Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 30
Snyrtið kjötið og leggið í rauðvínið
í 24 tíma. Þerrið það og veltið upp
úr piparblöndunni. Pakkið inn í
plast og geymið í kæli í að minnsta
kosti 5 sólarhringa. Skerið í þunn-
ar sneiðar.
Skerið tómatana og ostinn í sneiðar
og raðið upp í turn. Saxið basil og
stráið yfir ásamt salti og látið olíu
drjúpa yfir.
Ristið hvítlaukinn í olíunni í litl-
um potti. Setjið í matvinnsluvél
ásamt sykri og edikinu og maukið
vel.
Pískið saman og veltið kjötinu
upp úr leginum.
Setjið allt í matvinnsluvél í sirka
5 mínútur. Hellið í bakka, veltið
kjötinu upp úr og þrýstið vel utan-
um kjötið. Setjið í 180° heitan ofn
í 13 mínútur og hvílið í fimm mín-
útur áður en kjötið er borið fram.
Bakið kartöflurnar heilar í ofni.
Ólífur, tómatar og kapers er
maukað í blandara. Þegar kartöfl-
urnar eru bakaðar eru þær skorn-
ar í tvennt og skafið innan úr og
blandað saman við ólífumaukið.
Blandaðir sveppir eins og kantar-
ellur, shitaki og kóngasveppur
eru hreinsaðir vel og steiktir í
pönnu með smjöri og hvítlauk.
Sjóðið soðið og rjómann niður um
2/3 með brandíinu. Þeytið köldu
smjörinu út í og kryddið með salti
og pipar.
Fjöruborðið á Stokkseyri
er frægt fyrir sína ljúffengu
humarsúpu og fleira í þeim
dúr. Veitingamaðurinn Róbert
Ólafsson valdi samt að elda
tvo aðra freistandi rétti fyrir
Fréttablaðið, báða úr kjöti.
Róbert leggur sig fram um að
velja matvæli úr héraðinu í sína
eldamennsku enda er þar ekki í
neitt kot vísað. Hvort sem um er
að ræða sjávarfang frá Þorláks-
höfn, grænmeti úr Hveragerði,
kjöt frá Sláturfélagi Suðurlands,
kartöflur úr Þykkvabænum,
sveppi frá Flúðum eða ost frá
Mjólkurbúi Flóamanna er um
hágæðavöru að ræða. „Mér
finnst skemmtilegt að bera á
borð góðan mat úr okkar heima-
fengna hráefni þó að hugmyndir
að matreiðslunni séu oft sóttar
út fyrir landsteinana,“ segir
hann brosandi.
Fjöruborðið er líka þekkt
langt út fyrir landsteinana. Það
laðar til sín fjölda gesta allan
ársins hring bæði íslenska og
erlenda, enda staðsetning,
umhverfi og salarkynni í sér-
flokki og orðsporið eftir því.
Yfir veturinn er þar opið eftir
klukkan fimm á virkum dögum
og svo allar helgar.
Uppskriftirnar eru ætlaðar
fyrir sex manns.
Hráefnið allt úr umhverfinu
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is