Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 86
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR46
menning@frettabladid.is
!
Forlagið Jentas gefur út
spennusöguna
Sá sem vald-
ið hefur eftir
Robert Dugoni.
Lögreglumaðurinn
David Sloane og
rannsóknarlög-
reglumaðurinn
Tom Molina glíma
við erfitt sakamál
sem tengist
forseta Bandaríkjanna. Af hverju fremur
trúnaðarmaður forsetans sjálfsmorð og
hví hindrar Hvíta húsið rannsókn máls-
ins? Sloane kemst á snoðir um samsæri
sem forsetinn tengdist fyrir þrjátíu árum
og mögulega tengist það martröð sem
ásótt hefur lögreglumanninn frá barns-
aldri. Þýðandi er Snjólaug Bragadóttir.
Uppreisn án landamæra
hefur yfirskriftina
spennusaga úr
raunveruleikan-
um. Þar greinir frá
skúrki, eiturlyfja-
sala og neytanda
sem sneri við
blaðinu og notar
nú reynslu sína
úr undirheimum
Montrealborgar
til að helga líf
sitt hjálparstarfi og mannúðarmálum.
Marc Vachon er starfandi verkefnisstjóri
hjá Læknum án landamæra en gæti allt
eins verið í fangelsi. Forlagið Jentas gefur
bókina út en þýðandi er Oddný Sen.
Gillian Flynn er höfundur spennusög-unnar Beitt áhöld en þar segir af
Camille Preaker,
ungri blaðakonu
sem á við geð-
ræn vandamál
að stríða því hún
á það til að skera
sig með beittum
áhöldum. Þegar
tvær stúlkur
finnast myrtar
í heimabæ
hennar er henni
falið að skrifa
um atburðinn.
För hennar á heimaslóðir á síðan eftir
að draga dilk á eftir sér því vera kann
að fjölskylda hennar og hún sjálf séu
flækt í morðmálið. Forlagið Jentas gefur
bókina út en þýðandi er Aðalsteinn
Hákonarson.
Metsöluhöf-undurinn
Harlan Coben
er höfundur
spennusögunnar
Saklaus sem for-
lagið Jentas gefur
út. Matt Hunter
hefur nýlega
verið sleppt úr
fangelsi, hann
fær gott starf og
kvænist dásam-
legri konu. Einn
dag fær hann sendar undarlegar myndir
af konu sinni með ókunnum karlmanni,
allt í einu er hann hundeltur af lögreglu
sem einu sinni var skólafélagi hans. Inn í
söguna fléttast líka týndur nektardansari,
dauður glæpon og dularfull myndbands-
spóla en Hunter getur engum treyst. Síst
þeim sem hann elskar. Þýðandi er Eiríkur
Gauti Kristjánsson.
nýjar SpennuBækur
Kl. 20.00
Þorsteinn Gíslason, Steini, opnar
sýninguna Ekki land í Populus
tremula á Akureyri. Sýningin er að-
eins opin þessa helgi milli 14 og 17.
Tíbrártónleikar þann 1.
desember verða helgaðir
verkum eftir tónskáldið
Árna Björnsson (1905-
1995). Þar verður flutt
fjölbreytt efnisskrá frá
skömmum ferli þessa tón-
listarmanns af glæsilegum
hópi listamanna.
Allt frá því að reglubundið tón-
leikahald hófst í Kópavogi, hefur
árlega verið efnt til „portrait“ tón-
leika í Salnum fyrsta dag desem-
bermánaðar. Tónleikarnir hafa
verið helgaðir íslenskum tónskáld-
um og verkum þeirra. Á fyrsta
starfsári Salarins í desember 1999
varð Emil Thoroddsen fyrir val-
inu, þá Karl Ottó Runólfsson, Sig-
valdi Kaldalóns, Jórunn Viðar, Jón
Þórarinsson, Atli Heimir Sveins-
son og nú er röðin komin að Árna
Björnssyni.
