Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
1. desember 2006 — 322. tölublað — 6. árgangur
Smá
Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað
tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í
fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj-
ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér-
staka leiðangra að leita að kryddi.Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún
hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm
þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel
miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan-
lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan
matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók
sem heitir Hollt og ódýrt. „Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en
aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf-
semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa
mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir
annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst
líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni
hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam-
bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að
prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum.
Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum
heillandi.“
Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt
með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til-
heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt
en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara
við ódýru uppskriftirnar. Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég
byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós-
myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það
hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við
ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur
það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd-
un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“
Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að
ítölskum tvíbökum á bls. 6.
Óhrædd við að prófa sig áfram
VEÐRIÐ Í DAG
ELÍSABET EYÞÓRSDÓTTIR
Stolt af því að
vera dóttir Ellenar
Rauða nefið • Tíska • Jólamatur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Gefur út tvær handhægar
matreiðslubækur
• Matur • Tilboð • Langur laugardagur • Jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
SD
AG
SK
RÁ
IN
em
be
r
tíska tíðarandinn heilsa börn pistlar matur stjörnuspá
með rauða nefið
STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA DÓTTIR ELLENAR» Elísabet Eyþórsdóttir
MATUR » Desemberkaka
í jólalitunum
DAGUR RAUÐA NEFSINS» Landssöfnun
UNICEF
Tvískinnungur
„Maó var þó að minnsta kosti
jafnmikil ófreskja í mannsmynd
og Hitler. Munurinn er sá, að eftir
seinni heimsstyrjöld var gert ræki-
lega upp við Hitler,“ segir Hannes
H. Gissurarson.
Í DAG 34
Skórnir nálgast hilluna
Landsliðskonan Harpa
Melsted segist
vera að íhuga að
leggja skóna á
hilluna.
ÍÞRÓTTIR 66
Löggilt menntun meistara í iðngreinum
tryggir viðskiptavinum faglega þjónustu
og lausnir að þörfum hvers og eins.
og framleiðsla
er góð gjöf
Íslensk
hönnun
Samtök iðnaðarins hvetja landsmenn
að skipta aðeins við fagfólk með
tilskilin réttindi og það er að finna á:
www.meistarinn.is
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
Jóladagatal eldist vel
Guðfinna Rúnarsdóttir
lék í jóladagatalinu
Stjörnustrák fyrir 15
árum og er ánægð með
útkomuna enn þann
dag í dag.
FÓLK 70
Yndislegt starf
Guðbjörg Guðjónsdóttir og Hildur
Sigurðardóttir hafa unnið á leik-
skólanum Foldaborg í tuttugu ár
og finnst starfið
yndislegt.
TÍMAMÓT 40
STORMUR - Í dag verður norðan
stormur norðvestan og vestan til
annars hægari. Úrkomulítið sunnan
til annars rigning eða slydda. Hiti
0-6 stig, mildast sunnan til. VEÐUR 4
BRETLAND Friðargæsluliðar Sam-
einuðu þjóðanna á Haítí og í Líb-
eríu hafa verið sakaðir um að
beita börn þar kynferðisofbeldi.
Þetta kom fram á fréttavef
breska ríkisútvarpsins, BBC, í
gær. Bæði er um nauðganir og
vændi að ræða og munu ungar
stúlkur hafa sagt fréttamönnum
BBC frá viðskiptum við friðar-
gæsluliðana, sem kröfðust kyn-
maka í staðinn fyrir mat eða fé,
sagði í fréttinni. Ráðamenn innan
SÞ láta nú rannsaka ásakanirnar.
Á síðustu árum hefur komist
upp um ýmislegt misjafnt meðal
friðargæsluliða SÞ, svo sem
barnaníðingahringur sem nokkr-
ir þeirra stjórnuðu í Lýðveldinu
Kongó og vændisrekstur í Kós-
óvó. Aðstoðarframkvæmdastjóri
friðargæslu SÞ, Jane Holl Lute,
viðurkennir að kynferðisofbeldi
sé víðtækt innan stofnunarinnar.
„Við höfum átt við vandamál að
stríða, sennilega síðan fyrst var
farið að sinna friðargæslu,“ sagði
hún. „Mér skilst að þetta sé ann-
aðhvort vandamál eða hugsanlegt
vandamál í hverri einni og ein-
ustu för sem við förum í.“
Ráðstefna um kynferðislegt
ofbeldi friðargæsluliða verður
haldin í New York í Bandaríkjun-
um á mánudaginn.
