Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 6
6 1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
HleRAniR Leigjendur í íbúð leikara-
hjónanna Arnars Jónssonar og Þór-
hildar Þorleifsdóttur, á sjöundu hæð
á Kleppsvegi 132 í Reykjavík, voru
hleraðir sumarið 1968. Þetta kemur
fram í bók Guðna Th. Jóhannesson-
ar sagnfræðings, Óvinir ríkisins –
ógnir og innra öryggi í kalda stríð-
inu á Íslandi, sem kom út í gær.
Arnar tók þátt í mótmælum vegna
komu herskipa til Íslands 1968 og
gekk „snarplega fram“, eins og orð-
rétt segir í bók Guðna og var þess
vegna undir sérstöku eftirliti lög-
reglu.
Arnar og Þórhildur leigðu út
íbúð sína á sumrin á þessum tíma
þar sem þau störfuðu utan höfuð-
borgarsvæðisins
á sumrin. Í bók
Guðna kemur
fram að yfir-
menn lögregl-
unnar hafi kom-
ist að því að í
sumum tilfellum
hafi þeir verið á
villigötum þar
sem „rangt fólk
var á línunni“. Átti þetta við síma í
íbúð Arnars og Þórhildar.
Arnar segir eftirlit lögreglu með
honum hafa komið í veg fyrir að
hann hafi fengið leikarahlutverk á
erlendum vettvangi. „Ég og Þór-
hildur ætluðum okkur að fara til
Ástralíu til að vinna við leiklist. Það
var allt saman frágengið en ég fékk
þá þau skilaboð frá breska sendi-
ráðinu að ekkert gæti orðið af þess-
um áætlunum þar sem ég væri á
svörtum lista og breska sendiráðið
þyrfti stundum að taka við skipun-
um frá öðru sendiráði,“ segir Arnar
og vísar til skipana frá bandaríska
sendiráðinu. „Þetta var sumarið
1968 og eftir að þetta kom upp gerð-
um við okkur grein fyrir því að eft-
irlit með einstaklingum var umtals-
vert á þessum tíma,“ segir Arnar.
Samtals voru veittar hlerunar-
heimildir hjá 33 einstaklingum en
nöfn þeirra allra eru ekki nefnd í
bók Guðna. Meðal annars nefnir
Guðni ekki nöfn þeirra sem rekja
má til tveggja símanúmera því erf-
iðlega gekk „að sjá hvers vegna þau
urðu fyrir valinu“, eins og orðrétt
segir í bók Guðna.
Í bókinni kemur fram að gögn-
um um Atlantshafsbandalagið sem
til voru í utanríkisráðuneytinu var
eytt árið 1956 af embættismönnum.
Í bókinni segir einnig að fréttastjóri
Ríkisútvarpsins árið 1969, Margrét
Indriðadóttir, hafi að mati breskra
yfirvalda verið velunnari kommún-
ista. Í breskri skýrslu frá 1972, sem
Guðni skoðaði við vinnslu bókarinn-
ar, kom fram að Margrét hefði verið
„þekktur velunnari kommúnista
[„communist sympathiser“]“ en
þess hefði reyndar gætt „furðu lítið
í fréttum útvarpsins“.
magnush@frettabladid.is
KjörKassinn
Atlantsolía - Vesturvör 29 - Sími 591 3100
atlantsolia@atlantsolia.is
Engar tapaðar
kvittanir
Nú er hægt að tengja Dælulykilinn
við netfang þannig að um
klukkustund eftir dælingu
kemur sjálfkrafa pdf- kvittun
með tölvupósti.
Kvittun í tölvupósti
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
7
0
6
RSK
Skráning í síma: 591-3100
Nú fæst 10% s‡r›i rjóminn
frá MS í handhægum
sprautuflöskum
N‡ju umbú›irnar eru einstaklega
flægilegar. fiær fl‡ta fyrir matseldinni
og henta vel í fjölbreytta rétti
– en innihaldi› er a› sjálfsög›u
sami frískandi og hitaeiningasnau›i
s‡r›i rjóminn
Ger›u fla› gott
me› s‡r›um rjóma – frá MS.
