Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 24
[Hlutabréf]
Fyrirtæki sem gera vilja
upp í erlendri mynt
þurfa að sækja um það
til ársreikningaskrár.
Frá árinu 2002 hafa 167
fyrirtæki fengið slíka
heimild, tæp 60 prósent
í Bandaríkjadölum og
tæpur þriðjungur í evr-
um. Fyrir ári var tæpur
fjórðungur í evrum.
Um áramót höfðu 167 fyrirtæki
fengið heimild til að færa bókhald
sitt í erlendri mynt. Í lögum um
ársreikninga er kveðið á um hvaða
skilmála fyrirtæki þurfa að upp-
fylla til að fá heimild til að breyta
uppgjöri sínu á þann veg og hve-
nær umsókn um slíkt þarf að ber-
ast.
„Umsókn um heimild til færslu
bókhalds og samningar ársreikn-
ings í erlendum gjaldmiðli skal
berast ársreikningaskrá tveimur
mánuðum fyrir upphaf viðkom-
andi reikningsárs,“ segir þar
meðal annars.
Guðmundur Guðbjarnarson,
forstöðumaður ársreikningaskrár
hjá Ríkisskattstjóra, segir að
heimild sé veitt til að færa upp-
gjörið í erlenda mynt uppfylli
félög skilmála laganna. „Tíma-
mörkin eru svo sett til þess að
tryggja að ekki sé um neina
skyndiákvörðun að ræða hjá fyr-
irtækjunum, heldur sé þetta gert
að vel athuguðu máli.“
Til dæmis nægir félögum að
sýna fram á að þau séu með meg-
instarfsemi sína erlendis eða séu
hluti erlendrar samstæðu þar sem
starfrækslugjaldmiðillinn er
annar en króna. Þá geta einnig
fengið slíka heimild félög sem
eiga erlend dótturfélög, eða hafa
meginstarfsemi hér en eru með
verulegan hluta tekna sinna
erlendis frá í öðrum gjaldmiðli en
krónum. Eins geta fengið heimild
til að gera upp í erlendri mynt
félög sem hafa verulegan hluta
fjárfestinga sinna í erlendum
fjárfestingarvörum og skuldir
þeim tengdar í erlendum gjald-
miðlum. „Svo er spurningin bara
hvernig fyrirtækin leggja þetta
fram í sinni umsókn, hvort þau
uppfylli þessi skilyrði,“ segir
Guðmundur, en umsóknum er
hafnað geri þau það ekki.
Guðmundur segir að af þeim
félögum sem fengið hafa heimild
geri flest, 98 eða 58,7 prósent, upp
í Bandaríkjadal. Þar á eftir kemur
51 fyrirtæki sem gerir upp í evru,
eða 30,5 prósent. Þetta er nokkur
breyting frá árslokum 2005 þegar
65 prósent fyrirtækja gerðu upp í
Bandaríkjadal og 24 prósent í
evrum.
Í þriðja sæti um algengustu
erlendu uppgjörsmyntina er svo
enskt pund, en níu fyrirtæki gera
upp í því, eða 5,3 prósent. Meðal
annarra gjaldmiðla sem félög
gera upp í eru norsk og dönsk
króna og japanskt jen. Þá segir
Guðmundur að þó nokkur einka-
hlutafélög hafi fengið heimild til
að færa hlutafé í erlendri mynt,
en um það gildi nokkuð önnur lög-
mál en um skráð félög, þar sem
hlutaféð sé ekki gefið út og gangi
ekki kaupum og sölum með hefð-
bundnum hætti.
Bræðurnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir hafa selt hlut sinn í
Hanza-hópnum ehf. til Merlu ehf.
Merla er félag í eigu Róberts
Melax.
