Fréttablaðið - 07.10.2006, Síða 76
7. október 2006 LAUGARDAGUR36
Klara er skarpleit og glað-leg kona á besta aldri sem ber það með sér að vera
röggsemdarkona til verka. Og það
er ekki á henni að heyra að hún
hafi dvalið lungann af ævinni
erlendis; íslenskan er kórrétt og
hvergi hreim að heyra. „Ég hef
vissulega verið mikið innan um
Íslendinga gegnum tíðina en samt
skil ég ekki fólk eins og ég hef
rekist á, sem er næstum búið að
tapa niður málinu eftir nokkurra
ára dvöl erlendis,“ segir Klara og
það er ekki laust við að hún sé
hálfhneyksluð á þessum löndum
sínum.
Hostal Hekla
Hún var ekki nema átta ára gömul
þegar hún kom fyrst til Spánar en
það var árið 1959. Foreldrar henn-
ar, Baldur Jónsson kaupmaður og
Hansína Helgadóttir, ákváðu að
flytja til Spánar, Baldri til heilsu-
bótar. Og bærinn Tossa de Mar á
Costa Brava-ströndinni skammt
frá Barcelona varð fyrir valinu
því þar bjó þá frændi Hansínu,
Magnús Kristjánsson listmálari
og hótelhaldari. „Magnús hafði
lent í Tossa fyrir tilviljun, hann
var á ferð um Spán ásamt nokkr-
um kunningum sínum árið 1956 og
þeir komu við í þessum litla
strandbæ, og þar hitti hann stúlku
og það var bara ást við fyrstu
sýn,“ segir Klara og hlær.
Magnús varð því eftir í Tossa
og sneri ekki aftur heim til Íslands
til búsetu. Hann setti upp gistihús
í bænum, Hostal Hekla og rak það
til dauðadags ásamt konu sinni, en
það er önnur saga.
Fengu berkla af mjólk
Dvöl Baldurs og fjölskyldu í Tossa
varð þó heldur styttri en til stóð
því Klara og Björk systir hennar
veiktust illilega skömmu eftir að
þær komu. „Á þessum tíma var
mjólk ekki komin á flöskur heldur
keyptum við bara mjólk í brúsa
hjá konu í götunni þar sem við
bjuggum og það er haldið að við
höfum fengið berkla af henni.“
Og þar sem spánskir læknar
voru hálfráðalausir gagnvart þess-
um veikindum systranna sáu þau
Baldur og Hansína sér ekki annað
fært en að fara aftur til Íslands til
að koma þeim undir læknishend-
ur. Og það tókst giftusamlega því
systurnar náðu báðar fullri heilsu
á ný þótt þær ættu við þessi veik-
indi að stríða um nokkurt skeið.
En draumur foreldranna um nýtt
líf á Spáni var fyrir bí.
Fann ástina í Tossa
Tengslin þangað suður eftir héld-
ust þó áfram og sumarið 1967 fór
bróðir Klöru til frændfólks síns í
Tossa til vinnu. „Og hann kom
aftur og sagði mér að þetta væri
alveg geggjað,“ segir Klara án
þess að blikna. „og það varð úr að
ég útvegaði mér vinnu hér í Tossa
sumarið 1969 og það má segja að
ég hafi lítið farið heim aftur eftir
það,“ bætir hún brosandi við.
Hún fór aftur til Tossa árið
eftir og enn árið 1971 og dvaldi þá
veturlangt. Og Klara fann ástina i
Tossa eins og Magnús frændi
hennar hafði gert. „Já, já maður-
inn minn er héðan og heitir Frans-
esco Casadesús og við giftum
okkur 1973,“ útskýrir Klara.
Frank Sinatra og Ava Gardner
Hún segir mikið líf og fjör hafa
verið í Tossa á þessum árum og
túrisminn í miklum blóma. „Túr-
isminn byrjaði fyrir alvöru hér í
Tossa upp úr 1950 eftir að Holly-
wood-myndin Pandora and the
Flying Dutchman var tekin upp
hér með þeim Frank Sinatra og
Ava Gardner í aðalhlutverkum, og
sagan segir að hann hafi beðið
hennar hér,“ segir Klara íbyggin á
svip. „Og það er stytta af Ava
Gardner hér uppi í kastalanum,“
bætir hún við og bendir.
Hippamenningin var í hámarki
um 1970 og setti sinn svip á Tossa
að sögn Klöru. „Ungt fólk var
mikið á ferðinni og hingað komu
krakkar og hippar frá öllum
heimshornum og maður kynntist
fjöldanum öllum af skemmtilegu
fólki. Og það er svo merkilegt
hvað margir hafa haldið tryggð
við bæinn; sumt af þessu fólki er
hér enn og annað kemur hingað
reglulega og maður rekst iðulega
á það niðri á strönd,“ segir hún og
brosir hlýlega að þessum gömlu
minningum.
Þrír mánuðir
orðnir 33 ár
BARA AÐEINS LENGUR Klara Baldursdóttir og eiginmaður hennar Fransesco Casadesús opnuðu fyrsta barinn árið 1979. Þremur
árum síðar opnuðu þau Klörubar á Kanaríeyjum. En í upphafi ætluðu þau aðeins að dvelja þar í þrjá mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/SÞS
Flestir Íslendingar sem dvalið hafa á Kanaríeyjum
kannast við kennileitið Klörubar á ensku strönd-
inni sunnan til á Gran Canaria. Barinn heitir eftir
öðrum eiganda sínum Klöru Baldursdóttur en
Klara hefur rekið hann frá stofnun eða í tæpan
aldarfjórðung. Sigurður Þór Salvarsson hitti Klöru
að máli í bænum Tossa de Mar á Spáni þar sem
Spánarævintýri hennar hófst fyrir tæpum fimm-
tíu árum.
