Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 32
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR32
Í árslok 2005 voru stöðugildi hjá
fjármálafyrirtækjum (móðurfé-
lög) 4.548 talsins og fjölgaði þeim
um 359 eða um tæp níu prósent á
milli ára samkvæmt tölum sem
Fjármálaeftirlitið hefur birt.
Fjöldi útibúa banka og spari-
sjóða var 171 í lok árs og fækkaði
þeim um sjö á milli ára.
Heildareignir samstæða allra
lánastofnana landsins voru 6.202
milljarðar króna í árslok 2005 og
jukust um 83 prósent.
Hagnaður var samanlagður
136,4 milljarðar króna en var 52,9
milljarðar árið 2004. Aukningin
var því 158 prósent á milli ára.
- eþa
Fólki fjölgar í
fjármálageira
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair
hefur aukið við hlut sinn í írska
innanlandsflugfélaginu Aer
Lingus og á nú fjórðung í félaginu.
Dermont Mannion, forstjóri Aer
Lingus, staðfesti þetta í vikunni.
Ryanair vinnur að óvinveittri yfir-
töku á flugfélaginu.
Ryanair festi sér 19 prósenta
hlut í Aer Lingus skömmu eftir
einkavæðingu þess í lok septemb-
er og gerði tilboð í eftirstandandi
hluti fyrir 1,48 milljarða evra eða
um 136 milljarða íslenskra króna.
Það mun hafa greitt um 88 millj-
ónir evra eða rúma 8 milljarða
króna fyrir hin 6 prósentin í vik-
unni. Stórir hluthafar í Aer Lingus
hafa mótmælt tilboðinu og segjast
ekki ætla að selja þá. - jab
ein af vélum ryanair Írska lág-
gjaldaflugfélagið Ryanair á 25 prósent í
flugfélaginu Aer Lingus.
Ryanair með fjórð-
ung í Aer Lingus
Breski leikfangaframleiðandinn
Merrythought hefur verið lýstur
gjaldþrota. Fyrirtækið, sem stofn-
að var árið 1930, er eitt elsta fyrir-
tækið í Bretlandi í þessum geira og
hefur verið í eigu sömu fjölskyldu
frá upphafi.
Á meðal helstu leikfanga fyrir-
tækisins eru rugguhestar og önnur
leikföng fyrir börn, sem fyrirtækið
seldi í verslunum Harrods og John
Lewis.
Oliver Holmes, forstjóri Merryt-
hought og barnabarn stofnandans,
segir í samtali við breska dagblaðið
The Guardian að fyrirtækið hafi
orðið fórnarlamb vegna vegna inn-
flutnings á ódýrum vörum.
„Þetta er sorgardagur,“ sagði
hann og benti á að hæfileikaríkir
einstaklingar myndu missa vinn-
una. Þá mun verksmiðju fyrirtæk-
isins í Shropskíri í Bretlandi sömu-
leiðis verða lokað og eignir þess
seldar upp í skuldir í næsta mán-
uði. - jab
eigandi Harrods í miðið Elsti leik-
fangaframleiðandi Bretlands, sem meðal
annars selur vörur sínar í bresku verslun-
inni Harrods, hefur verið lýstur gjaldþrota.
Elstu leikfangagerð
Bretlands lokað
Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD) hefur lýst yfir áhyggjum
vegna mikils vaxtar rússneska rík-
isorkufyrirtækisins Gazprom, sem
sagt er hafa einokunarstöðu á mark-
aði fyrir jarðgas í Austur-Evrópu.
Í nýrri skýrslu frá OECD um
hagkerfi Rússlands segir ennfrem-
ur að mikil stækkun fyrirtækisins
og yfirtökur þess síðustu árin komi
í veg fyrir heilbrigða samkeppni í
Rússlandi og beini vöxturinn sjón-
um stjórnenda frá kjarnastarfsemi
Gazprom.
Þá leggur OECD áherslu á, að
gasiðnaðurinn í landinu verði end-
urskipulagður í samræmi við aðra
geira með það fyrir augum að auka
samkeppni á heimamarkaði.
