Fréttablaðið - 03.11.2006, Síða 22
Greina má áherslumun
frambjóðenda í umhverfis-
málum en vitanlega er mik-
ill samhljómur í svörunum,
segir Ólafur Þ. Harðarson
prófessor um svör fram-
bjóðenda Samfylkingarinn-
ar í suðvesturkjördæmi.
Frambjóðendur í þrjú efstu
sætin voru spurðir tíu af-
dráttarlausra spurninga.
Frambjóðendur í prófkjöri reyna
öðru fremur að vinna kjósendur á
sitt band með því að sannfæra þá
um ágæti sitt í að fylgja eftir mál-
efnum stjórnmálaflokksins sem
um ræðir í hvert skipti. Svör
frambjóðenda að þessu sinni
draga fram skýran málefnalegan
samhljóm, um leið og þau skerpa
óeiningu um mikilvæg mál.
Fyrirhuguð stækkun álvers
Alcan í Straumsvík fellur fram-
bjóðendum misjafnlega í geð á
meðan allir eru sammála um að
íslensk stjórnvöld verði að huga
betur að frekari aðgerðum vegna
loftslagsbreytinga. Þetta gefur
kjósendum ágætar vísbendingar
um málefnastöðu segir Ólafur
Harðarson, prófessor í stjórn-
málafræði. „Kosningar í próf-
kjörum snúast sjaldnast um raun-
veruleg átök um hugsjónir og
málefni heldur miklu frekar
hvaða frambjóðendum kjósendur
treysta best til þess að framfylgja
stefnu flokka. Það má greina
áherslumun í umhverfismálum af
svörum frambjóðenda en annars
er nokkuð mikill samhljómur í
svörunum. Þó má vera að lesend-
ur, sem að einhverju leyti eru
einnig kjósendur, greini ákveðinn
mun á framsetningu svaranna
sem gefur óljósa vísbendingu um
það hvernig frambjóðendur komi
til með að fjalla um og framfylgja
hugmyndum sínum. Það getur
skipt sköpum í stjórnmálum.“
Eðlilegt er að jafnaðarmönn-
um sé vaxandi ójöfnuður hér á
landi hugleikinn. Eins og í svör-
um frambjóðenda í Suðurkjör-
dæmi, má greina áhyggjur fram-
bjóðenda af ójöfnuðinum og vilja
þeir flestir gera umtalsverðar
breytingar á skattkerfinu. Ólafur
segir þessar hugmyndir ekki
koma á óvart. „Það er eðlilegt að
jafnaðarmenn einblíni á þessa
þætti og kjósendur horfa vafalít-
ið til þess í kosningunum.“
Óeining um stækkun álvers
H L U T H A F A F U N D U R C C P h f .
Hluthafafundur CCP hf., kt. 450697-3469, Grandagarði 8, 101 Reykjavík,
verður haldinn að Grandagarði 8, 101 Reykjavík, þann 10. nóvember 2006
og hefst hann kl. 17:00.
D A G S K R Á
Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum
félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 200.000 að nafnvirði með
útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 1 ár og má einungis nota í tengslum við
kaup á fyrirtækjum. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að
þessum nýju hlutum.
Kosning eins varamanns í stjórn félagsins.
Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn CCP hf.
I.
II.
III.