Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 12
7. október 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.378 +1,31% Fjöldi viðskipta: 570
Velta: 7.255 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 69,80 +1,16% ... Alfesca
5,04 -0,20% ... Atlantic Petroleum 570,00 +2,15% ... Atorka
6,56 +1,24% ... Avion 31,00 -0,64% ... Bakkavör 58,50 +0,17%
... Dagsbrún 5,09 +0,00% ... FL Group 22,50 +1,35% ... Glitnir
20,70 +1,97% ... Kaupþing 875,00 +2,10% ... Landsbankinn 26,40
+0,00% ... Marel 79,50 +3,25% ... Mosaic Fashions 17,20 -0,58%
... Straumur-Burðarás 17,20 +0,59% ... Össur 124,00 +0,41%
MESTA HÆKKUN
Marel 3,25%
Atlantic Petr. 2,15%
Kaupþing 2,10%
MESTA LÆKKUN
Flaga 5,9%
Avion 0,64%
Iceland. Grou. 0,63%
Kaupum norska bankans BNbank,
sem er í eigu Glitnis, á 45 prósenta
hlut í Norsk Privatøkonomi eftir
að norska fjármálaeftirlitið lagði
blessun sína yfir kaupin. NPØ er
fjármálaþjónustufyrirtæki sem
starfar um allan Noreg.
Í kjölfarið hafa þrír fulltrúar
BNbank tekið sæti í sex manna
stjórn NPØ.
Við kaupin í ágúst sögðu for-
svarsmenn Glitnis að þeir sæju
fram á samvinnu milli fyrirtækja
í eigu Glitnis og NPØ og það yrði á
ábyrgð BNbank að þróa það sam-
starf. - eþa
Glitnir lýkur
við kaup á NPØ
Dótturfélag Nýsis í Bretlandi hefur
eignast 69 prósenta hlut í breska
fasteignastjórnunarfélaginu Operon
og styrkir þar með
stöðu sína í einka-
framkvæmd og
fasteignastjórnun á
breska markaðn-
um.
Breska félagið
hefur meðal ann-
ars gert samninga
við stjórnvöld,
skóla og sjúkrahús
um fasteigna-
stjórnun sem þýðir
að Operon rekur
byggingarnar og
veitir ýmsa stoð-
þjónustu í þeim.
Áætluð velta Operon á þessu ári er
um sex milljarðar króna og eru átta
hundruð manns í vinnu hjá fyrirtæk-
inu. Kaupverð er trúnaðarmál. - eþa
Nýsir kaupir
69% í Operon
SIGFÚS JÓNS-
SON, HJÁ NÝSI
Dótturfélag
Nýsis kaupir 69
prósenta hlut í
bresku fasteigna-
stjórnunarfélagi.
Sigurður Kári
4. sæti
4
Opnum í dag kosningaskrifstofu
Sigurðar Kára í Aðalstræti 6,
klukkan 14.00 - 17.00.
Létt skemmtiatriði.
Skoppa og Skrítla skemmta
börnunum. Boðið verður
upp á kaffi og vöfflur
með rjóma.
Allir velkomnir.
Stuðningsfólk
www.sigurdurkari.is
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík,
27. og 28. október.
DeCode Genetics, móðurfélag
Íslenskrar erfðagreiningar, hefur
gert hlé á þriðja fasa prófana á til-
raunalyfinu DG031 meðal banda-
rískra hjartasjúklinga. Hléið
kemur til af því að tíminn sem
tekur lyfið að losna úr töflunum
hefur lengst. Í umfjöllun greining-
ardeildar Morgan Stanley er gert
ráð fyrir að prófanir tefjist um
hálft til heilt ár meðan DeCode
leitar nýs samstarfsaðila til töflu-
framleiðslunnar. Greiningardeild-
in mælir með kaupum í DeCode
fyrir langtímafjárfesta og er
þeirrar skoðunar „að fyrirtækið
gæti á endanum náð árangri og
skilað verulegum arði“.
Þriðjafasaprófanirnar hófust
um miðjan maí á þessu ári og var
fyrirfram ætlað að þær tækju tvö
til þrjú ár og kostuðu upp undir 60
milljarða króna.
DG031, sem er forvarnarlyf
gegn hjartaáföllum, er lengst
komið allra lyfja DeCode í lyfja-
þróun. „Ekkert bendir til að þetta
hafi haft áhrif á upptöku lyfsins
hjá þátttakendum, né á öryggi
lyfsins,“ segir í tilkynningu
DeCode, en þar er einnig haft eftir
Kára Stefánssyni forstjóra að
áfram verði unnið að þróun grein-
ingarprófs og annars lyfs sem
beindist að áhættuþættinum,
meðan framleiðsluferlið yrði end-
urbætt og nýjar töflur framleidd-
ar fyrir áframhaldandi prófanir á
DG031. - óká
LYFJARANNSÓKNIR Útlit er fyrir að rann-
sóknir á því lyfi sem lengst er komið í
prófanaferli hjá DeCode tefjist um 6 til
12 mánuði.
Prófanir á hjartalyfi tefjast
Morgan Stanley mælir með langtímafjárfestingu í DeCode.
Hver landsmaður greiðir um níu
þúsund krónur á ári vegna þjófnaða
og mistaka. Samkvæmt frétt frá
Rannsóknarsetri verslunarinnar
fara árlega 2,8 milljarðar króna í
vaskinn hér á landi vegna rýrnunar
af þessum sökum. Er þá miðað við
meðaltalstölur frá 24 Evrópulönd-
um. Ætla má að stærstan hluta þess-
arar rýrnunar megi rekja til þjófn-
aða, eða um 2,4 milljarða, og restina
til mistaka. Í 48,8 prósentum tilvika
eru það viðskiptavinir sem stela en
í næst stærstum hluta tilvika eru
það starfsmenn.
