Tíminn - 01.10.1978, Qupperneq 27
Sunnudagur 1. október 1978
27
-'•3S''
Dúmbó og Steini -
Steinar 025
Dömufrl sem er önnur stóra plata Dumbó og
Steina er eins og hin fyrri ætluö fyrir óskalagaþætti
útvarpsins og fjörug partý þar sem heilinn er ekki
brotinn um „smáatriöi” eins og texta og annaö inni-
hald laganna sem leikin eru. Sem slik er Dömufri
ágætis plata og stendur vel fyrir sinu, jafnvel miöaö
viö fyrri plötuna. En fyrir þá sem vilja eitthvaö
meira en afþreyingartónlist af „ódýrari” geröinni,
er Dömufri ekki rétta platan.
Eins og áöur segir þá tekst Dumbóum ágætlega
upp aö þessu sinni viö þaö aö hafa ofan af fyrir þeim
sem kunna aö meta tónlist sem þessa. Lögin eru tólf
aö tölu og þar af heimingurinn islenskur. Þau lög
sem sérstaklega vekja athygli eru „Óskadraumur;’
Finnboga Gunnlaugssonar og „Halló Apabróöir”
eftir Hauk Ingibergsson og Bjartmar Hannesson.
Reyndar má segja aö islensku lögin séu friskari
hluti þessarar piötu, þvi aö hinar útjöskuöu gömlu
erlendu lummur sem þarna er boöiö upp á eru orön-
ar hálf myglulegar. Þá eru textarnir einnig skömm-
inni skárri viö Islensku lögin.
Dömufri var hljóörituö I Hijóörita I Hafnarfiröi og
um vélstjórn sáu James Kay, Garöar Hansen og
Siguröur Bjóla Garöarsson. Leikstjóri var Baldur
Már Arngrimsson og umslagiö sem trúlega er þaö
besta viö plötuna var gert af Pétri Halldórssyni.
—ESE
Dömufrí
10 c.c. - Bloody Tourists
Mercury 9102 503 /Fálkinn
Enginn veit hvaö átt hefur fyrr en misst hefur.
Þetta máltæki og sú hugsun sem liggur á bak viö
þaö á mjög vel viö um bresku hljómsveitina 10 c.c.,
þvi aö þaö leikur enginn vafi á þvi aö hún hefur ekki
boriö sitt barr eftir aö Kevin Godley og Lol Creme
hættu i henni fyrir tveim árum siöan.
Þeir Eric Stewart og Graham Gouldman sem eft-
ir uröu I hljómsveitinni hafa þó allan þennan tima
reynt af veikum mætti aö halda I forna frægö, en
sannleikurinn er sá aö árangur hefur ekki oröiö sem
erfiöi. A þessum tveim árum sem liöin eru siöan
þeir Godley og Creme hættu, hefur 10 c.c. sent frá
sér tvær súdióplötur, „Deceptive Bends” og
„Bloody Tourists”, sem hér er til umfjöllunar.
Þessar plötur eru aö mörgu leyti ágætar, en þegar
þær eru miöaöar viö meistaraverk 10 c.c. „The
Original Soundtrack” og „How Dare You”, þá fer af
þeim mesti glansinn, reyndar á maöur bágt meö aö
sætta sig viö aö þær séu ekki betri en raun ber vitni.
Af tvennu „illu” þá er þó „Bioody Tourists”
skömminni skárri, þó aö sjaldan örli á þeim frum-
leika sem var aöalsmerki 10 c.c. hér áöur fyrr. Þaö
viröist sem svo aö þeir Stewart og Gouldman séu
þurrausnir og aö öll þeirra sköpunargáfa sé I iág-
marki. A „Bloody Tourists” t.a.m. þá er veriö aö
hjakka á sömu gömlu lögunum sem geröu garöinn
frægan fyrir 2-3 árum og þá sjáldan er eitthvaö
frumlegt og nýtt heyrist á plötunni þá er þaö fyrir
áhrif nýrra liösmanna i hljómsveitinni. Meö þessu
er ekki sagt aö „Bloody Tourists” sé léleg plata, en
fyrir þá sem kunnu aö meta t.d. „How Dare You”
þá er „BT” ekkert til aö hrópa húrra fyrir. Þó aö
hér sé ekki fariö sérstaklega vinsamlegum oröum
★ ★ ★ ★-!-
um þessa nýju plötu 10 c.c„ þá veröur aö unna
hljómsveitinni sannmælis og geta um þaö sem vel
er og á ég þar viö hljóöfæraleikinn, en hann er alltaf
fyrsta flokks, eins og hljómsveitin sjálf var, þegar
tvöfaldi dúettinn Godley--Creme og Stewart-Gould-
man voru upp á sitt besta.
—ESE
Shakespearos á hljómleikum I Red Cow — eöa Strangiers eins og islendingar þekkja þá.
DIESEL
Viö útvegum dieselvélar og fylgihluti
til ísetningar í ýmsar geröir bifreiöa.
Frekari upplýsingar gefur
HAFRAFELL HF
VAGNHÖFÐA 7, SÍMI 85211
Skrifstofustarf
Viljum ráða á næstunni fulltrúa til að
annast undirbúning fyrir tölvuvinnslu i
sambandi við launagreiðslur, (ekki göt-
un).
Laun samkvæmt 11. launaflokki rikisstarfsmanna.
Umsóknir á þar til geröum eyöublööum, sem fást hjá
undirrituöum, þurfa aö berast fyrir 12. október n.k.
Vegagerð rikisins,
Borgartúni 7,
Reykjavik.
Hreingerningar
Stór verslun i Reykjavik óskar eftir
starfskrafti til hreingerninga og tiltekta i
verslun og fleira. Vinnutimi frá 8-4,30.
Umsóknir er greini frá aldri og fyrri störf-
um óskast lagðar á Timann fyrir 5/10 n.k.
merkt 1294.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar
og fóstrur
óskast aö Geödeild Barnaspitala Hringsins, Dalbraut
12.
Uppiýsingar veitir hjúkrunarstjóri i sima 84611.
Reykjavik, 1.10. 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000.