Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 10
10 7. október 2006 LAUGARDAGUR
UMHVERFISMÁL Tillögur auðlinda-
nefndar sem snúa að gerð heildar-
áætlunar um nýtingu og vernd
náttúruauðlinda á Íslandi verða
kynntar í næstu viku, að því er
kom fram í máli Jóns Sigurðsson-
ar iðnaðar- og viðskiptaráðherra á
fundi Samtaka iðnaðarins um nátt-
úruvernd og nýtingu náttúruauð-
linda, sem fram fór á fimmtudag.
Frumvarp verður lagt fram í
vetur sem byggir á þeirri vinnu
sem fram fór í nefndinni og telur
Jón líklegt að heildaráætlun um
verndun og nýtingu auðlinda gæti
legið fyrir árið 2009 eða 2010.
Heildstæð nýtingar- og verndar-
áætlun sem alþingi fjallar um á
nokkurra ára millibili og faglegt,
gegnsætt valferli um umsóknir er
það sem Jón sér fyrir sér sem
meginstef framtíðarinnar.
Á fundinum var mikið rætt um
framkvæmdir í kringum álver og
ítrekaði Jón að síðan árið 2003 hafi
stjórnvöld dregið sig til baka sem
þátttakendur. „Þau verkefni sem
nú eru helst á döfinni, við Húsavík,
í Helguvík, og í Straumsvík, eru
þannig á vegum heimamanna og
undir stjórn þeirra og sjálfstæðra
fyrirtækja en ekki undir forræði
iðnaðarráðuneytisins. Kárahnjúka-
virkjun og það sem henni tengist
er eitt það síðasta sem tilheyrir
gamla kerfinu.“
Illugi Gunnarsson hagfræðing-
ur sagði velflesta nú komna á þá
skoðun að stjórnvöld eigi ekki að
standa í stóriðjurekstri. Hann dró
fram og tók dæmi um tengsl
umhverfisverndar og frjáls mark-
aðar, þar sem fyrirtæki sjá sér
hag í því að höfða til aukinnar
umhverfisvitundar almennings.
Andri Snær Magnason rithöf-
undur sagði hvata til umhverfis-
verndar skorta þegar orka væri
gerð of ódýr og auðvelt að nálgast
hana. Andri Snær varaði einnig
sérstaklega við stækkun álvera.
„Það verður alltaf þrýstingur í átt
til hagkvæmni stærðarinnar eins
og sjá má hjá álverinu í Straums-
vík sem segir, annað hvort stækk-
um við eða förum.“ Andri Snær
telur tvímælalaust að fyrirtæki
vilji reisa álver hérlendis með það
gagngert fyrir augum að stækka
seinna meir. „Og það mun skapast
gríðarlegur pólitískur þrýstingur
á auðlindir okkar þegar álver vilja
stækka og heimamenn styðja við
þær kröfur. Það er verið að búa til
þróun sem leiðir ekki til sátta.“
sdg@frettabladid.is
Stjórnvöld
ekki í stóriðju
Auðlindanefnd kynnir í næstu viku tillögur sínar
um verndun og nýtingu auðlinda. Frumvarp verður
lagt fram í vetur sem byggir á vinnu nefndarinnar.
ANDRI SNÆR MAGNASON, JÓN SIGURÐSSON OG ILLUGI GUNNARSSON
Húsfyllir var á fundinum sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir. Andri, Jón og Sigurður
voru frummælendur og í lokin voru stuttar pallborðsumræður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÚSSLAND, AP Lögreglan í
Moskvu hefur beðið skóla
borgarinnar um nöfn allra
georgískra nemenda og
rússnesk yfirvöld vísuðu 132
Georgíumönnum úr landi í gær
á þeim forsendum að þeir væru
ólöglega í landinu.
Atvikin tvö urðu ekki til að
milda deilurnar milli Georgíu-
manna og Rússa, sem hafa farið
harðnandi undanfarið.
Samskipti milli Rússlands og
Georgíu hafa verið stirð síðan
Mikhail Saakashvili tók við
störfum sem forseti Georgíu
árið 2003, en hann vill færa land
sitt nær Vesturlöndunum og
minnka ítök Rússlands í
Georgíu. - smk
Deilur Rússa og Georgíumanna:
Georgíumenn brottrækir
ÓVISSA Georgískir ríkisborgarar leituðu til
ræðismannsskrifstofu sinnar í Moskvu í
gær til að fá upplýsingar um deilur Rúss-
lands og Georgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
��������������������������������
���������������������������� ��� ��
��������������������������������
���������������������������������
�� ������������������ ���������
������������������� ��� ���
�� ����������
��������������
�����������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
MEXÍKÓ Mannréttindasamtökin
Amnesty International saka
mexíkósku lögregluna um að hafa
þaggað niður ásakanir um ofbeldi
lögreglunnar gegn fjölda manna og
kvenna eftir fjölmenn mótmæli
vegna umdeilds lands í San
Salvador Atenco í maí síðastliðnum.
Lögreglumenn eru sakaðir um að
hafa nauðgað minnst 23 konum
eftir að hafa handtekið þær, sem
og að hafa beitt fólkið ýmiss
konar ofbeldi, að því er kemur
fram á fréttavef BBC.
Alls voru 212 manns fangelsað-
ir í mótmælunum, sem um tvö
þúsund lögreglumenn tóku þátt í
að stöðva. - smk
Mexíkóska lögreglan:
Sögð þagga niður nauðganir