Þessi tegund rýrnunar er að
meðaltali 1,24 prósent af veltu
evrópskra smásöluverslana.
Íslenskar verslanir voru ekki með
í könnuninni að þessu sinni en í
fyrra, þegar þær tóku þátt, var
Ísland rétt undir þessu meðaltali.
Hins vegar var mun hærra hlut-
fall hér af starfsmannaþjófnuðum
en í nokkru öðru hinna 24 land-
anna sem könnunin náði til. - hhs
DÝRKEYPTUR ÞJÓFNAÐUR
Samkvæmt frétt frá Rannsóknarsetri
verslunarinnar fara árlega 2,8 milljarðar í
vaskinn vegna þjófnaða og mistaka.
Hnupl kostar níu
þúsund á mann
Nýherji hefur keypt allt hlutafé í
Tölvusmiðjunni ehf. á Austurlandi.
Í fréttatilkynningu segir að Nýherji
hafi að undanförnu starfað að
ýmsum verkefnum á Austurlandi
og oft í samstarfi við Tölvusmiðj-
una. Kaupin séu liður í að styrkja
betur við þá starfsemi og skapa
forsendur til að bjóða lausnir
Nýherja til viðskiptavina á Austur-
landi.
Tölvusmiðjan, sem varð til árið
1998 með sameiningu þriggja fyr-
irtækja, er sérhæfð í sölu á tölvum
og tæknibúnaði á Austurlandi auk
þess að bjóða þjónustu á sviði
rekstrarþjónustu, hýsingar, not-
endaþjónustu og Microsoft-þjón-
ustu. Hún verður rekin sem sjálf-
stætt dótturfélag Nýherja og allir
lykilstjórnendur fyrirtækisins
munu starfa áfram hjá félaginu.
Áætluð velta félagsins á árinu 2006
er 120 milljónir króna. Kaupin eru
fjármögnuð með eigin fé Nýherja
og er kaupverð trúnaðarmál. - hhs
ÞÓRÐUR SVERRISSON, FORSTJÓRI
NÝHERJA Nýherji hefur keypt allt hlutafé
í Tölvusmiðjunni ehf. á Austurlandi.
Nýherji styrkir
sig á Austurlandi
Seðlabanki
Evrópu hefur
hækkað stýri-
vexti á evru-
svæðinu um 25
punkta í 3,25
prósent. Stýri-
vaxtahækkun-
in er sú fimmta
síðan í lok síð-
asta árs en
vextirnir hafa ekki verið hærri
síðan árið 2002.
Sérfræðingar búast við að vext-
ir hækki enn og nemi allt að 3,5
prósentum fyrir loks árs. - jab
JEAN-CLAUDE
TRICHET
Stýrivextir í
Evrópu hækka
MARKAÐSPUNKTAR
Atorka hefur selt fasteignafélagið
Summit sem var stofnað á síðasta
ári. Fasteignir félagsins eru þrjár, að
Hlíðarsmára, Vatnagörðum og Íshellu.
Kaupverðið er trúnaðarmál en áætlaður
söluhagnaður af viðskiptunum er 250
milljónir króna.
Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow
Jones sló enn eitt metið við lokun mark-
aða vestanhafs á fimmtudag. Vísitalan
hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14
prósent í viðskiptum dagsins og endaði
í 11.866,69 stigum við lokun.
Seil ehf. hefur keypt 83.727.500 hluti í
Vinnslustöðinni á genginu 4,5. Eigendur
Seil ehf. eru þau Haraldur Gíslason
stjórnarmaður, Kristín Gísladóttir
varastjórnarmaður og Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson framkvæmdastjóri. Seljandi
hlutanna var Lífeyrissjóður Vestmanna-
eyja.
Vilja kaupa Aer Lingus
Írska flugfélagið Ryanair, eitt stærsta lággjalda-
flugfélag í Evrópu, hefur gert tilboð í allt hlutafé
írska flugfélagsins Aer Lingus. Boðið hljóðar upp á
litla1,48 milljarða evra eða tæplega 130 milljarða
króna. Ryanair hefur þegar keypt 16 prósent í
félaginu. Haft er eftir Micheal O‘Leary, forstjóra
Ryanair, að kaupin hefðu litlar breytingar í för með
sér fyrir Aer Lingus. Félögin verði ekki sameinuð og
keppi eftir sem áður á markaði. Írska ríkið átti 85,1
prósents hlut en seldi tæp 57 prósent í almennu
hlutafjárútboði á dögunum. Þá keyptu starfsmenn
félagsins 9,85 prósent á genginu 2,2 evrur
á hlut sem hefði þýtt að félagið væri 1,13
milljarða evra virði eða 99 milljarða íslenskra
króna. Munar þar töluverðu á tilboði Ryanair
núna, en ríkið hefur víst ekki í hyggju að selja hlut
sinn sem eftir stendur, jafnvel þótt það þýddi 500
milljónir evra í kassann.
Hagvöxtur minnkar í helstu hagkerfum
Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) segir flest
benda til að hagvöxtur muni minnka á næstunni
helstu hagkerfum í heimi. Kanada og Brasilía er
þar undanskilin en líkur benda til að hagvöxtur
þar muni aukast. Samanteknir hagvísar sem OECD
styðst við benda til að hagvöxtur sjö stærstu hag-
kerfanna innan OECD hafi dregist saman um
0,1 punkt á milli mánaða í ágúst, samkvæmt
staðli sem stofnun notar til útreikninganna.
Þetta er fimmti
mánuðurinn í
röð sem
hagvöxtur í
löndunum
dregst saman.
Peningaskápurinn ...