Hanza-hópurinn hefur
verið áberandi á fasteigna-
markaðnum síðustu misser-
in, meðal annars byggt fjög-
ur lyftuhús á svokölluðum
„Rafha-reit“ í Hafnarfirði,
að því er fram kemur í til-
kynningu. „Þá stendur hóp-
urinn að endurbyggingu
DV-hússins í Þverholti og nýbygg-
ingu verslunar- og íbúðarhúss í
miðbæ Hafnarfjarðar. Fyrirtækið
er einnig að reisa 335 íbúðir í Arn-
arneshæð og þróa nýtt íbúðarhverfi
á Kársnesinu í Kópavogi.“
Róbert er kunnur úr ís-
lensku viðskiptalífi. Hann
er stofnandi Lyfju, fyrrum
eigandi Dags Group og er
forstjóri Open Hand í Lond-
on.
Bræðurnir Arnar og
Bjarki eru sagðir hafa snúið
sér að eigin fjárfestingum
auk þess sem þeir spila
báðir með FH í fótboltanum á næsta
tímabili.
Breyttur Hanza-hópur
Orkuveita Reykjavíkur hefur
fengið lánshæfiseinkunnina Aa2
frá matsfyrirtækinu Moody´s og
eru framtíðarhorfur fyrirtækisins
sagðar stöðugar. Fram kemur að
lítil eða óveruleg áhætta er í
rekstri OR og vægi tekna félags-
ins af samkeppnisrekstri muni
aukast sem dragi úr áhættu.
„Orkuveitan er að búa sig undir
framtíðina. Það eru mikar fjár-
festingar hjá okkur á næstu sex til
sjö árum og fyrirtækið vill hafa
alla möguleika á fjármögnun. Við
teljum gott að gera það núna
þannig að við höfum rúman tíma
fyrir okkur,“ segir Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri OR, en unnið
hefur verið að matinu undanfarna
tíu mánuði. Hann bendir á að þetta
gefi fyrirtækinu færi á að fara út
á alþjóðlegan skuldabréfamarkað
til að leita bestu lánskjara.
Moody´s telur jafnframt að OR
sé sterkt fyrirtæki og ekki dragi
úr styrk þess að Reykjavíkurborg
skuli vera stærsti eigandinn.
Einkunnin er sú þriðja besta
sem íslenskt fyrirtæki fær. Fyrir
ofan OR eru Íbúðalánasjóður og
Landsvirkjun, sem njóta ríkis-
ábyrgðar, en viðskiptabankarnir
þrír og Straumur-Burðarás bera
lægri einkunnir en OR.
OR fær lánshæfis-
einkunn frá Moodý s Sportvörukeðjan JJB Sports skil-aði ágætri jólasölu og auknum
hagnaði miðað við sama tíma árið
áður, þökk sé
mikilli sölu á
fótboltatreyj-
um vinsælustu
félagsliðanna í
ensku úrvals-
deildinni.
Mesta salan
liggur í treyj-
um Manchest-
er Utd. en
mikil ásókn
hefur enn
fremur verið í
treyjur Liver-
pool.
Helstu samkeppnisaðilar JJB
Sports eru stórmarkaðir og Sports-
world sem er önnur stór sportvöru-
verslanakeðja. Líkur eru á því að
fyrirtækið verði tekið yfir af
breskum fjárfestingasjóðum og þá
hefur einnig nafn Baugs verið
nefnt til sögunnar sem áhugasam-
ur kaupandi.
Fótboltatreyjur
gefa gott spark
Englandsbanki kom á óvart í
gær þegar hann ákvað að hækka
stýrivexti í Bretlandi um 25
punkta í 5,25 prósent að loknum
tveggja daga fundi peninga-
málanefndar bankans. Evrópski
seðlabankinn ákvað hins vegar
að halda stýrivöxtum óbreytt-
um í 3,5 prósentum.
Almennt var reiknað með að
Englandsbanki myndi halda
vöxtum óbreyttum. Greinendur
nú eru sagðir rýna í ummæli
Jean-Claude Trichet, banka-
stjóra evrópska seðlabankans,
til að sjá hvort hann ætli að
fylgja fordæminu.
Óvænt stýrivaxtahækkun
Peningaskápurinn ...
GRAND PARMA
ÞURRVERKAÐ GRÍSAKJÖT