Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 6

Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 6
6 7. október 2006 LAUGARDAGUR KJÖRKASSINN Nýtt SparBíó* — 450kr „THE WILD“ ÓBYGGÐIRNAR Sýnd með íslensku tali ! SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 1:30 og 1:45 Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA SUPERMAN RETURNS SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.) ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:45 (ÁLFAB.) OG 2 (AK. OG KEF.) MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.) OG 2 (AK. OG KEF.) STEP UP SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.) BÍLAR M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:45 (ÁLFAB.) FJÁRMÁLAMISFERLI Aðstand- endur vistmanna á áfanga- staðnum Ránargötu 12 eru afar óánægðir með aðferð- ir og upplýsingagjöf Svæð- isskrifstofu málefna fatl- aðra í Reykjavík (SSR) vegna rannsóknar á meintu fjármálamisferli sem upp kom á staðnum í ágúst 2005. Í bréfi sem SSR sendi aðstandendum þann 23. mars 2006 stendur að aðstandendum og íbúum áfangastaðarins hefði verið kynntur alvarleiki málsins og að SSR muni leggja fram kæru eigi síðar en í maí á þessu ári. Aðstandandi sem Fréttablaðið ræddi við segir að honum hafi hvorki borist neinar upplýsingar um hversu umfangsmikið misferlið var né hvar málið væri statt í kerfinu í dag. Ljóst væri þó að kæra hefði enn ekki verið lögð fram. Hann segist marg- sinnis hafa lagt fram kvört- un til félagsmálaráðuneyt- isins vegna málsins og síðast 18. september síðastliðinn. Fjórum dögum síðar hafi honum borist bréf frá SSR þar sem segir orðrétt að „Rannsókn á meintu fjármála- misferli fyrrverandi forstöðu- manns Áfangastaðarins Ránargötu 12 hefur verið til rannsóknar hjá Ríkisendurskoðun. Okkur barst greinargerð frá þeim þann 21. sept. sl.“. Þegar það orðalag var borið undir Sigurð Þórðarson ríkisend- urskoðanda sagði hann að ekki hefði farið fram nein eiginleg rann- sókn á þessu máli né hafi nokkurri greinargerð með niðurstöðu í mál- inu verið skilað. „Við vitum af þessu máli og það er í vinnslu á milli okkar og svæðisskrifstofunn- ar. En við erum ekkert búnir að ljúka því og höfum ekkert látið fara frá okkur um efnislega niður- stöðu.“ Þegar Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri SSR, var spurð- ur um hvort málavextir hefðu verið kynntir aðstandendum vildi hann ekkert segja um það. Hann neitar því að misvísandi upplýsingar hafi verið veittar um stöðu málsins í fyrra bréfinu þrátt fyrir að í því segi að aðstandendum hafi verið tilkynnt um alvarleika málsins og að lögð yrði fram kæra í maí. Sömu sögu er að segja um fullyrðingar þess efnis að Ríkisendurskoðun hafi haft málið til rannsóknar og skilað þeim greinargerð eins og kom fram í síðara bréfinu. Hann segir það einfaldlega mismunandi hvaða skilning menn leggi í orð eins og greinargerð. thordur@frettabladid.is Aðstandendur fá rangar upplýsingar Aðstandendur vistmanna á áfangastað fyrir fatlaða segjast hafa fengið rangar upplýsingar um fjárdrátt sem átti sér þar stað. Framkvæmdastjóri SSR neitar því og segir mismunandi hvaða skilning fólk leggi í orðið greinargerð. Ertu farin(n) að telja dagana til jóla? Já 18,6% Nei 81,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Talar þú mikið í síma? Segðu skoðun þína á visir.is STJÓRNMÁL Róbert Marshall hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1.-2. sæti í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi sem fram fer 4. nóvember. Róbert er fyrrum blaða- og fréttamaður og framkvæmdalegur forstöðumaður sjónvarpsfrétta- stöðvarinnar NFS. Þá er Róbert fyrrum formaður Blaðamannafélags Íslands. Róbert segir möguleika á endurnýjun þingmannahóps kjördæmisins með brotthvarfi Margrétar Frímannsdóttur, og býður sig fram sem nýjan forystumann flokksins í Suður- kjördæmi. - ss Prófkjör Samfylkingarinnar: Sækist eftir efstu sætunum RÓBERT MARSHALL RANGAR UPPLÝSINGAR Aðstandendur vistmanna á vistheimili fyrir fatlaða segja að þeir hafi fengið rangar upplýsingar um fjárdrátt. LÖGREGLUMÁL Tvítug íslensk stúlka hefur kært nauðgun til lögregl- unnar í Kaupmannahöfn. Sam- kvæmt frétt Ekstra blaðsins átti atburðurinn sér stað í kirkjugarði á Norðurbrú síðastliðið miðviku- dagskvöld. Stúlkan sagði lögreglu að hún hefði hitt ungan mann inni á skemmtistaðnum Cafe Rust, en hún hafði þá verið úti að skemmta sér ásamt nokkrum vinkonum sínum. Hún og maðurinn hafi stuttu síðar ákveðið að fara út af staðnum til að fá sér ferskt loft og hafi í kjölfarið gengið smá spöl um hverfið þar til að