- smk
Friðargæsluliðar SÞ á Haítí og í Líberíu:
Sakaðir um að
nauðga börnum
KÁRI Í JÖTUNMÓÐ Hvasst var í höfuðborginni í gær og einnig víðast hvar á sunnan- og vestanverðu landinu. Ekki fóru þeir sem lögðu leið sína um sjávarsíðuna varhluta af
því eins og þessi mynd frá Reykjavíkurhöfn ber með sér. Hvassviðri er spáð áfram í dag og hefur Veðurstofan sent frá sér stormviðvörun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HLERANIR Heimasímar átta manna
sem allir áttu sæti á Alþingi á
árunum 1949 til 1968, voru hler-
aðir um tíma. Þetta kemur fram í
bók Guðna Th. Jóhannessonar
sagnfræðings, Óvinir ríkisins –
ógnir og innra öryggi í kalda
stríðinu á Íslandi.
Samtals voru veittar 33 heim-
ildir til hlerunar á símum ein-
staklinga og átta félagasamtaka
og fyrirtækja á árunum 1949 til
1976. Magnús Kjartansson,
þáverandi ritstjóri Þjóðviljans,
var hleraður oftast allra eða í öll
þau skipti sem hleranir voru
heimilaðar að gengnum dómsúr-
skurði.
Jón Sigurðsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir
nauðsynlegt að skoða öll gögn um
hleranirnar til hlítar. Hann segir
nefnd hafa verið skipaða um
málið sem eigi eftir að ljúka
sínum störfum. „Það er búið að
taka ákvarðanir um hvernig eigi
að rannsaka þessi gögn. Ég tel
það óskynsamlegt að vera með
margar rannsóknir í gangi í einu
en það er mikilvægt að rannsaka
þetta faglega og vel. Umfangið á
hlerununum kemur mér á óvart
en ég hafði heyrt af þessu áður
og við sem vorum herstöðvar-
andstæðingar trúðum því alltaf
að hleranir væru stundaðar.“
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra telur rannsókn á hler-
unum vera í réttum farvegi.
Hann telur sérstaka rannsóknar-
nefnd óþarfa. „Ég tel að málið sé
í réttum farvegi. Að baki öllum
ákvörðunum um þetta standa
dómsúrskurðir um heimild til
lögreglunnar og er byggt á þeim.
Hins vegar hefur ekki verið leitt
í ljós hvort símar voru hleraðir
eða ekki. Ég tel að sérstök rann-
sóknarnefnd muni ekki bæta
neinu við í þessu máli.“
Leigjendur í íbúð Arnars Jóns-
sonar leikara og Þórhildar Þor-
leifsdóttur leikstjóra voru hler-
aðir sumarið 1968 fyrir mistök.
Ætlunin var að hlera Arnar í til-
efni af utanríkisráðherrafundi
Atlantshafsbandalagsins í
Reykjavík. Arnari var einnig
meinuð för til Ástralíu vegna eft-
irlits með honum. - mh / sjá síðu 6
Ráðherra telur ekki ljóst
hvort símar voru hleraðir
Samtals var úrskurðað um hlerun hjá 33 einstaklingum á árunum 1949 til 1976. Dómsmálaráðherra telur
óþarfi að skipa sérstaka rannsóknarnefnd. Umfangið á hlerununum kemur á óvart, segir Jón Sigurðsson.
VESTURBAKKINN, AP Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu, ætlar
ekki lengur að reyna að ná
stjórnarmyndunar-
samkomulagi við
Hamas-hreyfing-
una herskáu sem
situr í meirihluta-
stjórn Palestínu. Í
staðinn segist hann
ætla að funda með
æðstaráði Frelsis-
samtaka Palestínu,
PLO, og ákveða hvert framhald-
ið verður. Abbas hefur undan-
farið reynt að mynda stjórn
með Hamas í tilraun til að binda
enda á refsiaðgerðir Vestur-
landa og endurvekja friðarvið-
ræður Palestínumanna við
Ísrael. - smk
Forseti Palestínu:
Gefst upp á
Hamas
MAHMOUD
ABBAS