N‡jun
g!
Gefur þú blóð?
já 17,6%
nei 82,4%
spurningdagsinsídag
Var rétt að hækka umferðar-
sektir?
Segðu skoðun þína á visir.is
ÚrsKurðiroghleranir
1949 aðildíslandsaðatlantshafsbandalaginu
•26.marsveitt heimild til hlerana í 16 síma.
Magnús Kjartansson, Einar Olgeirsson, Áki Jakobsson, Eggert Þorbjarnarson,
Kristinn E. Andrésson, Brynjólfur Bjarnason, Sigurður Guðnason.
1951 heimsóKndwightseisenhower
•17.janÚar heimild til hlerana á 15 símum.
Magnús Kjartansson, Einar Olgeirsson, Áki Jakobsson, Eggert Þorbjarnarson,
Kristinn E. Andrésson, Sósíalistaflokkurinn (Sósíalistafélag Reykjavíkur), Þjóð-
viljinn, Verkamannafélagið Dagsbrún, Æskulýðsfylkingin, Mál og menning.
1951 KomabandaríKjahers
•24.aprílheimild til hlerana á 25 símum.
Magnús Kjartansson, Einar Olgeirsson, Áki Jakobsson, Eggert Þorbjarnarson,
Kristinn E. Andrésson, Brynjólfur Bjarnason, Sigurður Guðnason, Sósíal-
istaflokkurinn (Sósíalistafélag Reykjavíkur), Þjóðviljinn, Verkamannafélagið
Dagsbrún.
•4.maíEinu símanúmeri til viðbótar er bætt við listann.
1961 lausnlandhelgisgæslunnarviðbreta
•26.febrÚarHeimild til hlerunar á 14 símanúmerum.
Magnús Kjartansson, Einar Olgeirsson, Hannibal Valdimarsson, Brynjólfur
Bjarnason, Sigurður Guðnason, Lúðvík Jósepsson, Sósíalistaflokkurinn (Sósí-
alistafélag Reykjavíkur), Þjóðviljinn, Verkamannafélagið Dagsbrún, Æskulýðs-
fylkingin, Samtök hernámsandstæðinga, Alþýðusamband Íslands.
1963heimsóKnlyndonb.johnson
•12.septemberHeimild til hlerunar á sex símanúmerum.
Sósíalistaflokkurinn (Sósíalistafélag Reykjavíkur), Þjóðviljinn, Verkamannafé-
lagið Dagsbrún, Æskulýðsfylkingin, Samtök hernámsandstæðinga, Alþýðu-
samband Íslands, MÍR, Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna,
Magnús Kjartansson, Einar Olgeirsson.
1968 utanríKisráðherrafunduratlantshafsbandalagsins
•8.jÚníveitt heimild yfirsakadómara í Reykjavík til hlerunar á 17 símum.
Magnús Kjartansson, Ragnar Arnalds, Stefán Bjarnason og Rósa Kjartansdótt-
ir, foreldrar Ragnars Stefánssonar, Páll Bergþórsson, Lúðvík Jósepsson, Úlfur
Hjörvar rithöfundur, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Arnar Jónsson leikari,
Sósíalistaflokkurinn (Sósíalistafélag Reykjavíkur), Þjóðviljinn, Verkamannafé-
lagið Dagsbrún, Æskulýðsfylkingin, Samtök hernámsandstæðinga, Alþýðu-
samband Íslands, MÍR, Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna.
Heimild: Óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson
STjóRnmál Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra hefur lagt fram
frumvarp sem miðar að lækkun
matvælaverðs frá 1. mars á næsta
ári. Meginbreytingin felst í afnámi
vörugjalda og lækkun virðisauka-
skatts í sjö prósent.
Við þessa aðgerð verður virðis-
aukaskattur á áfengi sjö prósent
en til mótvægis er áfengisgjald
hækkað. Er það gert til að mæta
tekjutapi ríkissjóðs. Sú ráðstöfun
hefur verið gagnrýnd, meðal ann-
ars af Samtökum verslunar og
þjónustu og Samtökum ferðaiðn-
aðarins, sem benda á að við þetta
hækki verð á mest seldu bjórteg-
undum um allt að sautján prósent.
