Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 16
Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB, segir að
það sé óeðlilegt að skilja á milli
iðgjalda og fjármálastarfsemi
vátryggingafélaganna þar sem
fjármálastarfsemin sé órjúfanleg-
ur þáttur af vátryggingastarfsem-
inni.
„Við borgum iðgjöldin fyrir-
fram og þau fara strax í einhverja
ávöxtun. Iðgjöldin eru hluti af arði
fyrirtækjanna og því er óeðlilegt
að þau hækki iðgjöld þegar þau
skila góðri afkomu,“ segir Runólf-
ur.
Vátryggingafélag Íslands og
Tryggingamiðstöðin ætla að
hækka iðgjöld vátrygginga frá
næstu áramótum. Ástæðan er sögð
sú að vátryggingastarfsemi félag-
anna hafi verið rekin með halla en
Runólfur segir að greiðslur vegna
bifreiðatjóna hafi hækkað mikið á
þessu ári.
Hann segir að ökutækjatrygg-
ingar á markaðnum í heild sinni
hafi hækkað töluvert umfram
þróun vísitölu á þessu ári. Á sama
tíma hafi félögin kynnt uppgjör
sem gefi jákvæða niðurstöðu í
heildarrekstrinum. Afkoman hafi
verið svo gríðarlega góð að félög-
in hafi slegið eigin met.
„Iðgjöldin eru grunnur þessara
fjármagnstekna og þar eru bíla-
tryggingarnar stærsti þátturinn,“
segir Runólfur og minnir á að
félögin eigi rúmlega 26 milljarða í
sjóði af ökutækjatryggingum
einum saman.
Gagnrýna hækkun iðgjalda
Húsafriðunarnefnd
ríkisins mun vera reiðubúin að beita
tveggja vikna skyndifriðun til að
fresta því að gamli barnaskólinn á
Hólmavík verði rifinn. Þetta kom
fram á vefnum strandir.is. Þar sagði
ennfremur að líklegt væri að
sveitarstjórn Strandabyggðar myndi
einmitt ákveða á fundi sínum í
gærkvöld að fresta niðurrifi skólans
þar til húsafriðunarnefndin kemur
saman til fundar 30. nóvember.
Undirskriftasöfnun hefur verið í
gangi meðal Hólmvíkinga sem vilja
að skólahúsinu verði þyrmt. Gamli
barnaskólinn er meðal þeirra húsa á
Hólmavík sem helst þykja hafa
sögulegt varðveislugildi.
Beita skyndi-
friðun á skóla
Umferðarteppa
verður á Reykjanesbraut frá IKEA
að umferðarljósunum við Vífils-
staði og jafnvel alla leið að Smára-
lind fram í miðjan desember. Hugs-
anlegt er að ekki rætist almennilega
úr fyrr en næsta vor þegar fram-
kvæmdum verður að mestu lokið.
Jónas Snæbjörnsson, sviðsstjóri
hjá Vegagerðinni, segir að Reykja-
nesbrautin frá Hafnarfirði í Kópa-
vog verði fjórar akreinar þann 1.
júlí á næsta ári. Verkið sé nú hálfn-
að. Eftir sé að tvöfalda veginn frá
IKEA að Smáralind gegnum Vífils-
staðaveg og Álftanesveginn og
verði þau gatnamót áfram ljósa-
gatnamót. Framkvæmdirnar kosti
rúmlega einn milljarð króna.
Jónas segir að í dag sé Reykja-
nesbrautin frá Kaplakrika í Kópa-
voginn umferðarmesti tveggja
akreina vegur á landinu. Hann
segir að um þennan veg fari 23-25
þúsund bílar á dag. Umferðarteppa
sé á Reykjanesbrautinni meira eða
minna allan daginn en verstu tím-
arnir séu á morgnana og síðdegis.
„Þetta lagast ekki fyrr en þessi
framkvæmd verður tekin í notkun
sem er í síðasta lagi næsta sumar.
Vonir stóðu til að það yrði fyrir
jólin en dvínandi líkur eru á því,
það er erfitt að malbika þegar
frystir,“ segir hann og hvetur fólk
til þolinmæði.
Sigþór Ari Sigþórsson, fram-
kvæmdastjóri Klæðningar, segir
að hugmyndin hafi upprunalega
verið að opna alla brautina um
miðjan desember og eiga þá frá-
gang eftir. Flýtigreiðslur hafi mið-
ast við þetta. „Við erum í kapp-
hlaupi við tímann og veðrið. Það
verður að koma í ljós hvort við
opnum alla brautina eða skiljum
eftir eins og hálfs kílómetra kafla.
Við verðum að klára steinhlaðna
hljóðmön vegna beiðna frá íbúum
við Hnoðraholt áður en við opnum
fyrir umferðina og það setur líka
strik í reikninginn,“ segir hann.
Ef ekki næst að opna veginn
framhjá Hnoðraholti í desember
verður umferðinni beint um hjá-
leiðir í samráði við Vegagerð og
lögreglu. Sigþór bendir á að hvað
varðar umferðartækni sé ákjósan-
legt að gera það við umferðarljósin
við Vífilsstaði.
„Eitthvað af umferðinni skilar
sér inn í aðliggjandi hverfi en við
erum samt ekki búnir að gefast
upp. Við stefnum ótrauðir á að opna
15. desember.“
Eftir áramót verður útboð á
tvennum mislægum gatnamótum á
Reykjanesbraut, við Vífilsstaðaveg
og Arnarnesveg.
Umferðar-
teppa verður
fram til jóla
Umferðaröngþveiti verður á Reykjanesbraut frá
Kaplakrika að Fífuhvammsvegi fram í miðjan
desember og jafnvel langt fram á næsta ár. Veður
og hljóðmön við Hnoðraholt tefja framkvæmdir.
Verktakinn er ekki búinn að gefast upp.
Bílaumboðið Saga
Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík
Sími 570 9900 • www.fiat.is
Fiat Grande Punto
Númer 1 í Evrópu
ævintýraferð til Veróna
Þú gætir unnið
Mest seldi bíllinn í Evrópu 2006*
• Stíll. Hannaður í anda Maserati af Giorgetto
Giugiaro.
• Eyðsla. Aðeins 6 lítrar á hverja 100 km
í blönduðum akstri.
• Öryggi. 5 stjörnur í Euro Ncap. 6 loftpúðar.
• Eiginleikar. Hlaut Gullna stýrið 2005.
*Opinber skráning bifreiða fyrir janúar – apríl 2006 í 15 löndum: Belgíu, Finnlandi, Þýskalandi, Bretlandi, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Noregi, Portúgal, Spáni og Svíþjóð.
Þeir sem koma og reynsluaka Fiat Punto
í nóvember geta átt von á því
að vinna flugferð fyrir tvo til
ævintýraborgarinnar Veróna
á Ítalíu með Úrvali Útsýn.
Opið:
virka daga frá 8–18
laugardaga frá 12–16