Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 44
24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR12
Sveitabærinn Hólmur við Kirkjubæjarklaustur. Hér var fyrsti verkmenntaskólinn á Íslandi til húsa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÓNARHORN
TOPP5: JAMIE LEE CURTIS
Leikkonan Jamie Lee Curtis (1958) er dóttir leikar-
anna Tony Curtis og Janet Leigh, sem er sjálfsagt
þekktust fyrir hlutverk sitt í hrollvekjunni Psycho
(1960). Það er því vel við hæfi að Curtis skyldi
fyrst vekja athygli á sér í annarri heimsþekktri
hryllingsmynd, það er Halloween (1978). Curtis
lék í kjölfarið í nokkrum blóðugum hrollvekjum
og um tíma benti flest til að hún ætti ekki eftir að
fá hlutverk í annars konar myndum. Með gaman-
myndinni Trading Places (1983) sýndi Curtis
hins vegar að henni var meira til lista lagt en að
öskra úr sér lungun og í kjölfarið tóku tilboðin að
streyma til hennar. Hápunkti ferilsins var síðan
náð á seinni hluta 9. áratugarins með myndum á
borð við A Fish Called Wanda (1988).
1. True Lies (1994). Njósnari (Arnold Schwarzenegg-
er) grípur til róttækra ráða þegar hann fer að
gruna eiginkonu sína um framhjáhald. Curtis fer á
kostum í hlutverki eiginkonunnar. Lengi vel stóð til
að gera framhald, en það fór út um þúfur vegna
stjórnmálaþátttöku aðalleikarans.
2. A Fish Called Wanda (1988). Fjórir afar ólíkir
glæpamenn sameina krafta sína í bankaráni en
ákveða síðan að svíkja hvern annan. Bráðfyndin
gamanmynd með einvalaliði leikara, sem tilnefnd
var til fjölda verðlauna og uppskar meðal annars
Óskarsverðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki
karla (Kevin Kline).
3. Halloween (1978). Með þessari mynd var
ákveðnum þáttaskilum náð í gerð hrollvekja, þar
sem atburðarásin var í fyrsta sinn staðsett í hinum
venjubundna veruleika, sakleysislegu úthverfi í
smábæ. Curtis feiknagóð í aðalhlutverkinu sem
hún endurtók þrisvar sinnum, fyrst 1980, svo
1998 og loks 2003.
4. Trading Places (1983). Tveir ósvífnir milljarða-
mæringar víxla hlutverkum ríks uppskafnings og
fátæks þrjótar til að sjá hvernig þeir muni reiða
sig af. Frammistaða Curtis í hlutverki kjaftforu
vændiskonunnar Opheliu færði henni meðal
annars Bafta-verðlaun. Myndin vakti ekki síður
athygli á öðrum leikara að nafni Eddie Murphy.
5. Prom Night (1980). Grímuklæddur morðingi
hrellir hóp ungmenna, sem grunuð voru um að
hafa borið ábyrgð á dauða lítillar stúlku nokkrum
árum áður. Þótt myndin sjálf þyki kannski ekkert
stórvirki, er hún í hávegum höfð hjá hrollvekju-
unnendum og Curtis fín í hlutverki systur látnu
stúlkunnar.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
�����������������������
��������������������������������������������������
���������������������������������������
������������������������������� �������������
�������������������������������
��
�
�
�
�
��
�
��
�
�
��
��
�
�
�
��
�
��
�������� �����������������������