Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 93

Fréttablaðið - 07.10.2006, Page 93
LAUGARDAGUR 7. október 2006 53 Dagskrá Norrænna músíkdaga gleður ekki aðeins hlustir gesta sinna því í kvöld frumflytur DANSleikhúsið þrjú verk eftir íslenska danshöfunda sem eru sér- staklega samin við nýsmíðar tón- skáldanna, auk þess sem eitt tón- skáldanna mun leika listir sínar í meira en einum skilningi. Danshöfundurinn Jóhann F. Björgvinsson flytur verk sitt „Piece of Me“ ásamt þremur döns- urum en hann stígur nú á sviðið eftir að hafa tekið sér frí frá dans- inum sjálfum í tvö ár. „Ég fékk að velja milli tónverka og valdi verk eftir kanadíska tónskáldið Lean Francois Laporte. Hann er mjög óvenjulegur listamaður sem býr til sín eigin hljóðfæri en ég heillaðist af hljóðheiminum sem hann skap- ar,“ segir Jóhann og útskýrir að Leoporte spili til dæmis á rör og noti loftpressu til þess að blása upp blöðrur og þá myndar titringurinn ryþma og hljóð sem vísa í allt frá orrustuflugvélum til hvala. Jóhann kynnti sér verk tón- skáldsins og síðan sömdu þeir verk sín hvor í sínu lagi en þau smullu vel saman þegar kom að því að kynna þau. Tónskáldið mun síðan taka þátt í flutningi verksins ásamt hljóðfæraleikaranum Marin Quellet og bresku söngkonunni Caroline Quist. „Það er mjög sjald- gæft að tónlistin sé leikin og flutt á sviðinu en það er alveg ótrúlega gaman og gefandi. Samspilið er allt öðruvísi og það skapar ákveðna spennu að hafa tónlistarmennina á sviðinu – maður verður að hlusta vel og vera vakandi, möguleikarn- ir eru endalausir því þó að dansinn sé fyrir fram ákveðinn myndast meira rúm fyrir tjáninguna.“ Þetta er einstakt tækifæri til þess að sjá spennandi dans- og tónverk spila saman því eins og Jóhann bendir á verður viðburð- urinn ekki endurtekinn. „Ég vinn verkin míin þannig að það er varla hægt að setja þau upp aftur. Ég nota mikið af vökva en í þessu verki nota ég hlaup,“ segir hann og útskýrir að hluti sviðsmyndar- innar séu sextíu mannshjörtu steypt í hlaup sem tekið hefur tvær vikur að útbúa. Verkið fjall- ar um ástina og því er viðeigandi að hafa hjörtu á sviðinu. „Innblásturinn að verkinu er ástin og náungakærleikurinn, að maður geti elskað allt og alla án þess að þekkja viðkomandi eða tengjast honum.“ Auk Jóhanns dansa Guðrún Óskarsdóttir, Þórdís Schram og Inga Maren Rúnarsdóttir í verk- inu en það verður flutt í Verinu í Loftkastalanum kl. 20 í kvöld. Þar verða ennfremur flutt verk eftir danshöfundinn Irmu Gunnars- dóttur og tónskáldið Jukka Ruo- homäki, verk Höllu Ólafsdóttur við tónsmíðar Hildar Guðnadóttur auk þess sem tónskáldið Johannes Bergmark flytur verk sitt „Stringed Stirrups“. Norrænir músíkdagar standa yfir til 14. október en nánari upp- lýsingar um fjölbreytta dagskrá þeirra má finna á heimasíðunni www.listir.is. - khh Hjörtun á sviðinu DANSHÖFUNDURINN JÓHANN F. BJÖRGVINSSON Flytur verk sitt á Norrænum músík- dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Aðeins í SkjáBíói getur þú leigt nýjustu bíómyndirnar og fengið ókeypis barnaefni með einum takka á fjarstýringunni. Frítt NÝTT UNDERWORLD:EVOLUTION NÝTT NÝTT Væntanlegt Væntanlegt SÝNISHORN AF NÝJUM OG VÆNTANLEGUM MYNDUM HÁLFVIRÐI! ÞÚ SÉRÐ ÞAÐ Á MORGUN Vildarklúbbur 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.