Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 105
64 1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Í kvöld mætast lið FH og Aftureld-
ingar í Kaplakrika kl. 19.00. Liðin
eru í tveimur efstu sætunum í 1.
deildinni í handbolta og stefna
óðfluga upp í úrvalsdeild-
ina.
Aftureld-
ing er í toppsæt-
inu og er reyndar enn
með fullt hús stiga eftir sjö leiki. FH
er þremur stigum á eftir Mosfellingum, með
ellefu eftir átta leiki leikna en ÍBV er með tíu
stig eftir níu leiki. Tvö efstu liðin
komast upp í úrvalsdeildina.
Bjarki Sigurðsson er þjálfari
Aftureldingar og segir að viðureign
sinna manna gegn FH í kvöld sér
stórleikur.
„Þetta eru þau lið sem ég spáði
efstu sætunum fyrir tímabilið. Þetta
gæti því orðið mjög góður leikur,“
sagði Bjarki. Hann segir að góður
árangur sinna manna hafi ekki
komið sér á óvart.
„Það kemur mér ekki á óvart svo
ég tali hreint út. Ég er með mjög
öflugt lið og breiðan hóp sem er
að skila þessum árangri. Það er
engin stjarna í liðinu heldur er það
samvinna liðsheildarinnar sem er lykillinn að
þessum góða árangri. Við höfum skorað flest
mörk í deildinni og fengið fæst á ókkur og það
segir sína sögu.“
Afturelding hefur misst fjóra byrjunarliðs-
menn frá síðustu leiktíð en öflugt barna- og
unglingastarf síðustu ára er að skila sér.
„Þetta er ungt lið og ég hef líka tekið inn
stráka úr 2. flokki og jafnvel 3. flokki líka. En
það sem er best við þetta er að menn eru mjög
samstilltir í því að gera vel.“
Arnar Geirsson er annar þjálfara FH og
segir að liðið ætli sér að ná að minnsta kosti 2.
sætinu í deildinni og mun selja sig dýrt gegn
toppliðinu í kvöld.
„Pressan er á þeim,“ sagði Arnar. „Mér sýnist
að þeir séu með sterkasta hópinn en við viljum
veita þeim strangt aðhald. Þetta verður vonandi
spennandi leikur í kvöld.“
FH-aFturelding í kvöld: HörKuSLAGur Í 1. dEiLdinni Í HAndBoLTA
Toppliðin mætast í fyrstu
FóTbolTi Fréttablaðið hefur á und-
anförnum vikum tekið ítarleg við-
töl við marga af eftirsóttustu
knattspyrnumönnum landsins síð-
ustu ár. Tilgangur viðtalanna var
að komast til botns í hinum sér-
staka íslenska leikmannamarkaði
sem enginn veit mikið um. Ekki
einu sinni leikmennirnir sjálfir.
Hvað eru leikmenn að fá í laun?
Hvaða lið borga best? Hvernig
samningar eru í boði hjá hverju
félagi? Hvaða félög brjóta félaga-
skiptareglurnar? Er verið að
greiða leikmönnum „svart“ og
hvaða lið á mest af peningum er á
meðal þeirra spurninga sem
Fréttablaðið spurði leikmennina
að.
Fréttablaðið hefur alla þessa
viku birt greinar sem ætlað var að
varpa ljósi á leikmannamarkað-
inn. Þær upplýsingar sem koma
fram í greinunum eru alfarið
fengnar frá leikmönnunum sjálf-
um. Í lokahluta úttektarinnar
skoðum við Íslandsmeistara FH.
Það verður ekki sagt að það sé
einhver óráðsía á FH-ingum þrátt
fyrir frábært gengi undanfarin
ár og aukið fjárstreymi inn í
félagið. Fáir af bestu lausu leik-
mönnunum undanfarin ár hafa
ekki farið í FH og hluti af þeirri
ástæðu er einfaldlega sá að FH er
ekki að borga eins vel og Valur og
KR til að mynda í mörgum tilfell-
um.
Bjarga leikmönnum um niður-
greiðslu á íbúð
FH hefur hæst verið að bjóða
bestu leikmönnunum sem eru á
lausu 350 þúsund krónur í fasta-
greiðslu á mánuði, afnot af bíl og
húsnæði eða þriggja milljón króna
niðurgreiðslu af nýrri íbúð hjá
verktaka í Hafnarfirði.
