Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 91
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006 51
c 14.00 Helga Óskarsdóttir og
Kristinn Már Pálmason sýna verk
sín í Galleríi Kling & bang um
þessar mundir. Sýningarnar eru
opnar fimmtudaga til sunnudaga
milli 14 og 18.
n n SíðuStu Forvöð
c 13.00 Sýningu Kristínar Helgu
Káradóttur í Gryfju Listasafns ASÍ
lýkur um helgina. Kristín sýnir mynd-
bandsverk sem bera yfirskriftina
Þráðlaus tenging. Safnið er opið
alla daga, nema mánudaga frá 13-17.
Aðgangur er ókeypis.
n n FÉLAGSLíF
c 12.00 Íslandsklukkunni, lista-
verki Kristins E. Hrafnssonar, við
Háskólann á Akureyri verður hringt
sex sinnum, einu sinni fyrir hvert
skólaár umfram árið 2000. Baldvin
Jóh. Bjarnason fyrrverandi kennari
og skólastjóri hringir með aðstoð
Gunnars Aðalgeirs Arasonar, 5 ára
leikskólanema. Varaforseti háskóla-
ráðs og formaður Félags stúdenta
við HA munu flytja ávörp og eftir
barnasöng verður boðið upp á kakó
og smákökur í kaffiteríu skólans.
n n tónLeikAr
c 20.00 Sigrún Eðvaldsdóttir,
Gunnar Guðbjörnsson og Jónas
Ingimundarson syngja og leika ein-
söngslög, kórlög og rómönsur fyrir
fiðlu og píanó eftir Árna Björnsson
í Salnum í Kópavogi.
c 21.00 Halli Reynis heldur útgáfu-
tónleika á Café Rósenberg í
Lækjargötu. Diskur hans Fjögurra
manna far kemur út í tilefni af fer-
tugsafmæli tónlistarmannsins.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
FIMMTUDAGINN 7. DESEMBER KL. 19.30 – UPPSELT
LAUGARDAGINN 9. DESEMBER KL. 17.00 – LAUS SÆTI
Hljómsveitarstjóri ::: Jonas Alber
Einsöngvari ::: Denyce Graves
hátíðartónleikar í háskólabíói
„Ef mannsröddin getur snert mann
þá mun Denyce Graves svo sannarlega hreyfa þig úr stað.“
ATLANTA JOURNAL-CONSTITUTION
Denyce Graves, mezzosópran, er ein mest spennandi söngstjarna heims
um þessar mundir og því mikið fagnaðarefni að hún skuli koma fram á
tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ferill Graves hófst með miklum sprengikrafti, þegar hún debúteraði í
hlutverkinu Carmen í Metropolitan-óperunni í New York, og hlaut ein-
róma lof gagnrýnenda fyrir. Graves er eftirsótt af þekktustu óperuhúsum
heims, enda hefur segulmagnaður sviðsþokki hennar og framkoma vakið
gríðarlega eftirtekt. Efnisskrá tónleikanna í Háskólabíói er víðfeðm og
spennandi, enda Graves fjölhæfur og frábær flytjandi.
Söngstjarna
21. aldarinnar
„... með sláandi sviðsþokka og stórbrotinni túlkun tókst henni
að halda áheyrendum hugföngnum í fjórum uppklöppum.“
NEW YORK TIMES
jessye norman forfallast. Af óviðráðanlegum orsökum getur söngkonan Jessye Norman ekki
komið fram á tónleikunum eins og fyrirhugað var. Þeim sem þegar hafa keypt miða á þessa tónleika er bent á að
hafa samband við miðasölu í síma 545 2500 eða koma við á skrifstofunni í Háskólabíói, sé endurgreiðslu óskað.