttuna fyrir afnámi þræla-
halds varð Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra, það var 15.
september 2004.
HALLDÓR hefur sett mark sitt
á íslensk stjórnmál á undanförn-
um áratugum, kappsamur, gæt-
inn, kænn, traustur, hjartahlýr.
Nú er hann stiginn niður af svið-
inu. Það er ekki mitt að skrifa
pólitísk minningarorð, þau skrifa
menn sjálfir með verkum sínum
og framgöngu, en það fylgir því
ákveðinn léttir þegar skipt er um
fólk í áberandi embættum.
MENN HAFA lengi haft áhyggj-
ur af því að vald hafi ekki heilsu-
samleg áhrif á þá sem handleika
það. Vald spillir, segir gamalt
máltæki. Eflaust eru íslenskir
valdamenn undantekning frá
þeirri reglu. En til vonar og vara
ætti samt að hlífa mönnum við
því að gegna háu embætti, ráð-
herradómi eða stjóratign lengur
en átta ár samfleytt. Sá tími ætti
að duga góðum stjórnanda til að
hrinda helstu hugmyndum sínum
í framkvæmd.
Sögustund