Á efnisskrá á tónleikunum 1.
desember eru einsöngslög, kórlög
og rómönsur fyrir fiðlu og píanó
eftir Árna Björnsson. Flytjendur
eru þau Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari, Gunnar Guðbjörns-
son tenórsöngvari, Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari og Kamm-
erkór Hafnarfjarðar undir stjórn
Helga Bragasonar.
Á síðasta ári voru liðin hundrað ár
frá fæðingu tónskáldsins, flautu-
og píanóleikarans Árna Björns-
sonar, sem var einn af frumkvöðl-
um íslensks tónlistarlífs.
Hann fæddist og ólst upp í Lóni í
Kelduhverfi, en sýndi fljótt orgel-
inu í stofunni meiri áhuga en
búskapnum. Um formlegt tónlist-
arnám í æsku var ekki að ræða en
þrátt fyrir það var Árni þegar á
unglingsárunum farinn að stjórna
kórum víða um héraðið. Þegar
hann hleypti heimdraganum lá
leiðin til Reykjavíkur þar sem
hann á árunum 1930-1935 stundaði
nám í Tónlistarskólanum í píanó-
leik, tónfræði og hljómfræði hjá
dr. Urbancic og Franz Mixa. Einn-
ig lærði hann að leika á flautu og
var einn af stofnfélögum Hljóm-
sveitar Reykjavíkur, sem var und-
anfari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands 1950. Hann vann fyrir sér
með kennslu og lék á píanó við
ýmis tækifæri og í danshljóm-
sveitum.
Árni stundaði framhaldsnám við
Royal College of Music í Manchest-
er á stríðsárunum 1944-1946, og
kenndi eftir það við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík ásamt því að
semja tónlist fyrir hljómsveitir,
kammerhópa, lúðrasveitir, ein-
söng, kóra- og dægurtónlist. Árni
lagði drög að óperu sem byggði á
Gunnlaugs sögu Ormstungu. Sú
ópera hefði orðið fyrsta íslenska
óperan ef honum hefði auðnast að
ljúka við hana. Af því varð þó
ekki
Eitt kvöld 1952 varð Árni fyrir
fólskulegri líkamsárás tveggja
manna sem veittu honum alvar-
lega höfuðáverka, svo olli heila-
skemmdum og batt enda á starfs-
feril hans. Hann hélt þó áfram að
semja, en stíllinn breyttist. Ferill
hans varð aldrei samur og þær
miklu vonir sem bundnar voru við
hann dofnuðu.
Minningu Árna hefur ekki verið
nægilegur sómi sýndur en þessir
Tíbrár-tónleikar bæta úr því og
opna leið fyrir væntanlegan tvö-
faldan disk á vormánuðum 2007
með úrvali af tónlist Árna á vegum
Smekkleysu. - pbb
Aldarminning Árna
Árni BjörnSSon 1905-1995
Í dag kl. 17 opnar Sigrún Guðjóns-
dóttir, sem kunn er af listamanns-
nafni sínu, Rúna, sýningu í Sverris-
sal og Apóteki í Hafnarborg. Á
sýningunni verða steinleirsmyndir
og verk unnin á pappír með akrýl,
olíukrít, pastel og bleki. Rúna hefur
unnið mikið með japanskan pappír,
sem er efnismikill og gljúpur, og
því allt annað efni að vinna á en
steinleir sem hún hefur haldið
tryggð við svo árum skiptir og gert
að sínu efni.
Starfsferill Rúnu er orðinn lang-
ur og fjölbreytilegur. Allt frá árinu
1950, þegar hún tók að birta svips-
terkar teikningar sínar, og til þessa
dags hefur hún tekið þátt í ótal sýn-
ingum innanlands og utan, lagt
stund á myndlistarkennslu, hönn-
un, bókaskreytingar og skreytingar
á byggingum svo nokkuð sé nefnt.