Þrír mánuðir orðnir 33 ár
Klara og Fransesco maður hennar
hófu feril sinn sem veitingamenn í
Tossa en örlögin höguðu því svo til
að það varð ekki til framtíðar.
Þannig var að íslenska ferða-
skrifstofu vantaði skyndilega far-
arstjóra suður á Costa del Sol
haustið 1973 og samband var haft
við Klöru og hún beðin að hlaupa í
skarðið. „Við slógum til og keyrð-
um suður eftir og ég var að vinna
þarna í fimm eða sex vikur og í
framhaldi af því var mér svo boðin
vinna á Kanaríeyjum. Það stóð nú
aldrei til hjá okkur að vera þar
lengur en þrjá mánuði en þetta eru
orðin 33 ár,“ segir Klara og hlær
dátt að duttlungum örlaganna.
Klörubar í nærri aldarfjórðung
Reyndar koma þau hjónin alltaf
reglulega til Tossa enda eiga þau
hús þar og maður hennar ættingja.
En síðustu fimmtán árin hafa þau
nánast verið allan ársins hring á
Kanaríeyjum. „Við fórum fljótlega
út í veitingarekstur þarna suður
frá, opnuðum fyrsta barinn okkar
1979 og síðan opnuðum við Klöru-
bar í nóvember 1982,“ rifjar Klara
upp hugsi.
Barinn er í verslunarmiðstöð
sem heitir Yumbo Center og þau
hjónin keyptu aðstöðu í húsinu
meðan það var í byggingu en þetta
er stærsti verslunarkjarninn á
ensku ströndinni með um 350
verslanir og veitingastaði. „Við
vorum þau fyrstu sem opnuðum
þarna,“ segir Klara stolt, en bætir
við að reksturinn hafi vissulega
verið erfiður fyrstu árin. „Nú er
þetta hins vegar mest sótta versl-
unarmiðstöð svæðisins þannig að
það hefur breyst verulega.“
Félagsmiðstöð og
upplýsingaþjónusta
Klörubar varð fljótt afar vinsæll
samkomustaður meðal Íslendinga
á Kanaríeyjum og hefur verið það
æ síðan. „Það má segja að staður-
inn sé nokkurs konar félagsmið-
stöð og upplýsingaþjónusta Íslend-
inga þarna suður frá,“ segir Klara
hreinskilnislega.
Hún hefur líka lagt sig eftir því
að laða Íslendinga að staðnum með
því að bjóða upp á íslenska
skemmtikrafta en margir af þekkt-
ustu tónlistarmönnum og skemmti-
kröftum þjóðarinnar hafa ein-
hvern tímann á ferlinum troðið
upp á Klörubar.
Svo eru veislurnar á Klörubar
um jól og páska víðfrægar. „Þá
erum við með rammíslenskan
hátíðarmat, hangikjöt og hamborg-
arhrygg og allt sem því tilheyrir,“
segir Klara stolt og bætir því við
að ekki megi gleyma Þorláksmess-
unni. „Hún er alveg geysilega vin-
sæl hjá okkur og það eru oft um
tvö hundruð manns sem borða þá
hjá okkur. Og við bjóðum að sjálf-
sögðu upp á skötu með hamsatólg,
hnoðmör og öllu tilheyrandi og
líka saltfisk fyrir þá sem ekki vilja
skötuna.“
Hætta eftir tvö ár
En allt tekur enda um síðir og ef
guð lofar ætla Klara og Fransisco
að selja rekstur Klörubars eftir
tvö ár og setjast í helgan stein.
„Við erum farin að fullorðnast og
maður á ekki að vera að slíta sér
út alveg til dauðadags ef maður
þarf þess ekki. Þetta er auðvitað
ægilega slítandi starf. En það er
ekki þar með sagt að maður hætti
öllu, maður verður alltaf að vera
að fást við eitthvað,“ segir Klara
Baldursdóttir og brosir íbyggin á
svip. ■
„Og það er svo merkilegt hvað margir hafa haldið
tryggð við bæinn; sumt af þessu fólki er hér enn og
annað kemur hingað reglulega og maður rekst iðulega
á það niðri á strönd.“
Kanaríeyjar eru sjö
• Gran Canaria, höfuðborg Las
Palmas de Gran Canaria
• Tenerife, höfuðborg Santa Cruz de
Tenerife
• Lanzarote, höfuðborg Arrecife
• La Palma, höfuðborg Santa Cruz
de La Palma
• La Gomera, höfuðborg San
Sebastián de La Gomera
• El Hierro, höfuðborg Valverde
• Fuerteventura, höfuðborg Puerto
del Rosario
…
Kanaríeyjar tilheyra Spáni, en hafa
verið undir sjálfsstjórn síðan 1982.
Borgirnar Las Palmas og Santa
Cruz teljast báðar sem höfuðborg
eyjanna. Hver eyja fyrir sig lýtur
stjórn þings sem kallast cabildo
insular. Forseti Kanaríeyja er Adán
Martín Menis.
…
Tæpar tvær milljónir búa á
Kanaríeyjum sem eru tæplega
7.500 km².
…
Rúm 30 prósent af vergri
þjóðarframleiðslu eyjanna kemur
frá ferðamannaiðnaðnum.
…
Gjaldmiðillinn á Kanaríeyjum eru
Evrur
KANARÍEYJAR