þau komu að kirkjugarðinum. Stúlkan hélt að um almenningsgarð væri að ræða og fylgdi því manninum yfir vegg hans. Þegar inn í kirkjugarðinn var komið hafi þó orðið ljóst að maðurinn vildi fá meira úr sam- vistum þeirra en stúlkan hefði ætlað sér. Hann hafi því ráðist á hana og nauðgað henni. Eftir árásina lét maðurinn sig hverfa af vettvangi. Lögreglu- menn urðu varir við stúlkuna stuttu síðar þar sem hún ráfaði ráðvillt um. Þeir keyrðu hana heim til vinafólks þar sem hún brotnaði saman og sagði lögreglu- mönnunum frá því sem átt hafði sér stað. Hún var í kjölfarið flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Rann- sókn málsins stendur enn yfir og maðurinn er ófundinn. - þsj Íslensk stúlka varð fyrir árás í Kaupmannahöfn: Nauðgað í kirkju- garði á Norðurbrú BRETLAND, AP Fyrrum utan- ríkisráðherra Bretlands sætir nú hörðum ásökunum fyrir orð sín um að múslimakonur sem hylja andlit sín með blæjum geti gert samskipti milli ólíkra þjóðfélags- hópa erfiðari. Andlitsblæjan er „sýnileg yfirlýsing um aðskilnað og mismun,“ skrifaði Jack Straw í grein sem birtist í Lancashire Evening Telegraph, en hann biður múslimakonur sem heimsækja hann á skrifstofu hans um að fjarlægja blæjuna. Orð Straws reittu fjölmarga múslima til reiði, en talsmaður Ráðs breskra múslima sagðist skilja sjónarhorn Straws. - smk Straw um andlitsblæjur: Auðvelda ekki samskipti ANDLITSBLÆJA Heittrúuð múslimakona með andlitsblæju. NORDICPHOTOS/AFP VIRKJANIR Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingkona Sam- fylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, leggst alfarið gegn hugmyndum um Villinganesvirkjun og Skata- staðavirkjun í Skagafirði. Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti fyrr í vikunni að sýna hugmyndir um Vill- inganesvirkjun og Skatastaðavirkjun á aðalskipulagi Skagafjarðar. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi Samfylking- arinnar í Sveitarstjórn Skagafjarðar, telur eðlilegt að Skagfirðingar fái sjálfir að taka ákvarðanir um það hvort virkja eigi í sveitarfélaginu. Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn mynda meirihluta í sveitar- stjórn Skagafjarðar. „Við töldum rétt að það færi fram lýðræðisleg umræða um þessa möguleika hjá Skagfirðingum. Það eru fyrst og fremst þeir sem eiga að fá að vega það og meta hvort nýta eigi auðlindirn- ar eða ekki.“ Anna Kristín segist alfarið á móti hugmyndum um virkjanir á Jöklu í Skagafirði. „Það er verið að setja þetta inn á tillögu um aðalskipulag til þess að Skag- firðingar geti tekið ákvörðun um það hvort virkja eigi í Jökulsá. Ég leggst alfarið gegn þeim hugmynd- um og hvet Skagfirðinga til þess að kynna sér þessi mál vel. Ég hef enga trú á því að Skagfirðingar vilji hafa þessar hugmyndir inni á aðalskipulagi.“ - mh Hugmyndir um tvær vatnsaflsvirkjanir í tillögu sveitarstjórnar: Greinir á um virkjanahugmyndir ÚR SKAGAFIRÐI Virkjanamál eru ofarlega á baugi í sveitar- stjórnarmálum í Skagafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vike-Freiberga hætt við Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands, tilkynnti á fimmtudag að hún væri hætt við framboð í embætti fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, eftir að tveir fulltrúar í öryggisráðinu beittu neitunarvaldi gegn henni í síðustu óformlegu atkvæðagreiðsl- unni. Hún var eina konan í hópi frambjóðenda og sá eini sem ekki kom frá Asíu. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR BANDARÍKIN, AP Sautján þúsund Bandaríkjamenn þurftu að flýja heimili sín í gær eftir að spreng- ing varð í eiturefnaverksmiðju nærri bænum Apex í Norður- Karólínu með þeim afleiðingum að klórgasský sveif yfir nágrenn- inu. Ekki er talið að neinn starfs- manna verksmiðjunnar hafi verið að störfum þegar sprengingin varð seint á fimmtudag. Tugir manna sem búa í nágrenni verksmiðjunnar fóru á slysadeild með öndunarerfiðleika. Ekki er vitað hvað olli spreng- ingunni. Verksmiðjan vinnur eiturúrgang frá iðnaði. - smk Eiturefnaverksmiðja: 17.000 flýja eftir sprengingu STJÓRNMÁL Valdimar Leó Frið- riksson alþingismaður gefur kost á sér í 3. sæti á lista Samfylkingar- innar í Suðvestur- kjördæmi í komandi prófkjöri. Valdimar settist á þing í september 2005, þegar Guðmundur Árni Stefánsson hætti á þingi. Hann er formaður Ungmenna- sambands Kjalarnesþings, ritari í stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana og varamaður í stjórn MS félagsins. - ss Prófkjör Samfylkingarinnar: Stefnir á 3. sæti í Kraganum VALDIMAR LEÓ FRIÐRIKSSON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.