Hún var ásamt manni sínum
Gesti Þorgrímssyni einn af frum-
kvöðlum íslenskrar leirlistar á
þeim tíma þegar fáir sinntu leir-
gerð og er heiðursfélagi Leirlista-
félagsins. Saman unnu þau Gestur
lengi að leirmunagerð og skreyt-
ingum á opinberum byggingum.
Rúna tók virkan þátt í félagsstarfi
myndlistarmanna og var fyrsti for-
maður Félags íslenskra myndlista-
manna 1981-1985, hún sat í stjórn
Norræna myndlistarbandalagsins
1981-1985 og í stjórn Norrænu
listamiðstöðvarinnar á Sveaborg
1983-1987. Hafnfirðingar sýndu
henni þann sóma að kjósa hana
fyrsta bæjarlistamann Hafnar-
fjarðar 2005 og komu fáir ef nokkr-
ir til greina í fyrsta vali nema hún.
Sýning hennar nú er til marks
um hversu lengi listamenn geta
haldið áfram störfum, ekki síst þeir
sem vinna stöðugt af natni og elju á
sínum vettvangi.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17, á
fimmtudögum er opið frá kl. 11 til
21. Sýningin stendur út desember.
- pbb
Rúna sýnir í Hafnarborg
MyndliSt rúnu Sigrún Guðjónsdóttir
sýnir í Hafnarborg.
> ekki missa af …
kvikmyndinni Evu eftir Joseph
Losey sem Kvikmyndasafn Íslands
sýnir í Bæjarbíói í Hafnarfirði á
morgun. Rithöfundur staddur í Fen-
eyjum er lítillækkaður af fégráðugri
franskri konu sem hefur á honum
hreðjatök. Ekki amalegur söguþráður
það.
sýningu Elenu Fitts á Kaffi Sólon
í Bankastræti. Ævintýralegar myndir
eftir sjálfmenntaða listakonu.
jólasöngleiknum Réttu leiðinni í
Borgarleikhúsinu. Börn og ungling-
ar fara með öll hlutverk í sýningunni
sem mun að sönnu koma öllum í
jólaskap.
Á morgun verður haldinn fjölskyldudagur í
Þjóðmenningarhúsinu þar sem áhugafólk á
öllum aldri getur kynnt sér sýningu Árnastofn-
unar á fornum handritum. Hægt verður að
kynnast skrifaraiðn miðalda af eigin raun því
börn og fullorðnir fá að meðhöndla það sem til
þarf; fjöðurstafi gerða úr flugfjöðrum álfta, gæsa
og arna, bókfell úr kálfskinni og blek soðið úr
sortulyngi, mó og víðileggjum. Áhugasamir
geta skrifað með rúnaletri því sýnt er hvernig
stafrófið okkar er skráð með rúnum. Á fjöl-
skyldudeginum verður safnkennari Árnastofn-
unar í skrifarastofu handritasýningarinnar og
veitir aðstoð og fræðslu sem alla jafna býðst
skólahópum á virkum dögum. Enginn sem kann
að draga til stafs er of ungur eða of gamall til
að hafa gaman af að kynnast þessari fornu iðn.
Allir eru velkomnir og af þessu tilefni er enginn
aðgangseyrir á sýningarnar í Þjóðmenningarhús-
inu á umræddum tíma.
Auk handritasýningar Árnastofnunar eru í Þjóð-
menningarhúsinu sýningarnar Íslensk tísku-
hönnun, Fyrirheitna landið og Berlin Excursion.
Húsið verður opið milli 14 og 17.
Með fjöðurstaf og fornu bleki
FjölSkylduFólk Boðið velkoMið í ÞjóðMenn-
ingarhúSið Ungir sem aldnir geta kynnt sér forna
ritlist. FRéTTABLAðIð/VALLI
aldarMinning tónSkÁldS Jónas Ingimundarson, Sigrún Eðvaldsdóttir og Gunnar
Guðbjörnsson flytja tónsmíðar Árna Björnssonar með liðsinni fleiri listamanna.
FRéTTALBAðIð/HöRðUR