Fréttablaðið - 03.11.2006, Síða 32
Morten Skinestad Haakestad,
matreiðslumaður á VOX rest-
aurant Nordica, hefur verið
búsettur á Íslandi um nokkurt
skeið. Hann ætlaði aðeins
að skreppa heim í helgarfrí
til Noregs þegar hann fékk
skyndilega boð um að taka
þátt í matreiðslukeppni í Nor-
egi sömu helgi. Hann galdraði
fram glæsilegan humarrétt á
mettíma og kom aftur til Ís-
lands hampandi titlinum besti
sjávarréttakokkur Noregs.
Morten hefur alltaf fundist Ísland
vera spennandi og heyrt mikið
um land og þjóð. Hann segir að
Íslendingar séu mjög þekktir í
hinum alþjóðlega matreiðslu-
heimi fyrir frumleika og góða
frammistöðu. „Mig langaði að
fara út í heim til að öðlast meiri
reynslu í mínu fagi,“ segir Morten
og heldur áfram: „Ég hafði mikið
heyrt af VOX restaurant enda er
það þekktur veitingastaður meðal
fagmanna.“
Morten hafði aðeins verið á
VOX resturant í stuttan tíma
þegar hann fékk tækifæri til að
taka þátt í keppninni besti sjáv-
arréttarkokkur Noregs, sem fór
fram í Björgvin í Noregi fyrir
nokkru. Morten fékk að launum
ferð á hið heimsþekkta mat-
reiðslumót Bocuse d´or í Lyon í
Frakklandi og hlakkar mikið til
ferðarinnar. Morten er sérstak-
lega hrifinn af sjávarréttum og
því viðeigandi að koma til Íslands
til að upplifa íslenska fiskinn.
Fámenni þjóðarinnar kom honum
þó mest á óvart. „Það er hreint út
sagt ótrúlegt hvað íslenskt mat-
reiðslufólk gerir stórkostlega
hluti, þar sem þið eruð svo fá,“
segir Morten brosandi. Íslenska
hráefnið er ofarlega í huga
Mortens sem hann segir vera
mjög gott að vinna með. „Fiskur-
inn er einstaklega ferskur á
Íslandi og það er frábært að fá
tækifæri að vinna með slíkt gæða
hráefni.“ Hann hrósar mjög
yfirmatreiðslumanninum Sigurði
Gíslasyni og öðrum starfsmönn-
um og segist eiga eftir að sakna
Íslands. „Það hefur verið tekið
einstaklega vel á móti mér og ég
þrífst mjög vel á Íslandi,“ segir
Morten. Hann skilur þónokkuð í
málinu en er ekki farinn að slá
um sig á íslensku enn. „Eldhúsið
á sitt eigið tungumál og það er
nánast hægt að fara í hvaða eld-
hús sem er í heiminum og elda án
þess að kunna tungumál lands-
ins,“ segir þessi hæfileikaríki
listakokkur hlæjandi. Morten er
á VOX resturant fram að áramót-
um, en útilokar ekki að koma
aftur til Íslands síðar.
Verðlaunarétturinn er sjávar-
rétta smáréttur sem Morten
galdraði fram á mettíma.
Vanillusteiktur humar með
blómkáli, geitaostkrem, tómats-
orbée, steinseljufroðu, steinselju
olíu, rúgbrauð „crisp“.
VOX restaurant er nútímaleg-
ur staður þar sem andrúmsloftið
er þægilegt og afslappað. Sigurð-
ur Gíslason yfirmatreiðslumaður
segir staðinn leggja metnað sinn
í að vinna í anda hins nýja nor-
ræna eldhúss. „Megináherslan er
lögð á norrænar matreiðsluhefð-
ir og notkun árstíðabundins hrá-
efnis úr okkar nánasta umhverfi,“
segir Sigurður og bætir við: „Við
viljum hafa sem fæsta milliliði
og leggjum mikla áherslu á að
þekkja uppruna hráefnisins,“
Besti sjávarréttakokkur
Noregs á Nordica
Bæjarlind 6, Kóp. • s. 534 7470 • www.feim.is
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 10-16