Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 42
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR6
Bækurnar Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt eftir Guðrúnu
Jóhannsdóttur birta 50 upp-
skriftir hvor af næringarríkum
og girnilegum réttum. Hér er
uppskrift að ítölskum tvíbök-
um, Biscotti, tekin úr bókinni
Hollt og ódýrt.
Flestar þjóðir eiga sína tegund af
tvíbökum. Ítalskt biscotti er
fádæma gott meðlæti, bæði með
ekta góðum kaffibolla og er ekki
síðra með ilmandi gullnu glasi af
víni frá Toscana. Á Ítalíu ku hvert
hérað eiga sína gerð af biscotti.
Upplagt er að hjúpa tvíbökurnar
með súkkulaði eða bæta rifnum
sítrónuberki í uppskriftina til til-
breytingar.
3 1/2 dl sykur
5 dl hveiti
1/4 tsk. matarsódi
1/4 tsk. salt
150 g möndlur með hýði
4 stór egg
2 matsk. smjör
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. möndludropar
1 dl hveiti til að hnoða með.
1. Ristið möndlurnar á heitri
pönnu og setjið þær svo til hliðar
til kælingar.
2. Blandið sykri, hveiti, matar-
sóda og salti saman í skál. Bætið
eggjum, smjöri, dropum og möndl-
um út í og hrærið með sleif eða í
hrærivél þar til degið loðir vel
saman. Best að hræra eins lítið og
hægt er.
3. Flytjið deigið á borð þakið
hveiti og hnoðið 1 dl aukalega af
hveiti saman við deigið ef þarf.
Deigið á þó að vera pínulítið klístr-
að.
4. Dustið hendurnar með hveiti
og mótið 5-6 hleifa sem eru um
4x20 cm að stærð og raðið þeim á
vel smurða bökunarplötu. Hafið
a.m.k. 5 cm á milli hleifanna þar
sem þeir renna út við bökun. Bakið
í ofni við 200°C í um 20 mínútur
eða þar til hleifarnir eru fallega
gullnir, takið þá svo úr ofninum og
látið kólna.
5. Skáskerið hvern hleif í um
1,5 cm þykkar kökur, raðið þeim á
bökunarplötu og bakið aftur í um
10 mínútur.
Gómsætt og hollt
Biscotti bragðast afar vel að sögn ljósmyndarans Gunnars Andréssonar sem fékk að
smakka á þeim nýbökuðum. mynd/GvA
Fagmenn í fóðurleit
Út að borða með LioneL
Svarta kaffið
LAuGAveGi 54
Á því herrans ári hundsins 4704
útskrifuðust Sigurður eggertsson
og Þorbjörn Sigurbjörnsson úr
Háskóla Íslands og hlutu réttindi til
þess að bera titilinn fagmaður. Fag-
mennirnir réðust strax í sitt fyrsta
verkefni; að gera úttekt á fóðri því
sem boðið er upp á í hádeginu á
Laugaveginum.
Allir staðir skulu metnir, allir réttir skulu etnir. við
mætum á sérhvern stað með opinn huga, þandar nasir
og smurt vélinda. við gætum þess að mæta ónærðir til
leiks svo að ytri aðstæður mengi ekki dómgreind okkar.
Kennaraeinkunn er gefin í fiskum og eins og gefur að
skilja er mest hægt að fá 37 fiska.
Borðað: Aðall: Lasagna að hætti Svarta kaffis. Aftan:
Frönsk súkkulaðikaka og svart kaffi.
Gæði fæðis: Aðall: Lasagnað var mjög bragðgott en
nokkuð seigt. Fílíngurinn var eins og að japla á gömlu
en þó bragðgóðu húbba búbba tyggjói. Lasagnað var
af skornum skammti og reynt var að breiða yfir nískuna
með salati. Troðfullur diskur af salati með smá lasagna-
klípu vakti þá tilfinningu að við
hefðum í raun pantað okkur salat.
Það er rangt. við gerðum það ekki.
Aftan: Sú franska var ljúffeng en að
sama skapi „petite“. Svarta kaffið var
virkilega gott.
verð: 1800 karl fyrir lítinn aðal og
lítinn aftan. verulega hátt verð fyrir
verulega smávaxinn snæðing.
Þjónusta: Fullkomin þjónusta. Liðug
og löguleg þjónustumær uppfyllti
allar okkar leyndustu óskir. Þjónust-
an bjargaði staðnum frá niðurlægingu.
Stemning: Tryllt heimsvaldastefnustemning. Lekker stað-
ur (svo maður sletti nú aðeins á hollensku), innviði klætt
viði með viðarmunum á veggjum djúpt úr svörtustu
Afríku.
dollan: einkennileg hönnun þar sem herbergið sjálft er
rúmgott en dollan er staðsett úti í horni.
Annað: Pirrandi að fara út af veitingastað svangur.
Fagmenn þakka fóðrið.
KennaraeinKunn: 18 FisKar aF 37.
ÍSLENSKT HRÁEFNI ELDAÐ Á KÓRESKAN MÁTA
Við á Galbi bjóðum upp á ferskt og vel valið
hráefni sem þú grillar á ekta kóreskri
grillpönnu, sér innflutt fyrir okkur.
JÓLA TILBOÐ GALBI
Gerið eitthvað skemmtilegt og öðruvísi um jólin!
Þú velur á milli tveggja forrétta,
sjávarréttasúpu eða jarðarberja- og valhnetusalats.
Svo er val á milli tveggja aðalrétta,
nautafille í engifer eða
steinbíts í myntu.
Við gerum hráefnið klárt og hjálpum ykkur af stað.
Val á milli tveggja deserta,
súkkulaði- og karamelluköku
eða jarðarberjaostaköku
Aðeins 4.200 kr. á mann*!
*Ath. Tilboðið gildir frá 1. desember til 23. desember, gildir ekki með öðrum tilboðum.
Galbi Restaurant and Bar • Barónsstígur 2-4 • 101 Reykjavík, Iceland
Sími (+354) 544 4448 • Pöntunarsími (+354) 867 4448 • Tölvup. galbi@galbi.is
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
I�mu� �� jó�um