Undirskriftafé hefur hæst farið
í 750 þúsund krónur. Flestir leik-
menn eru með titlabónus upp á
300 þúsund krónur fyrir Íslands-
meistaratitil og 200 þúsund fyrir
bikarmeistaratitil.
Þegar önnur félög hafa yfirboð-
ið FH-inga þá hafa þeir oftar en
ekki dregið í land þar sem þeir
treysti sér ekki lengra. Leikmenn-
irnir geti treyst því að áðurnefnd-
ur samningur standi en lengra
vilji þeir ekki fara
af ótta við að
geta ekki
upp-
fyllt samn-
inginn.
Það heyrist lítið
af svörtum greiðslum
innan félagsins en for-
ráðamenn félagsins hafa
imprað á því í samningaviðræðum
við leikmenn að hægt sé að greiða
hluta samningsins á slíkan hátt þó
Fréttablaðið hafi ekki fengið það
staðfest að einhver leikmaður
félagsins fái slíkar greiðslur.
tryggir þjónar
FH nýtur góðs af því að margir
leikmanna félagsins hafa verið
lengi í röðum þess og hafa fram-
lengt hjá félaginu oftar en ekki án
mikilla átaka í stað þess að leita
eftir betri tilboðum annars staðar
sem klárlega eru í boði.
Hæstu launin hafa þar af leið-
andi farið í útlendingana sem
getur verið skynsamt þar sem
flestir útlendinganna eru ekki með
nema nokkurra mánaða samning.
FH hefur oftar en ekki byrjað
að bjóða betri leikmönnum deild-
arinnar lægri samning en
sum hinna
félaganna.
FH byrjar þá í 150 þúsund en er í
fáum tilfellum til í að fara yfir 200
þúsund. Það kemur leikmönnum á
óvart hversu lítið FH er til í að
borga.
enginn leikjabónus
Félagið býðst einnig til að
aðstoða leikmenn við að fá atvinnu
þurfi þeir slíka aðstoð. FH er svo í
samstarfi við umboðsaðila KIA á
Íslandi enda ófáir einstaklingar
tengdir félaginu sem aka um á
slíkum bílum.
Athygli vekur að FH var ekki
með neinn leikjabónus á síðustu
leiktíð ólíkt flestum öðrum félög-
um. Það virðist vera að breytast
því FH er farið að bjóða leikmönn-
um slíka bónusa í dag þó þeir séu
minni en hjá sumum hinna félag-
anna.
Sagðir hrokafullir
FH er ekki hátt skrifað hjá
mörgum leikmönnum deildarinn-
ar sem telja forráðamenn félags-
ins hrokafulla og ummæli þjálfara
félagsins, Ólafs Jóhannessonar,
sem sagði leikmenn hrædda við
að fara í FH fóru mjög fyrir
brjóstið á mörgum þeirra.
Eitt af því sem leikmennirn-
ir segjast leita að er þjálfari
sem hefur einlægan áhuga á sér.
Slíku er ekki fyrir að fara hjá
Fimleikafélaginu, að sögn leik-
manna, þar sem félagið virðist
frekar bíða eftir því að leik-
menn komi og biðji um að fá að
ganga í FH. Það fer í taugarnar
á sumum leikmönnum og þeir
segja það frekar ástæðuna fyrir
því að þeir vilji ekki fara í FH.
Þeir séu ekki hræddir við sam-
keppnina en vilji aftur á móti ekki
spila fyrir þjálfara sem hefur ekki
raunverulegan áhuga á sér.
Svo kom í ljós í úttektinni að
FH hefur ekki reynt við alla
„stóru“ bitana á markaðnum á
undanförnum árum sem þeir hafa
þó verið orðaðir við í fjölmiðlum.
Ekkert bruðl hjá meisturunum
Íslandsmeistarar FH taka ekki eins virkan þátt í verðstríðinu um leikmenn á Íslandi og margur heldur. FH
býður engu að síður ágæta samninga en félagið virðist þekkja sín takmörk og býður ekki hærra en það
ræður við. Athygli vekur að engir leikmenn hjá félaginu fengu leikjabónusa á síðustu leiktíð.
