Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 73
LAUGARDAGUR 7. október 2006
Akureyrarveikin er vel þekktur
og skráður sjúkdómur. Hún geng-
ur undir heitinu Akureyri disease
eða morbus Akureyriensis í alþjóð-
legum læknaritum en er þó stund-
um jafnframt eða einvörðungu
skráð undir nafninu Iceland
disease, Íslandsveikin.
Akureyrarveikin var smitsjúk-
dómur í flokki þeirra sem nefndir
eru myalgic encephalomyelitis,
stytt sem ME. Nafnið gefur til
kynna að sjúkdómarnir lýsi sér
sem verkir í vöðvum og beinum og
einkennum frá heila eða mænu.
ME-sjúkdómar geta birst sem stök
sjúkdómstilfelli en einnig sem
staðbundnir faraldrar.
Útbreiðsla sjúkdómsins
Fyrsta tilfelli Akureyrarveikinnar
var greint í nágrenni Akureyrar í
september árið 1948 og breiddist
veikin út á næstu mánuðum. Á
þessum tíma voru íbúar Akureyr-
ar 6.900 talsins en alls veiktust þar
465 manns eða tæp 7%. Veikin
barst svo víðar, meðal annars til
Sauðárkróks, Hvammstanga og
Ísafjarðar, en stök tilfelli með ein-
kennum veikinnar komu upp nán-
ast um allt land. Veikin fjaraði svo
smám saman út og engin ný tilfelli
voru skráð á Akureyri eftir febrú-
armánuð árið 1949. Annars staðar
gætti veikinnar síðar og þá oftast
sem stakra tilfella, en staðbundnir
faraldrar með einkennum Akur-
eyrarveikinnar urðu þó á Þórs-
höfn og Patreksfirði. Engin ný til-
felli voru greind eftir árið 1955.
Einkennin
Þótt Akureyrarveikin væri ekki
bráðsmitandi varð hún algeng á
heimavist Menntaskólans á Akur-
eyri og í nokkrum fjölskyldum í
bænum veiktust margir. Eins og
alsiða var á þessum tíma var reynt
að hefta útbreiðslu faraldursins
með lokunum og takmörkun á
umgangi.
Akureyrarveikin lýsti sér með
sótthita sem vildi verða langvinn-
ur hjá mörgum. Þá fylgdu henni
vöðva-, bein- og liðverkir, særindi
í hálsi og óþægindi í meltingar-
vegi. Höfuðverkur var algengur
og sömuleiðis verkur og stífleiki í
hálshrygg. Hinir veiku svitnuðu
mikið og fundu fyrir streitu og
kvíða. Flestir urðu dofnir eða
máttlausir í hluta líkamans, svo
sem í annarri hlið hans eða útlim-
um. Einnig bar á breyttri meðvit-
und, annaðhvort að styrk eða eðli,
eða hvorutveggja.
Orsökin óljós
Þótt orsök Akureyrarveikinnar
hafi aldrei verið fullkomlega ljós
fór ekkert á milli mála að um raun-
verulegan vefrænan sjúkleika var
að ræða en ekki kvíðaspennu eina
saman. Hins vegar óttuðust marg-
ir hinna veiku að þeir væru komn-
ir með lömunarveiki sem gekk
reglulega hérlendis á þessum
tíma, en þeim sjúkdómi fylgdi oft
veruleg fötlun og jafnvel dauði.
Engin dauðsföll
Allir lifðu Akureyrarveikina af.
Einkenni frá taugakerfi önnur en
þreyta urðu ekki viðvarandi en
þeirra vildi gæta að nýju ef til
komu hitapestir síðar á ævinni. Þó
náðu aðeins 15% sjúklinga fullum
bata en það tók langan tíma, jafn-
vel allt að tveimur árum. Um 60%
þeirra sem veiktust náðu allgóð-
um bata utan þess að búa við skert
úthald eða óeðlilega mikla þreytu.
Þessir einstaklingar hafa ekki
látið ástandið hafa of mikil áhrif á
lífshlaup sitt þótt vissulega hafi
þreytan raskað lífsgæðum þeirra
að einhverju marki.
