Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 24

Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 24
Í nýlegri könnun Fram- kvæmdasviðs Reykjavíkur- borgar töldu 75% aðspurðra nagladekk hafa verið öruggari 10 daga eða minna á síðasta ári. Spurning vaknar hvort leggja eigi af notkun nagla- dekkja og hvaða valmöguleik- ar séu þá í boði. „Ég hef selt dekk í 25 ár og hef á þeim tíma fylgst vel með þeirri þróun sem hefur átt sér stað í framleiðslu,“ segir Sveinbjörn Jóhannesson, hjá Betra gripi, hjól- barðaverkstæði- og þjónustu í Lágmúla 9. „Ég tel notkun nagla- dekkja á höfuðborgarsvæðinu í 99 prósentum tilfella ónauðsynlega, meðal annars vegna þess hversu vel saltaðar göturnar eru.“ Sveinbjörn segist sjálfur hafa ekið um á naglalausum vetrar- dekkjum á fjórða vetur. „Eftir að ég skipti yfir prófaði ég fyrst fín- eða microskorin dekk. Svo reyndi ég svokölluð loftbóludekk og hef ekki lent í vandræðum, þar sem gúmmíið í þeim er símjúkt og loðir af þeirri ástæðu vel við götuna og ísinn. Satt best að segja kom mér á óvart hversu vel slík dekk hafa reynst.“ Ýmsir möguleikar eru í boði fyrir þá sem hafa áhuga á nagla- lausum dekkjum að sögn Svein- bjarnar. „Ég get sem dæmi nefnt Cooper dekkin, sem reyndust mér vel á meðan ég ók um á Daihatzu jeppa,“ heldur hann áfram. „Þau voru neglanleg en um leið mic- roskorin. Einnig dekk frá Michel- in, Goodyear og Bridgestone, en við flytjum inn þau síðastnefndu.“ Sveinbjörn segir að því miður séu dekk í ódýrari kantinum yfir- leitt hálari, vegna þess hversu mikið af plastefnum er notað í þau til að halda framleiðslukostnaði niðri. „Plast verður hált í frosti og því þurfa ódýr dekk yfirleitt nagla til að ná góðu gripi. Betri efni eru yfirleitt notuð í dýrari dekkin og fyrir þær sakir virka þau betur í hálku.“ Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðarstofu, telur margt til í því að menn ofmeti þörf á nagladekkjum á höfuðborg- arsvæðinu. „Hins vegar erum við misvel búin undir að keyra í vetr- arfærð,“ segir hann. „Því verður hver og einn að meta eigin þörf á nagladekkjum miðað við getu og aðstæður.“ Einar segir Umferðarstofu að sjálfsögðu vilja að bifreiðar séu þannig útbúnar að þær veiti sem mest öryggi. „Nú er hins vegar fáanlegur fjöldi góðra naglalausra vetrardekkja,“ heldur hann áfram. „Það stafar af því að nagladekk eru nú bönnuð víða um Evrópu og dekkjaframleiðendur hafa brugð- ist við því með því að þróa full- komnari og öruggari naglalaus vetradekk heldur en áður hafa þekkst. Menn ættu því að kynna sér málið betur og horfa til þess hvort ekki sé ástæða til að fá sér naglalaus dekk.“ Einar bætir við að séu menn hins vegar mikið á ferðinni úti á landi, sé auðvitað ríkari ástæða til að setja góð nagladekk undir bíl- inn. Nagladekk ef til vill óþörf Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Jeppadekk Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 31" heilsársdekk verð frá kr. 12.900 www.alorka.is Sendum frítt um land allt! Við míkróskerum og neglum! Úrval af stærðum upp í 33" Opið á laugardögum 9-13 M IX A • fít • 6 0 4 9 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.