Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 76
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR24
Dagskrárgerðarmaðurinn Freyr
Eyjólfsson hefði áhuga á að hefja
sína draumahelgi með heimsókn til
hirðar Loðvíks XIV Frakklandskon-
ungs. „Þegar ég liti við væri falleg
sumarveisla í hallargarðinum, þar
sem engu væri til sparað,“ segir
hann. „Tónlist leikin í hverju horni
og margrétta máltíðir á boðstól-
um.“
Freyr myndi borða eins og hann
gæti í sig látið í veislunni, svo að
hann yrði vel nærður fyrir helgina.
„Um kvöldið brygði ég mér síðan á
gott Bítlaball á Starclub í Ham-
borg,“ segir hann.
Tímaflakki Freys væri þó ekki
nærri lokið í Þýskalandi. Morguninn
eftir færi hann aftur til Júratíma-
bilsins til að skoða friðsamlegar
þórseðlur og fleiri risaeðlur. „Þaðan
héldi ég til Snorra Sturlusonar í
Reykholti og þiggði hjá honum
veitingar,“ segir hann. „Myndi rétt
staldra við þar sem ég væri að fara
í rómverska svallveislu um kvöldið.
Ætla ég myndi síðan ekki slaufa
laugardeginum með því að ná í
skottið á Plast-tónleikum í London
árið 1976.“
Freyr er nánast móður eftir
alla upptalninguna, sem er ekki
undarlegt með hliðsjón af öllu
þessu brölti. Hann myndi því að
vonum vilja verja sunnudeginum í
almenna afslöppun. „Ætli ég læsi
ekki bara góða bók uppi í rúmi,
drykki te og hlustaði á Tímaflakk á
Rás2,“ segir hann glaður í bragði.
draumahelgi
Sumarveisla hjá Loðvík XIV
Freyr myndi vilja skoða
Þórseðlur á júratímabilinu.
MynD/HóLMFRíðUR anna BaLDURSDóTTIR
að sumir sjófuglar hafa frumlegan
hátt á að vernda unga sína? Þegar
hætta steðjar að sökkvir foreldrið
sér í vatn svo einungis bakið stendur
upp úr. Því næst klifra ungarnir upp
á bakið á honum og hann syndir
með þá á öruggan stað.
að sjófuglar hafa saltkirtla fyrir ofan
augun sem gerir þeim kleift að
drekka sjó? Snákar sem lifa í sjó hafa
svipaða kirtla aftast á tungunni.
að sjónvarpshundurinn Lassie birtist
fyrst á fjórða áratug síðustu aldar
í smásögunni Lassie Come Home
eftir Eric Mowbray Knight? Fyrirmynd
Lassie var hundur höfundarins,
Toots.
að svansfjaðrir voru notaðar á
19. öld í púðurkvasta fyrir konur?
Svansfjaðrir voru einnig notaðar til
að skreyta hatta.
að skjaldbökumóðir grætur þegar
hún verpir eggjum sínum? Þó hvorki
af sorg né gleði heldur til að skola
sand úr augunum og til að losa sig
við steinefni.
að skjaldbökur hafa ekki tennur
heldur harða, hyrnda kjálka sem
gerir þeim kleift að tyggja matinn?
að skottlangur er hálfbjörn sem eins
og nafnið gefur til kynna hefur einkar
langa rófu? Rófan er næstum tvöfalt
lengri en búkurinn og á hverri nóttu
leggst skottlangurinn ofan á hring-
aða rófuna og notar sem kodda.
að skógarmúrmeldýrið, sem lifir í
norðausturhluta Bandaríkjanna og
Kanada, andar yfir 2.100 sinnum á
klukkustund undir venjulegum kring-
umstæðum en einungis 10 sinnum
þegar það liggur í vetrardvala?
að skógarsnípa hefur augu ofarlega á
höfðinu og getur horft á sama tíma
aftur fyrir sig og upp, fram fyrir sig og
upp og til vinstri og hægri og hefur
allt að 180 gráðu sjónsvið á hvoru
auga?
að skrápur kvenkyns bláháfa er
tvöfalt þykkari en karldýrsins?
að skriðdýr eru ekki slímug heldur
eru þau eins og silki viðkomu?
að skröltormar hópa sig saman til
þess að halda á sér hita á meðan
þeir liggja í vetrardvala? Stundum
hringa sig saman allt að þúsund
snákar.
að skunkar geta varið sig með fleiru
en fnyk? Þeir þola t.d. fimmfalt það
magn af snákaeitri sem nægir til að
drepa kanínu.
að snákar geta melt tennur og bein
en ekki hár?
að snákar hafa ekki augnlok og
geta því aldrei lokað augunum, ekki
heldur þegar þeir sofa? augun eru
þakin þunnu varnarlagi úr gagnsæju
hreistri.
að snákar hafa ekki þvaglát í venju-
legum skilningi? Þeir losa sig við
úrgang í formi þvagsýru sem er fast,
kalkkennt efni, yfirleitt hvítt á lit.
að sniglar hafa fjögur nef?
að snæhlébarðar geta ekki öskrað
líkt og hin stóru kattardýrin?
að Starbuck, kandískur boli sem
feðraði yfir 200.000 kýr og jafnmörg
naut um ævina,ávann eiganda
sínum yfir 25 milljónir bandaríkja-
dala áður en hann dó árið 1998?
Frosið sæði hans selst enn á 250
dali skammturinn.
að Stokkendur gera sér hreiður í
mikilli hæð,stundum í allt að 12
metra hæð? Þrátt fyrir það kemur
það sjaldan fyrir að ungarnir meiðist
þegar þeir detta úr hreiðrinu.
að stórir engisprettusveimar geta
étið yfir 80 þúsund tonn af korni á
einum degi?
að strútar hafa aðeins tvær klær á
hvorum fæti en flestir aðrir fuglar
hafa þrjár eða fjórar?
að strútar hafa fjögur augnlok í
hverju auga? Innri augnlokin eru til
að depla augunum og halda þeim
rökum en þau ytri eru notuð til að
senda öðrum strútum merki í kyn-
ferðislegum tilgangi?
vissir Þú...