Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 47
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006
1. desember
Rinascente-hópuRinn
helduR tónleika í hinu nýja
safnaðaRheimili neskiRkju
við hagatoRg.
hópinn skipa að þessu sinni þau
hallveig Rúnarsdóttir sópran-
söngkona, hrólfur sæmundsson
barítón og steingrímur Þór-
hallsson, organisti og listrænn
stjórnandi hópsins.
Á efnisskránni að þessu sinni
eru verk eftir feneyjatónskáldin
gabrieli og girolamo frescobaldi,
sem uppi voru á 16. og 17. öld.
tónlistarmennirnir þrír sem
koma fram á tónleikunum eiga
það allir sameiginlegt að hafa
vakið athygli fyrir túlkun sína á
endurreisnar- og barokktónlist.
að venju hafa þau unnið öll
verkin beint upp úr frumhandrit-
um, en þá er hægt að túlka hana
ómengað og milliliðalaust.
tónleikarnir eru hluti af tónlistar-
hátíðinni „tónað inn í aðventu”
og hefjast kl.20.
í tí salnum í kópavogi verður
efnt til árlegra „portrett“ tónleika
eins og venjan er fyrsta dag
desembermánaðar. tónleikarnir
hafa verið helgaðir íslenskum
tónskáldum og verkum þeirra
og nú er röðin komin að Árna
Björnssyni. Á efnisskránni eru
einsöngslög, kórlög og rómönsur
fyrir fiðlu og flytjendur eru sigrún
eðvaldsdóttir, gunnar guð-
björnsson, jónas ingimundarson
og kammerkór hafnarfjarðar.
tónleikarnir hefjast kl. 20.
jólatónleikar í neskirkju í dag.
Geðhjálp
vatnslitamynd pRýðiR jólakoRt
geðhjÁlpaR
myndin á jólakorti geðhjálpar í ár er
vatnslitamynd eftir kristin jóhann-
esson sem hefur frá upphafi verið
nemandi í samstarfsverkefni geð-
hjálpar og fjölmenntar um menntun
og starfsendurhæfingu fólks með
geðraskanir.
kortin eru af stærðinni 12,5 x
17cm og eru í boði bæði með og
án texta.
allar frekari upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu geðhjálpar, túngötu 7,
101 Reykjavík í síma 570 1700, virka
daga kl. 09.00 - 16.00. einnig er
hægt að senda fyrirspurnir/pantanir
á netfangið gedhjalp@gedhjalp.is.
jólakort }
Á jóladöfinni }
Spiderwick-sögurnar – allar komnar út
VíSindaheimurinn
Frábærar bækur fyrir fróðleiksfúsa krakka
Fjórar fyrstu bækurnar í tíu bóka flokki um náttúruvísindi. Stórkostlegur bókaflokkur
um náttúruvísindi fyrir börn og unglinga. Nýjasta þekking og frábært myndefni gera
þekkingarleitina að leik og lesturinn að nautn. Bækurnar eru sniðnar að þörfum barna á
aldrinum 10-14 ára enda þótt allir geti sótt sér
mikinn fróðleik í þessar glæsilegu bækur.
Æsispennandi og gullfallegar
ævintýrabækur handa krökkum
á aldrinum 8-14 ára í snilldarþýðingu
Böðvars Guðmundssonar.
Nú er verið að gera kvikmynd
upp úr bókunum og verður hún
frumsýnd seint á næsta ári.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 –101 Reykjavík
skrudda@skrudda.is
Búálfar, svartálfar, tröll og huldufólk koma við sögu í þessu
æsispennandi ævintýri.
Fyrstu tvær bækurnar komu út í fyrra
en nú eru þær allar komnar út.
Jólaóróinn 2006
geoRg jensen óRóaRniR pRýða möRg íslensk
heimili.
jólaóróar frá georg jensen koma um hver jól í nýrri
útfærslu. óróinn í ár er sá tuttugasti og þriðji í röðinni
og í ár er það karlsvagninn sem vísar veginn til jólanna.
Þeir eru alltaf með sama sniði, fínlegir, gylltir og með
ákveðnu þema. Árlega koma tveir litlir óróar og einn
stór og það er ekkert mál að byrja að safna núna því
hægt er að kaupa gömlu óróana í kúnígúnd. óróarnir
sjálfir eru tímalausir en borðinn sem þeir hanga í eru
merktir ártalinu þegar óróinn kom út.
jólaóróarnir frá georg jensen fást í kúnígúnd og epal.
Jólaskrautið }