Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006 17
HeilbRiGðiSmál Landspítali –
háskólasjúkrahús auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingum í sænska
dagblaðinu Expressen. Herdís
Herbertsdóttir, sviðsstjóri hjúkr-
unar, segir að hjúkrunarfræðinga
vanti í fjörutíu stöðugildi á sjö
legudeildir á lyflækningasviði.
„Við erum að auglýsa eftir
hjúkrunarfræðingum á flestar
legudeildir sviðsins. Það vantar
mjög mikið af hjúkrunarfræðing-
um og við erum að óska eftir því
að fólk ráði sig í eitt ár og þá
styrkjum við það til að læra
íslensku,“ segir Herdís.
Sænsku hjúkrunarfræðingarn-
ir, ef einhverjir verða, verða á
sömu launakjörum og íslenskir
hjúkrunarfræðingar, þó heldur
lægri launum meðan þeir eru að
læra íslensku, en fá greidda ferð
fram og til baka og aðstoð við að
finna sér íbúð.
Þótt hjúkrunarfræðinga vanti í
fjörutíu stöðugildi þá segist Her-
dís aldrei myndu ráða fleiri en tvo
hjúkrunarfræðinga á hverja deild.
Hún segir að deildirnar hreinlega
þoli ekki fleiri, að minnsta kosti
ekki meðan hjúkrunarfræðingarn-
ir eru að læra málið.
„Krónísk mannekla“ er meðal
hjúkrunarfræðinga á LSH. Herdís
hefur fengið þónokkrar fyrir-
spurnir frá Svíþjóð en ekki kemur
í ljós strax hver árangurinn verð-
ur. LSH auglýsir einnig í Færeyj-
um. - ghs
Auglýst eftir hjúkrunarfræðingum í Expressen:
Vantar fólk í 40 stöðugildi
KrónísK manneKla Herdís Herberts-
dóttir, sviðsstjóri hjúkrunar, segir að
„krónísk mannekla“ sé á sjö deildum
og vanti hjúkrunarfræðinga í fjörutíu
stöðugildi.
JÓlAmARKAðUR Jólamarkaður
handverkstæðis Ásgarðs verður
haldinn á morgun frá klukkan tólf
til fimm síðdegis og verður mark-
aðurinn haldinn í húsnæði Ásgarðs
við Álafossveg 24 í Mosfellsbæ.
Óskar Albertsson, talsmaður
Ásgarðs, segir mikla stemningu
meðal starfsmanna Ásgarðs sem
allir keppast nú við að klára sem
flesta hluti fyrir söluna á morgun.
„Þarna verður til sölu mikið úrval
af leikföngum, útskornum jóla-
trjám, jólarósum, jólaskrauti og
gjafavörum en allt er þetta unnið
úr náttúrulegum efnum. Meðal
þess sem verður á boðstólum eru
jólakúlur úr þæfðri ull en þær
voru svo vinsælar fyrir jólin í
fyrra að þær seldust upp.“ Ágóði
sölunnar rennur til Ásgarðs.
Um klukkan tvö á laugardaginn
munu systkinin KK og Ellen
Kristjáns flytja nokkur lög og
einnig verður boðið upp málverk
sem listamaðurinn Garðar Jökuls-
son hefur gefið Ásgarði. Þá verður
veitingasala á staðnum og vonast
starfsfólk Ásgarðs til að sem flest-
ir sjái sér fært að kynna sér vöru-
úrvalið og gæða sér á veitingum. Í
fyrra komust færri að en vildu en
nú verður reist tjald sem viðbót
við húsnæðið. Alls starfa 28
þroskaheftir starfsmenn í Ásgarði
sem framleiða leikföng sem eru
seld á almennum markaði. Starfs-
mennirnir bera ábyrgð á og eiga
frumkvæði að þróun og útfærslu
leikfanganna en leitast er við að
hafa þau einföld í hönnun, sterk og
skemmtileg. - hs
Jólamarkaður Ásgarðs verður haldinn á morgun í húsnæði Ásgarðs í Álafosskvosinni:
Úrval frumlegra gjafavara og jólaskrauts
litríKar og
fallegar
tösKur
Ýmiss konar
gjafavara verður
til sölu á jóla-
markaðnum.
jólastemning í ásgarði Óskar ásamt nokkrum starfsmanna Ásgarðs sem vinna nú
að undirbúningi jólamarkaðarins.
SKÓlAmál Samtök foreldrafélaga
og foreldraráða við grunnskóla
Kópavogs (SAMKÓP), Heimili og
skóli og Landssamtök foreldra
hafa undirritað samning þar sem
SAMKÓP skuldbindur sig til að
greiða félagsgjald til Heimilis og
skóla fyrir foreldrafélög allra
grunnskóla í Kópavogi. Samning-
urinn markar sérstök tímamót en
þetta er fyrsta formlega sam-
komulagið um slíkt samstarf og
með þessu vill SAMKÓP sýna
stuðning við það starf sem unnið
er innan Heimilis og skóla. - hs
Samið um félagsgjöld:
Heimili og skóli
fær stuðning
Heimatilbúið á jólamarkaði
Kjósverjar verða með jólamarkað í
Kaffi Kjós sunnudaginn 10. desem-
ber. Er fólk hvatt til að koma með
handverksmuni eða aðrar vörur og
selja. Hægt verður að velja sér jólatré
í Fossá.
KjósarHreppur
DÓmSmál Rúmlega tvítugur
maður var á mánudag dæmdur
til að greiða 180.000 krónur í
sektargreiðslu í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir fíkniefnasölu.
Maðurinn var handtekinn í
Reykjavík sumarið 2005 með
sextán töflur af vímuefninu
MDMA í fórum sínum sem hann
ætlaði til sölu og dreifingar.
MDMA er algengasta efnið sem
notað er í e-töflur.
Ákærði mætti ekki fyrir dóm
og því var málið dæmt í fjarveru
hans. Auk sektarinnar var mann-
inum gert að greiða rúmlega
100.000 krónur í sakarkostnað.
- þsj
Fíkniefnasali dæmdur:
Ákærði mætti
ekki fyrir dóm
VinnUmARKAðUR Nokkrir rafvirkj-
ar, sem starfa hér á landi á vegum
starfsmannaleigu, hafa ekki verið
skráðir hjá Vinnumálastofnun og
ekki hefur verið leitað eftir
staðfestingu á starfsréttindum
þeirra. Lögmaður Rafiðnaðarsam-
bandsins hefur farið fram á að
Vinnumálastofnun kanni hvort
stofnað hafi verið til ráðningar-
sambands við þá.
Á fundi Rafiðnaðarsambandsins
með starfmönnum annarrar
starfsmannaleigu í síðustu viku
kom í ljós að á hennar vegum var
rafvirki og hafði ekkert verið
gert til að fá starfsréttindi hans
staðfest. - ghs
Rafiðnaðarsambandið:
Nokkrir raf-
virkjar óskráðir