Árni M. Mathiesen segir skatta-
lækkun áfengis þýða tekjutap rík-
issjóðs upp á nokkra milljarða
króna og því sé mætt með hækkun
áfengisgjalds. „Tilgangur aðgerð-
arinnar var ekki að lækka verð á
áfengi heldur lækka verð á mat-
vöru.“
Þótt lögin eigi að taka gildi 1.
mars leggur Árni áherslu á að
þingið afgreiði málið fyrir jólahlé
enda grundvallist fjárlagafrum-
varp næsta árs á því að hluta.
Hann er bjartsýnn á að það takist
þó skammt sé til áætlaðra þing-
loka. „Þó í þessu séu flóknar töflur
og kannski flókinn texti þá er
þetta ekki flókið mál. Það hefur
verið til umfjöllunar í þinginu að
undanförnu og menn vel inni í því
sem þarna er lagt til.“
Þó verði varla héraðsbrestur
þótt málið hljóti ekki samþykki
þingsins fyrir jól. -bþs
Áfengisgjald hækkar til mótvægis við lækkun virðisaukaskatts á áfengi:
Ætlunin að lækka verð á mat ekki áfengi
árnim.mathiesenFjármálaráðherra
mælti fyrir frumvarpi til lækkunar mat-
vöruverðs í gær.
Hleruðu leigjendur í
íbúð á Kleppsvegi
Íbúar í íbúð Þórhildar Þorleifsdóttur og Arnars Jónssonar voru hleraðir sumar-
ið 1968. Eftirlit með Arnari kom í veg fyrir að hann fengi að fara til Ástralíu að
leika. Samtals voru á fjórða tug einstaklinga hleraðir af lögreglu 1949 til 1976.
HleRAniR „Ég hef vitað þetta lengi. Þeir voru
nú ekki lagnir við að fara leynt með þetta,“
segir Páll Bergþórsson veðurfræðingur en
heimilissími hans var hleraður árið 1968.
„Símtöl sem voru hleruð voru allt öðruvísi en
önnur símtöl. Þegar maður loksins fékk sam-
band var löng þögn og síðan smellir. Ég
ræddi þetta við aðra sem höfðu það á tilfinn-
ingunni að þeir hefðu verið hleraðir, meðal
annars Magnús Kjartansson, og hann hafði
alveg sömu sögu að segja.“
Magnús Kjartansson, þáverandi ritstjóri
Þjóðviljans, var hleraður oftast allra eða í öll
þau skipti sem hleranir voru heimilaðar frá
1949 til 1976.
Páll segir ekki mikla hættu hafa stafað af
sér en hugsanlega hafi yfirvöld talið hann lík-
legan til óspekta. „Ég var alls ekki óvinur rík-
isins á þessum tíma heldur fyrst og fremst
óvinur hersins. Ég var í samtökum herstöðvar-
andstæðinga en lét nú yfirleitt ekki mikið fyrir
mér fara. Hugsanlega var ég aðeins of nálægt
þeim sem voru með miklar óspektir en ég var
engum hættulegur.“ -mh
Páll Bergþórsson veðurfræðingur var einn þeirra sem var hleraður árið 1968:
Var einungis óvinur hersins
páll bergþórsson
arnarjónsson
HleRAniR „Ég tel að það sé full
ástæða til þess að þingið setji á
fót sérstaka rannsóknanefnd
sem hafi umboð til þess að kalla
til vitni.
Það er nauðsynlegt að fara
vel yfir allar upplýsingar sem til
eru um hleranirnar ekki síst
vegna nýlegra upplýsinga um
stórfelldar hleranir á símum
þingmanna á því tímabili sem
Guðni Th. hefur rannsakað.
Það þarf að svara öllum
spurningum sem upplýsingarnar
hafa kallað fram, meðal annars
hverjir hleruðu og hvað varð um
upplýsingarnar sem aflað var
með hlerununum.“ -mh
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Vill ítarlega
rannsókn