Afleiðingar veikinnar
Um 25% þeirra sem fengu Akur-
eyraveikina náðu ekki góðum
bata. Þeir hafa búið við mikla
þreytu og hjá flestum hefur þró-
ast vefjagigt sem svo hefur aukið
á þreytuna. Lífsgæði þessa fólks
skertust verulega sökum veik-
indanna og hefur það orðið að
sníða lífsáætlanir sínar og lífs-
háttu eftir þreytuástandinu.
Nýlegar rannsóknir
Vísbendingar um afleiðingar veik-
innar lágu fyrir strax árið 1955 og
hefur sú niðurstaða síðan verið
enn frekar staðfest með rannsókn-
um. Á árunum 1985 til 2000 var
kannaður stór hópur þeirra sem
sannanlega fengu Akureyrarveik-
ina og framvinda sjúkdómsins og
batatölur staðfestar. Jafnframt
kom í ljós að lífshlaup þeirra sem
Akureyrarveikina fengu hefur
verið hið sama og annarra Íslend-
inga hvað varðar sjúkdóma, ævi-
lengd, menntun og félagslega
stöðu. Undanskilinn er lítill hluti
hópsins sem ekki hefur náð viðun-
andi bata og búið við örorku og
skerta getu til náms og starfa. Það
er þreytan sem skert hefur hæfn-
ina hjá þessu fólki til þess að nýta
eðlilega hugræna og líkamlega
getu.
Vefjagigt og parkinsonsveiki
Sérstaklega var rannsakaður stór
hópur þeirra sem aldrei hafa jafn-
að sig að fullu. Þeir eru nánast
allir með vefjagigt og oft þreyttir
bæði andlega og líkamlega. Í
hinum almenna skilningi er þetta
fólk samt sem áður heilbrigt þótt
ekki hafi það orku til hugrænna og
líkamlegra athafna nema í stutta
stund hverju sinni.
Athygli vakti að úr hópi Akur-
eyrarveikisjúklinga voru fleiri en
vænta mátti sem á unga aldri
fengu sum einkenni lamariðu –
parkinsonsveiki – eða sem þá nefn-
ist Parkinsonismus, en einkenni
lamariðu eru vel þekkt sem mögu-
leg afleiðing heilabólgu.
Akureyrarveikin var líklega skyld
lömunarveiki
Telja má víst, þótt ekki verði það
sannað, að Akureyrarveikin hafi
verið veirusjúkdómur og senni-
legast tilkomin af veiru skyldri
polio-veirunni sem veldur lömun-
arveiki. Það styður þetta að þeir
sem fengu Akureyrarveikina svör-
uðu sterkar bólusetningu gegn
lömunarveiki en þeir sem ekki
höfðu veikst, en slík bólusetning
hófst árið 1956. Sömuleiðis hefur
engin hliðstæða Akureyrarfarald-
ursins komið upp hér eftir 1956;
hafi bólusetningin gert fólk ónæmt
ekki einungis fyrir lömunarveiki
heldur einnig Akureyrarveikinni
bendir það til þess möguleika að
um skyldar veirur sé að ræða.
Með því að setja orðin „Akur-
eyri disease“ inn í leitarvél á Ver-
aldarvefnum má finna lesefni um
reynslu annarra þjóða af þessum
sjúkdómi eða öðrum sem eru
skyldir honum.
Sverrir Bergmann, læknir
Hvað er
Akureyrarveikin?
�������������
���������������
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau
nefnast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga
sem glímt hefur verið við að undanförnu eru: Hafa auglýsingar síður áhrif á
greint fólk, hvað er eldgos heitt, hvað verður um sjóinn þegar það er fjara,
hvaðan kemur nafnorðið og sagnorðið græja og af hverju svitnar maður
þegar maður er kvíðinn eða stressaður? Hægt er að lesa svör við þessum
spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
Merrild 103
Me›alrista›
gæ›akaffi
Fæst nú í heilbaunum!
Hefur flú prófa›?
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
4
6
2