Fréttablaðið - 07.10.2006, Side 50
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
Hinn 17. október næstkomandi
verður haldinn fyrirlestur á vegum
Íþróttaakademíunnar í Reykjanes-
bæ sem ber heitið „Líkamsþjálfun
kylfinga“. Það sem vekur einna
mesta athygli er að Guðjón Berg-
mann, sem hingað til hefur verið
þekktur fyrir ýmiss konar námskeið
tengd lífsstíl og heilsu, jógakennslu
og hugleiðslu, er annar tveggja fyr-
irlesara - þrátt fyrir að hann hafi
aldrei stundað golf af neinu viti.
„Það kannski skýtur svolítið
skökku við en ég mun koma inn
á þætti sem ég kann vel inn á og
skipta miklu máli í golfi. Þetta
eru þættir eins og líkamsbeiting,
samhæfing, teygjur, öndun og
einbeiting,“ sagði Guðjón þegar
Fréttablaðið spurði hann um fyrir-
lesturinn.
„Upphitunar- og teygjuæfingar
eru gríðarlega stór þáttur í hvaða
íþrótt sem er og þar er golfið engin
undantekning. Kylfingar eiga það
til að fá í bakið og það má oft rekja
til þess að þeir hefja strax að slá
boltann án þess að hita neitt upp.
Svona meiðsli geta orðið ansi
óþægileg og langlíf en ég vil meina
að það sé auðveldlega hægt að
koma í veg fyrir þau með fáum og
einföldum æfingum,“ útskýrir Guð-
jón og bætir því við að þessi ráð
eigi ekki síður við þá sem stunda
golf stöku sinnum sem áhugamál
en þá sem beinlínis æfa golf og það
af krafti.
Fyrr á þessu ári var gefið út
plakat sem hannað var af Guðjóni
og Brynjari Gestssyni, golfleiðbein-
anda hjá Íþróttaakademíunni. Á því
má finna útskýringar á nokkrum vel
völdum æfingum sem Guðjón segir
að kylfingar ættu að kynna sér. „Í
golfinu eru ákveðin álagssvæði á
líkamanum, svæði sem hafa gjarn-
an liðamót. Þetta er meðal annars
mjóbakið, mjaðmirnar, hálsinn og
axlirnar. Þótt áreynslan í golfinu sé
kannski ekki eins mikil og í mörg-
um öðrum íþróttum þarf nauðsyn-
lega að hita vöðvana upp og síðan
losa um spennu í þeim þegar maður
er hættur að slá.”
Spurður af hverju hann hafi
sjálfur ekki fengið golfbakteríuna
segir Guðjón að ástæðan fyrir því
sé einföld – hann leyfi sér það ekki.
„Það er vegna þess að ég veit að
ég mun verða veikur fyrir því,“
útskýrir hann hlæjandi og bætir því
við að það sé einfaldlega of mikið
að gera hjá sér til að það sé pláss
fyrir golfið. Hann kveðst þó kunna
ýmislegt fyrir sér í golfinu.
„Mér var gefin golfkylfa fyrir
nokkrum árum og var einnig kennt
að beita mér rétt í sveiflunni.
Í kjölfarið lék ég mér talsvert að
því að slá eitt sumarið og ég held
að ég geti fullyrt að jóga sé fínn
grunnur fyrir golfið því ég held að
ég hafi hitt kúluna í nánast hvert
einasta skipti.“
Upphitun skiptir mjög
miklu máli í golfi
Guðjón Bergmann gefur kylfingum góð ráð
Segir kylfinga eiga það til að fá í bakið en að hægt sé að koma í veg fyrir slík meiðsli með því að stunda fáar og einfaldar daglegar æfingar.
Guðjón heldur fyrirlestur um rétta líkamsbeitingu í golfi hinn 17. október næstkomandi.
Ingibjörg á sér nokkra uppáhalds
útivistarstaði á Íslandi. „Mér finnst
til dæmis alveg æðislegt að keyra
aðeins vestur í áttina að Snæfells-
nesinu og fá mér göngutúr þar,“
segir hún.
Sá staður sem er í langmestu
uppáhaldi hjá Ingibjörgu er Hall-
ormsstaðarskógur. „Mér finnst frá-
bært að týna mér í skóginum og
reyni að fara þangað eins oft og ég
get, helst einu sinni á ári.“ Ingibjörg
bjó í Hallormsstaðarskógi um tíma
þegar hún var yngri svo hún þekkir
vel til þar. „Þetta eru mínar æsku-
slóðir og Austfirðirnir eru einstakt
svæði.“
Þó að Ingibjörgu finnist gott að
komast út á land annað slagið er
hún líka mjög hrifin af Reykjavík.
„Mér finnst frábært að labba um
borgina, meðfram sjónum og út á
Gróttu og njóta útsýnisins þar.“ - eö
Austur á hverju ári
Ingibjörg Stefánsdóttir jógakennari reynir að komast út í náttúruna annað slagið.
Ingibjörg hefur gaman af því að
ganga út á Gróttu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
�� ��������
�� �����������
�� ��������������������� �
� ���������������������������
�� ������������������������������
� ���������
�� ���������������������������
�� �������������������������� �
�� �������������������
� �����������
��������������������
����
��������
����������������������������������������
��
����������������������������
����
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
EKKI VERA ÞINN
VERSTI ÓVINUR
Allir hafa hæfileika. Finndu þína og ræktaðu.
Ekki gefast upp. Leitaðu hjálpar ef þú þarft.
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Lífrænar hársnyrtivörur við flösu og hárlosi
Actigener er framleitt úr lífrænum plöntuefnum
Fagurfífill, hörfræolía, brekkusóley, gullblómi, hvítlaukur, gulrætur, kókoshnetuolía, húspuntur, kamilla og vatnakarsi.
Actigener hársnyrtivörur
eru unnar eftir 50 ára
gamalli náttúrulegri
uppskrift sem hefur hlotið
fjölmörg verðlaun
fyrir góða virkni
Vinna á flösu og kláða
Minnka hárlos
Örva hárvöxt
Auka blóðflæði í hársverðinum
Virka vel gegn exemi og psoriasis
Gefa hárinu mjög mikla fyllingu
Fæst í flestum apótekum