Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 82
1. desember 2006 FÖSTUDAGUR
Látum okkur sjá! Ég
á uppþvottavélina,
þvottavélina og
þurrkarann.
Sjónvarpið,
örbylgjuofninn
og leirtau fyrir 12
manns.
Þú komst með
bolla sem stendur á
“Graður”, plötuspilara
og gríðarlegt magn af
Kiss plötum!
48
stykki.
Með öðrum
orðum, ég á
þetta allt og þú
átt ekkert!
Ég sagði það,
við bætum
hvort annað
fullkomlega
upp!
Veistu, ég held að Palli hafi
skríkt eins og smástelpa í
símann!
Tja ... þrjár hryllingsmyndir
geta hrætt hvern sem er...
Sérstaklega heima
hjá okkur!
Vatnshitarinn fer að
láta heyra í sér um
kvöldmatarleytið Hver er þar!
Klikk!
Smellir
Brak!
Hér stendur að bölvun
Klulaki konungs hvíli yfir
öllum þeim sem voga
sér inn á grafreit hans.
Ef þú hefur áður orðið
fyrir bölvun Klulakis,
ertu beðinn afsökunar á
þessum skilaboðum.
Jæja, nú skulum við
fara að taka þetta
alvarlega. Ég er
lagstur í dvala. Við
sjáumst í mars.
Jamm!
Maaatur!!!
Halló!
Hæ, Solla, þetta er Linda
má ég tala við mömmu
þína?
Hún er
upptekin.
Ertu til í að biðja hana að
hringja til baka í mig, það er
mikilvægt!
Nokkrum dögum seinna ...
Já, Linda vill að þú
hringir í sig, það er
mikilvægt!Já, geri
það!
Sumir vilja meina að
það nafn sem barni
er gefið hafi áhrif
á allt þess líf og
því skipti miklu
máli að vanda
valið. Skiptar
skoðanir eru þó
um ágæti nafna
og á meðan einhverjum finnst
mikilvægt að heita nafni sem sker
sig úr finnst öðrum best að deila
nafninu sínu með sem flestum.
Persónulega er ég mjög hrifin af
sérstökum og sjaldgæfum nöfnum.
Mér finnst fjölbreytni í nafngiftum
ekki hafa verið neitt gífurleg hjá
Íslendingum í gegnum tíðina og
stundum verð ég ferlega pirruð
þegar ég þarf að finna einhvern í
símaskránni sem heitir algengu
nafni og á kannski tvö til þrjú
hundruð alnafna eða nöfnur.
Stundum er talað um að það geti
verið erfitt fyrir börn að heita sér-
stökum nöfnum og orsaki stríðni en
á öllum málum eru tvær hliðar og
sá sem heitir sérstöku nafni á síður
á hættu að fá eitthvert leiðinlegt
uppnefni. Í bekkjum þar sem marg-
ir heita sama nafni eru þeir oft
aðgreindir með misskemmtilegum
viðurnefnum. Fjórir Guðmundar
geta til dæmis allt í einu verið orðn-
ir Gummi litli, Gummi feiti, Gummi
sóði og Gummi með gleraugun.
Síðustu ár hafa ungir foreldrar
svolítið verið að prófa sig áfram í
nafngiftum og fjöldi barna heitir nú
nöfnum sem hafa lítið verið notuð
áður. Því miður eru ekki allir frum-
legir í frumlegheitunum og foreldr-
ar sem töldu sig hafa fundið ein-
stakt nafn á barnið sitt geta lent í
því að það er með fimm eða sex
öðrum börnum í bekk sem heita
sama nafni. Fjölbreytnin er því ekki
endilega meiri þó að augljós kyn-
slóðamunur sé á nöfnum. Svo aug-
ljós að lítill vitringur spurði vin-
konu mína einu sinni hvenær börn
færu að heita fullorðinsnöfnum.
Ég spái því þess vegna að þessi
frumlegheit eigi eftir að ganga yfir
og að ekki líði á löngu þangað til að
foreldrar sem vilja vera virkilega
frumlegir skíri börnin sín bara Jón
og Guðrúnu. Þegar fram líða stund-
ir verður nefnilega ekkert mál að
finna Jón Jónsson í símaskránni.
Stuð milli Stríða leitað í símaskránni
EmilíA ÖRlyGSDóTTiR á enga alnöfnu