Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 8
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR8
16 stöðvar
af eldsneyti í dag á
öllum ÓB stöðvum
Jólasveinar munu koma færandi hendi á ÓB-
stöðina á Akranesi í dag, milli kl. 4 og 6, og
útdeila gjöfum frá Senu, Sögu og Icelandair.
Komdu við og fylltu bílinn, þú færð góðan
afslátt og hugsanlega jólagjöf í kaupbæti.
Allt um leikinn á www.ob.is
Jólastöð ÓB Akranesi
...votez en 2007
Sans attendre, inscrivez-vous
sur les listes électorales consulaires
avant le 30 décembre 2006
Français de l’étranger
Faites entendre votre voix...
TOUS RENSEIGNEMENTS SUR LES SITES
www.diplomatie.gouv.fr
rubrique "Election du Président de la République 2007"
et sur www.interieur.gouv.fr
IN
TÉ
RI
EU
R/
D
IC
O
M
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6
The North Face
flíspeysur
dömu og herra
Verð frá
5.990 kr.
ÍRAk, AP George W. Bush Banda-
ríkjaforseti og Nouri al-Maliki,
forsætisráðherra Íraks voru sam-
mála á fundi sínum í Jórdaníu í
gær um að Írakar þurfi sem fyrst
að taka að sér ábyrgð á öryggis-
málum í landinu og þá gæti banda-
ríski herinn farið að hugsa til
heimferðar. Hins vegar létu þeir
ekkert uppi um það hvernig þeir
ætluðu sér að fara að því að gera
íröskum öryggissveitum kleift að
taka við af 140 þúsund manna her
Bandaríkjanna.
„Hann er rétti maðurinn fyrir
Írak,“ sagði Bush að loknum fundi
þeirra, sem stóð í hálfa þriðju
klukkustund. Bush sagði einnig að
al-Maliki væri orðinn þreyttur á
því „hve seinir við höfum verið að
færa honum þau tæki sem hann
þarf til þess að vernda írösku þjóð-
ina.“
Í skjali frá Stephen Hadley,
þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkj-
anna, sem dagblaðið New York
Times birti á miðvikudag, kemur
fram að Hadley hefur alvarlegar
efasemdir um að al-Maliki ráði við
það verkefni að taka við stjórn
öryggismála af Bandaríkjamönn-
um. Annað hvort skorti hann til
þess allar forsendur eða þá að
hann hreinlega vilji það ekki, þótt
hann láti annað í veðri vaka í við-
ræðum við Bandaríkjamenn. - gb
Nouri al-Maliki og george W. Bush
Bandaríkjaforseti hlýðir á forsætis-
ráðherra Íraks á blaðamannafundi að
loknum fundi þeirra í Jórdaníu í gær.
fréttaBlaðið/afP
Fundur forsætisráðherra Íraks og forseta Bandaríkjanna í Jórdaníu:
Bush lofar Maliki meiri hjálp
DómSmál „Það verður athyglisvert
hvernig dómstólar líta það þegar
það er tekin ákvörðun gegn starfs-
manni sem er byggð á svona ósönn-
uðum fullyrðingum,“ segir Gísli
Hall, lögmaður hjúkrunarfræðings
sem fluttur var til í starfi frá geð-
deild Landspítalans yfir á Klepp
eftir að samstarfsmaður hennar sak-
aði hana um kynferðislega áreitni.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu átti hin meinta áreitni
sér stað á heimili konunnar. Starfs-
félagarnir höfðu fyrr um kvöldið
verið í boði hjá deildarstjóra sínum
en fengu far með einum starfsfé-
laga sinna í úthverfið þar sem þau
búa bæði. Hjúkrunarfræðingurinn
sem sakar konuna um áreitnina seg-
ist hafa verið blekktur inn á heimili
konunnar:
„Áður en við lögðum af stað úr
boðinu bað hún mig, svo margir
heyrðu, að koma með henni út að
ganga með hundinn hennar sem
annars yrði brjálaður. Hún sagði að
það væri perri í hverfinu sem hefði
flassað dóttur hennar og vinkonu
hennar og að ég gæti ekki lifað með
það á samviskunni ef henni yrði
nauðgað þegar hún væri að viðra
hundinn. Ég hringdi þá í konuna
mína á leiðinni og sagði henni frá
þessu.“
Lögmaður konunnar segir mann-
inn hafa verið hjá henni í um eina
og hálfa klukkustund og þegið þar
drykk.
„Viku síðar fór hann til lögreglu
og lét bóka eftir sér að hún hefði
áreitt hann kynferðislega. Hann
kvað hana gengið mjög nærri
honum til að fá hann til kynmaka.
Manni finnst nú að tveggja metra
maður hefði getað gengið út hefði
honum eitthvað verið misboðið,“
segir Gísli.
Maðurinn lýsir atburðarásinni
hins vegar þannig að þegar komið
hafi verið í úthverfið hafi konan
viljað sýna sér íbúðina sína.
„Hún býður mér í glas og stillir
því á ákveðinn stað þar sem ég átti
að sitja. Ég neyðist til að drekka.
Eftir dálítinn tíma hefur hún uppi
tilburði sem ég get ekki sætt mig
við en vil ekki lýsa því nánar nema í
ítrustu neyð,“ segir hjúkrunarfræð-
ingurinn.
Konan stefnir Landspítalanum
til að fá ákvörðunina ógilta og
dæmdar miskabætur.
„Það hefði verið nærtækara að
bjóða honum upp á flutning í starfi
ef hann treysti sér ekki til að halda
áfram frekar heldur en að láta það
bitna á henni. Hún hafði unnið þarna
lengur og er með mun meiri mennt-
un en hann. Þetta er hreint og klárt
einelti,“ segir Gísli Hall.
gar@frettabladid.is
Segist hafa
verið blekktur
í heimsókn
Hjúkrunarfræðingur sem sakar starfssystur sína um
kynferðisbrot segir hana hafa blekkt sig í heimsókn.
Lögmaður konunnar segir ásakanirnar tilhæfulausar.
Manni finnst nú að
tveggja metra maður
hefði getað gengið út hefði hon-
um eitthvað verið misboðið.
gísli hall
lögmaður
Enn vantar 26 starfsmenn til starfa
á frístundaheimilum í reykjavík. alls
eru 2.341 barn búið að fá pláss á
frístundaheimili en 68 bíða enn eftir
plássi. Samkvæmt upplýsingum frá
borgaryfirvöldum er fyrirhugað að
taka inn 19 börn í næstu viku. Óvíst
er hvenær þau 49 börn sem þá verða
á biðlista fá pláss.
frístuNdaheiMili
enn vantar 26 starfsmenn