Gazprom er í andstöðu við mark-
aðsvæðinguna austur frá, að mati
OECD, sem bendir á að hlutur ríkis-
ins í fyrirtækjum í Rússlandi hafi
aukist mikið síðastliðin þrjú ár. Hafi
ríkið átt fimmtung fyrirtækja í
Rússlandi fyrir þremur árum en
hann nemur nú 30 prósentum.
„Aukinn ríkisrekstur er skref
aftur á bak,“ segir í skýrslu OECD,
sem áréttar að rússneska ríkið verði
að minnka við hlut sinn í fyrirtækj-
um í landinu, ekki síst í orkufyrir-
tækjum, með það fyrir augum að
minnka einokunarstöðu Gazprom í
Austur-Evrópu. - jab
Höfuðstöðvar gazprom OECD hefur
áhyggjur yfir vaxandi ríkisrekstri í Rússlandi.
Rússneskur ríkis-
rekstur áhyggjuefni
Danskir bændur óttast að hagur
sinn versni eftir að stjórnvöld í
Rússlandi hótuðu að koma í veg
fyrir innflutning á landbúnaðaraf-
urðum frá löndum Evrópusam-
bandsins á næsta ári. Ástæðan er
andstaða stjórnvalda við inngöngu
Búlgaríu og Rúmeníu í sambandið í
upphafi næsta árs.
Danska dagblaðið Jótlandspóst-
urinn segir ótta Rússa felast í því að
sýkt kjöt geti borist frá löndunum
tveimur til aðildarríkja Evrópusam-
bandsins og þaðan til Rússlands. Til
að koma í veg fyrir slíkt sé stefnt að
því að banna innflutning á kjöti frá
aðildarríkjum sambandsins.
Danir óttast að ef ákvörðuninni
verði framfylgt muni það koma har-
kalega niður á svínakjötsbændum.
Sala á
svína-
kjöti til
Rússlands
hefur stór-
aukist ár frá
ári en hún
nam 1,4
milljörðum
danskra
króna eða
rúmlega 17 milljörðum
íslenskra króna á fyrstu átta mán-
uðum þessa árs.
Þá flytja Danir langmest út af
svínakjöti til Rússlands miðað við
önnur aðildarríki Evrópusambands-
ins en danska svínakjötið nemur um
19 prósentum af heildarmagninu á
rússneska markaðnum. - jab
Svínabændur uggandi
Stjórn þýsku bílaframleiðendanna
hjá Volkswagen ætlar ekki að
framlengja samning sinn við Hans
Dieter Poetsch, fjármálastjóra
fyrirtækisins, sem rennur út um
áramótin.
Að sögn þýska tímaritsins
Focus tengist ákvörðunin uppsögn
Bernd Pischetsrieders, forstjóra
Volkswagen, sem sagði upp störf-
um hjá fyrirtækinu í upphafi mán-
aðarins frá og með næstu áramót-
um. Uppsögnin kom á óvart enda
hafði hann skömmu áður endur-
nýjað samning sinn við Volkswag-
en til sex ára.
Pitschetsrieder hafði nokkru
áður boðað hagræðingu í rekstri
bílaframleiðandans og meðal ann-
ars sagt upp 20.000 manns. Ekki
var einhugur um ákvörðunina í
stjórn Volkswagen. Focus fer ekki
nánar í uppsögn Poetsch að öðru
leyti en því að Pitschetsrieder réði
hann til starfa.
Martin Winterkorn, núverandi
forstjóri Audi, eins af dótturfélög-
um Volkswagen, mun taka við
starfi Pischetsrieders en við starfi
Poetsch tekur Rupert Stadler, sem
nú er fjármálastjóri Audi.
Volkswagen hefur ennfremur
tilkynnt að fyrirtækið muni blása
til sóknar, auka framleiðslu á
bílum frá Audi í verksmiðju sinni í
Brussel og segja auk þess upp
fleira starfsfólki í hagræðingar-
skyni. - jab
Yfirmannaskipti hjá VW
stjórn volkswagen Bernd Pischetsrieder, fráfarandi forstjóri VW, ásamt Ferdinand
Piech, stjórnarformanni fyrirtækisins, sem veifar. Lengst til hægri er Hans Dieter Poetsch,
fráfarandi fjármálastjóri.
