Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 10
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI Meirihluti menntamála-
nefndar afgreiddi frumvarp um
Ríkisútvarpið ohf. til Alþingis á
fundi á miðvikudagskvöld. Minni-
hlutinn greiddi atkvæði gegn
afgreiðslu frumvarpsins.
Þær tvær breytingartillögur
við frumvarpið sem meirihluti
menntamálanefndar samþykkti
eru að takmarka kostunarsamn-
inga RÚV við tíu prósent af aug-
lýsinga- og kostunartekjum stofn-
unarinnar og að fyrirtækinu verði
bannað að birta auglýsingar á vef-
síðu sinni.
Þetta eru ekki eins miklar
breytingar og talið var að yrðu
gerðar á frumvarpinu. Hins vegar
átti að heimila RÚV að auglýsa á
netinu samkvæmt frumvarpinu
áður en meirihlutinn samþykkti
breytingartillögurnar. Í umræð-
unni um RÚV-frumvarpið í fjöl-
miðlum í vikunni kom fram að
jafnvel yrði sett þak á heimild
stofnunarinnar til að selja auglýs-
ingar.
Formaður menntamálanefndar,
Sigurður Kári Kristjánsson, segir
að með breytingartillögunum sé
komið til móts við gagnrýni einka-
fyrirtækja. Hann segir að komið
sé í veg fyrir að hið nýja félag,
RÚV ohf. fari inn á svið einkafyr-
irtækja með kostunarsamningum
og sölu auglýsinga á veraldarvefn-
um. Sigurður segir að mennta-
málanefnd mælist til þess í nefnd-
aráliti að kostunartekjum RÚV
ohf. verði veitt til að kosta innlent
efni en ekki erlent afþreyingar-
efni. Formaðurinn segir að hann
hefði jafnvel viljað ganga lengra í
takmörkunum á auglýsingatekj-
um RÚV.
Að sögn Marðar Árnasonar,
fulltrúa Samfylkingarinnar í
menntamálanefnd, eru breyting-
arnar á frumvarpinu hvorki fugl
né fiskur. Mörður segir að tillög-
urnar hafi verið kynntar í lok
fundarins á miðvikudag og að litl-
ar efnislegar umræður hafi farið
fram um þær.
Magnús Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Skjásins og Ari
Edwald, forstjóri 365, segja að
breytingartillögur meirihluta
menntamálanefndar séu gagnslitl-
ar því RÚV ohf. verði áfram gert
kleift að keppa óheft á auglýsinga-
markaði. „Ef það er ætlun mennta-
málanefndar að drepa einkageir-
ann þá er frumvarpið góð leið til
þess,“ segir Magnús. Ari segir að
ekki sé um neinar eiginlegar
breytingar á frumvarpinu að ræða
því þær kveði ekki á um að RÚV
sé bannað að gera eitthvað sem
stofnuninni er heimilt í dag.
ingifreyr@frettabladid.is
Breytingartil-
lögurnar eru
gagnslitlar
Með breytingartillögum við frumvarp um Ríkisút-
varpið ohf. er ætlunin að koma til móts við gagn-
rýni einkafyrirtækja. Stjórnendur 365 og Skjásins
telja takmarkanirnar ekki nægilega miklar.
ARI EDWALDMAGNÚS
RAGNARSSON
RÍKISÚTvARPIÐ Fulltrúi í minnihluta menntamálanefndar og stjórnendur Skjásins og
365 segja að breytingartillögur meirihluta menntamálanefndar séu ekki eiginlegar
breytingar. Frettablaðið/Vilhelm
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
Hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
MINNKAÐU HRAÐANN!
ÞAÐ BORGAR SIG
Kynntu þér málið á www.us.is
Í dag, 1. desember, tekur gildi breyting á
reglugerð um sektir og viðurlög við umferðar-
lagabrotum. Helsta breytingin er að sektir vegna
einstakra umferðarlagabrota hækka umtalsvert,
eða um allt að 60%.
Vikmörk varðandi hámarkshraða hafa einnig
verið lækkuð. Áður voru þau miðuð við 10
km/klst. yfir hámarkshraða án þess að fá sekt en
með nýju reglugerðinni hafa mörkin verði lækkuð
niður í 5 km/klst.
SAMKOMA Kveikt verður á jóla-
trénu á Ráðhústorginu á Akur-
eyri á morgun en tréð er gjöf frá
vinabæ Akureyrar, Randers í
Danmörku.
Klukkan tvö hefst dagskrá í
útibúi Landsbankans við Ráðhús-
torg þar sem félagar úr unglinga-
kór Akureyrarkirkju og Óskar
Pétursson syngja nokkur lög. Þá
tekur Idolstjarnan Bríet Sunna
lagið og gestum og gangandi
verður boðið upp á kakó og með-
læti. Það verður síðan klukkan
fjögur sem kveikt verður á
danska trénu.
Dagskráin er í boði Lands-
banka Íslands sem undanfarin ár
hefur tekið þátt í hinni eiginlegu
jólastemningu í miðbæ Akureyr-
ar. - hs
Akureyringar fá jólatré frá vinabænum Randers í Danmörku:
Kveikt á trénu á Ráðhústorgi
jóLATRéÐ á RáÐhÚSTORGI Kveikt verð-
ur á trénu á morgun kl 16.00.