ÍÞróTTALjóS
HEnry Birgir gunnarsson
henry@frettabladid.is
> eggert hitti ráðamenn vegna Ól-
leikvangsins í lundúnum
Eggert Árni Magnússon, verðandi stjórnarformaður West
Ham, hitti í fyrrakvöld forráðamenn skipulagsnefndar
ólympíuleikanna sem fara fram í Lundúnum árið 2012.
Eggert vill flytja heimavöll West Ham á leikvanginn að
leikunum loknum. Á fundinum voru meðal annarra
Tessa jowell ráðherra og Ken Livingstone
borgarstjóri og var Eggerti tjáð að verði
af flutningnum þurfi leikvangurinn
engu að síður að geta haldið áfram
að hýsa frjáls-íþróttamót. niðurstöðu
er að vænta í janúar.
NbA Dallas vann í fyrrinótt sinn
ellefta sigur í röð í NBA-deildinni
eftir að hafa tapað fyrstu fjórum
leikjum sínum á vertíðinni. Kom
ekki að sök að Dirk Nowitzki gat
ekki spilað nema í upphafi leiks
vegna sjóntruflanna en Dallas
vann Toronto Raptors, 117-98.
Nowitzki sagði þó eftir leikinn
að hann yrði klár í slaginn gegn
Sacramento í kvöld en leikurinn
er í beinni útsendingu á Sýn.
Þá komst Utah aftur á beinu
brautina í fyrrinótt eftir tvo
tapleiki í röð en liðið vann San
Antonio á heimavelli, 83-75. - esá
Dallas Mavericks heitir:
Ellefti sigurinn
í röð hjá Dallas
dirk nowitzki Leikur vel fyrir dallas.
nordic PHoToS/GETTy
FóTbolTi Úkraínski framherjinn
Andriy Shevchenko hefur ekki átt
sjö dagana sæla frá því að hann
flutti til London frá Mílanó í
sumar. Hann hefur aðeins skorað
þrjú mörk það sem af er leiktíð-
inni með Chelsea og sögusagnir
herma að hann sé aftur á leið til
AC Milan. Framherjinn vísaði því
á bug í gær.
„Ég virði gagnrýni og alla
umræðu. Staðreyndin er samt sú
að ég gef alltaf 100% prósent fyrir
Chelsea og mig hungrar í árangur
með félaginu sem ég ber mikla
virðingu fyrir,“ sagði Shevchenko
sem hefur skorað mörkin þrjú í
þrettán leikjum. Jose Mourinho,
stjóri Chelsea, er ekki búinn að
tapa trúnni á Shevchenko.
„Frammistaða hans gegn Bolt-
on var mjög jákvæð. Ef ég á að
vera heiðarlegur þá er mér alveg
sama um öll mörk enda dæmi ég
leikmenn út frá öðrum þáttum.
Andriy veit hvernig ég hugsa um
fótbolta og veit líka að ég mun
styðja hann áfram.
Mér er sagt að Thierry Henry
hafi skorað eitt mark í tólf leikjum
þegar hann kom til Arsenal frá
Juventus. Það er ekki auðvelt að
aðlagast boltanum hérna enda er
ítalski boltinn allt öðruvísi en
enski boltinn og skiptir engu að
við spilum sömu leikaðferð og
Milan. Shevchenko er klárlega að
bæta sig og er mjög líflegur úti á
vellinum,“ sagði Mourinho.
- hbg
Andriy Shevchenko gefur lítið fyrir sögusagnir um að hann sé á leið til Ítalíu:
Hungrar í árangur með Chelsea
andriy SHevcHenko Hefur ekki
gengið sem skyldi hjá chelsea en
hefur ekki gefist upp.
FrÉTTABLAðið/GETTy iMAGES
NFl Ólympíumeistarinn í 100
metra hlaupi, Justin Gatlin, hefur
æft upp á síðkastið með ameríska
ruðningsliðinu Houston Texans en
hann hefur einnig æft með fleiri
liðum í NFL-deildinni.
„Hann stóð sig mjög vel, lofaði
góðu en við ætlum ekki að bjóða
honum samning strax,“ sagði
Gary Kubiak, þjálfari Houston,
en Gatlin lék í stöðu útherja.
Gatlin féll á kyfjaprófi í apríl
síðastliðnum og við honum blasir
ævilangt bann frá frjálsum
íþróttum. - hbg
Justin Gatlin:
Æfir með
NFL-liðum