Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 38

Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 38
[ ]mannlegi þátturinn m an nl eg i þá tt ur in n Náttúrulæknirinn Matthildur Þorláksdóttir er orðin goðsögn í lifanda lífi. Reglulega heyrast ótrúlegar sögur af fólki sem hefur fengið lausn meina sinna með hennar aðstoð. Matthildur er heilpraktiker upp á þýsku - náttúrulæknir á íslensku. Hún nam fræði sín í Þýskalandi, þar sem náttúrulækningar eru kenndar í virtum akademíum. Námið tekur þrjú ár ásamt starfs- þjálfun á heilsugæslu eða stofnun til að fá löggildingu og starfsrétt- indi. Matthildur stundar alhliða náttúrulækningar, en það er eink- um greiningartækið fræga sem sögur fara af. Með því má mæla það sem er óáþreifanlegt og næsta óskiljanlegt, en tækið nemur ork- una í líkamanum. Þannig má greina alls kyns kvilla eins og fæðuóþol og orkustíflur. Ég heimsótti Matthildi á Náttúrulækningastofuna að Stór- höfða 17 og passaði upp á að ná hádegismatnum á matstofunni. Og þó ég sé ekki grænmetisæta get ég ekki hugsað mér betri mat en gratíneraða grænmetið hennar Hildar Hilmarsdóttur. Næsta mál var að hitta á Matt- hildi, sem er vægast sagt mjög upptekin kona, bókuð frá morgni til kvölds – og það eru engar líkur á að fólk klikki á að mæta þegar það er búið að bíða í marga mánuði eftir að fá tíma. Eftir heilmikla fyrirsát náði ég stuttu spjalli við Matthildi á milli sjúklinga. Ég vatt mér beint að kjarna málsins. Hvað er að fæðunni okkar – af hverju eru allir að greinast með fæðuóþol? „Fæðan er orðin svo mikið unnin hjá okkur - niðursoðin, hreinsuð, klóruð, söltuð, fitu- sprengd, lituð og sykruð. Svo er verið að auka framleiðsluna og þá eru notuð efni og aðferðir sem hafa áhrif á fæðuna – hormón, eitur og hver veit hvað?“ Og hvaða áhrif hefur það á okkur þótt fiktað sé í fæðunni? „Sko. Við vinnslu og hitun mat- væla, þá tapast ensímin úr fæð- unni. Ensímin eru nauðsynleg fyrir meltinguna. Þau sjá um að brjóta fæðuna niður, svo hún nýt- ist sem næring.“ En hvers vegna fer mjólkin svona illa í marga? „Langflestir þjást af mjólkur- óþoli og það er einmitt vegna þess hvað hún er yfirleitt mikið unnin – gerilsneydd, sykruð og fitu- sprengd. Ensímin vantar og við ráðum ekki við að brjóta niður próteinin. Það þola miklu fleiri líf- rænu mjólkina og t.d. getur ósæt ab-mjólk verið í lagi fyrir suma.“ En hvað með ger, sykur og hveiti? Hvers vegna fer það svona illa í marga? „Þessar fæðutegundir eru bara ofnotaðar og allt of mikið unnar. Þetta er í öllu og smátt og smátt myndast óþol þegar við fáum allt of mikið af einhverju. Þessar fæðutegtundir valda líka oftast starfsemistruflunum – þembu og loftgangi, hægðatregðu eða niður- gangi svo eitthvað sé nefnt.“ Einhver ráð að lokum? „Að fólk borði hreina og sem minnst unna fæðu og sem mest hrátt. Notið gróft korn og trefjar, kristalsalt eða sjávarsalt og góðar olíur. Og auðvitað sem mest hrátt grænmeti og ávexti og sem minnst kjöt. Passið ykkur samt á að borða ferska ávexti sér, en ekki t.d. sem eftirrétt eftir kjötmáltíð. Kjötið er svo lengi að meltast og þá er hætta á gerjun og leiðind- um. Nú, ef þið viljið eldaðan og unninn mat, skulu þið fá ykkur ensím í forrétt. Fáið ykkur hrátt og grænt salat á undan og nælið ykkur þannig í ensím til að melta það sem á eftir kemur.“ ao@khi.is Kraftaverkakonan með tækið Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir hefur hjálpað mörgum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Matthildur Þorláksdóttir vinnur með tæki sem getur greint ójafnvægi á orkuflæði líkamans. Það var fyrir 20 árum í Þýskalandi að hafin var framleiðsla á þessu merkilega greiningartæki sem nefnt eru Bioresonanz. Aðdrag- andinn var sá að starfsfólk á heilsugæslunni tók eftir því að engin skýring fannst á umkvört- unum fólks sem sagðist vera með kvilla og verki. Í ljósi áralangrar reynslu var litið svo á að hér væri um að ræða truflanir á starfsemi sem kæmu síðan fram í líkamleg- um kvillum. Var því farið að skoða hvernig greina mætti skilboðin áður en sjúkdómur yrði til. Þar með hófst samvinna náttúrulækna og hefðbundinna lækna við þróun þessarra tækja og fóru vísindaleg- ar undirstöðurannsóknir fram við deildir innan háskólanna í Heidel- berg og Württemberg. Hugmyndin að tækinu byggir á hinni 5000 ára gömlu kenningu kínverskra lækninga um orku- brautir líkamans. Þannig er að hvert hinna stærstu líffæra á sína orkubraut í báðum hliðum líkam- ans – þar eru orkubrautir lifrar og galls, hjarta og blóðrásar, ristils og smáþarma, lungna, maga, þvag- blöðru og nýrna, milta og briss. Orkubrautirnar tengjast á höfði, í höndum og fótum og tengja líkam- ann saman í eina heild, þar sem orkan á að flæða óhindrað ef allt er með felldu. Tækið fræga greinir ójafnvægi á orkuflæði líkamans og þar með truflanir á starfsemi í ákveðnum líffærum eða líffærakerfum. Þar sem orkubrautirnar mynda orku- tengingar milli líffæra, þá getur einnig verið um fjaráhrif að ræða, síendurteknar kinnholsbólgur eru ekki endilega staðbundin vand- kvæði heldur eru upptökin ef til vill í maganum, en magaorku- brautin byrjar undir augum og liggur eftir framanverðum líkama niður í tær. Einnig getur verið að starfsemi eins líffæris sé haldið niðri vegna áhrifa frá öðru í gegnum orku- tengingar. Einstaklingur kvartar til dæmis yfir tíðum þvaglátum og pirringi í þvagblöðru. Rannsóknir sýna hvorki sýkingar né önnur frávik. Ofangreint tæki sýnir truflun á orkuflæði í ennisholum – blöðruorkubraut liggur frá auga- brúnum niður bak og fætur, og myndar þar með orkutengingar milli þessara líffæra. Nálgun þessi byggir á heild- rænni meðferð þar sem tekið er mið af ytri og innri þáttum manns- ins og reynt að greina þá þætti sem valdið geta röskun á líkams- starfsemi. Segir fyrir um sjúkdóma Ásdís Olsen með tækið sem greinir ójafnvægi á orkuflæði líkamans. Fæðuofnæmi er algengara en margir halda. Með því að borða rétt er oft hægt að fá bót sinna meina. Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja í það ef Fréttablaðið kemur einhverntímann ekki. 550 5600 Ekkert blað? - mest lesið ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.