OMX kauphallarsam-
stæðan tekur í dag
formlega við rekstri
Kauphallar Íslands. Um
leið verður OMX skráð
með öðrum fyrirtækjum
kauphallarinnar. Um
áramót hefst samþætt-
ing við aðrar kauphallir
OMX.
„Þetta eru mikil tímamót,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, en í dag tekur
OMX kauphallarsamstæðan form-
lega við stjórn hennar. Þá verður
OMX jafnframt skráð í Kauphöll-
ina hér. „Það er í fyrsta skipti sem
er tvíhliða skráning erlends fyrir-
tækis í Kauphöllina hjá okkur.“
Ferlið er samkvæmt samningi sem
gengið var frá um miðjan október.
Breytingar verða strax miklar
hjá Kauphöllinni því stjórnin sem
verið hefur lætur af störfum um
leið og Kauphöllin verður dóttur-
félag OMX. „Þar tekur ný þriggja
manna stjórn við og Jukka Ruuska,
sem er forstjóri OMX Exchanges,
verður formaður. Með þessu er
stefnumótun Kauphallarinnar í
raun komin í hendur nýrra aðila og
helstu verkefnin sem fram undan
eru að samþætta starfsemina við
hinar Norðurlandaþjóðirnar,“
segir Þórður. Um áramót taka við
sýnilegri breytingar þegar vefvið-
móti Kauphallarinnar verður
breytt. „Og einhvern tímann á
fyrsta ársfjórðungi förum við inn
á samnorræna listann og upplýs-
ingar af markaðnum hjá okkur
fara í gegnum sömu kerfi og eftir
sömu leiðum og upplýsingar um
önnur fyrirtæki sem eru skráð í
kauphöllum OMX,“ segir Þórður.
Hann segir samrunann og skrán-
ingu OMX hér framhald þróunar
sem verið hafi á íslenska markaðn-
um undanfarin ár. „Markaðurinn
hefur eflst gríðarlega. Velta með
hlutabréf hefur fimmtánfaldast á
síðustu fimm árum og verðmæti
skráðra hlutafélaga hefur farið úr
50 prósentum af landsframleiðslu í
245 prósent. Þá hefur meðalstærð
skráðra fyrirtækja átjánfaldast á
sama tíma,“ segir Þórður og kveður
Kauphöllina einfaldlega hafa verið
komna að þeim tímamótum að nauð-
synlegt væri að tengjast stærri
alþjóðlegri kauphöll. „Einfaldlega
til að geta veitt þessum stóru fyrir-
tækjum þá þjónustu heima sem við
viljum geta veitt.“ OMX segir Þórð-
ur svo hafa verið augljósan kost í
því sambandi því náið samstarf hafi
verið á undanförnum árum við nor-
rænu markaðina, auk þess sem
markaðurinn og umgjörð hafi verið
áþekk því sem þar gerðist.
Með samrunanum við OMX
segir Þórður svo búið að skapa hag-
felld skilyrði fyrir áframhaldandi
vöxt markaðarins, en hversu mikill
hann verði fari svo eftir því hvern-
ig fyrirtækin standi sig. Aðgangur
að afleiðumarkaði OMX í maí segir
Þórður svo koma til með að ýta
undir aukna veltu hér.
Tvíhliða skráningu OMX núna
segir Þórður svo fyrst og fremst
ætlaða til að kynna fyrir markaðn-
um fyrirtækið OMX. „Jafnframt
gerum við okkur vonir um að í
framhaldinu verði OMX bara hluti
af íslenska markaðnum, þannig að
viðskipti með hlutabréf OMX fari
fram með sama hætti og með önnur
fyrirtæki á íslenska markaðnum.
Þetta eykur breiddina því OMX er
með annan bakgrunn en þau fyrir-
tæki sem fyrir eru í Kauphöllinni.“
olikr@frettabladid.is
jukka ruuska omX og Þórður friðjónsson kaupHöll íslands Jukka Ruuska
forstjóri kauphallararms OMX sótti landið heim í byrjun síðasta mánaðar. OMX tekur
í dag formlega við stjórn Kauphallar Íslands. FRéttABLAðið/ViLHELM
OMX tekur við rekstri
Kauphallar Íslands í dag