Fréttablaðið - 12.01.2007, Page 32

Fréttablaðið - 12.01.2007, Page 32
Harpa Hrund Pálsdóttir kaffibarþjónn segist tengjast ótrúlegustu hlutum tilfinninga- böndum. Á síðasta ári festu Harpa og ást- maður hennar kaup á íbúð í Norður- mýrinni. Það segir hún að hafi verið bestu kaup ævi sinnar. „Við erum búin að vera lengi að koma okkur fyrir enda margt sem þurfti að laga í íbúðinni og enn fleira sem við vild- um breyta,“ segir Harpa. „En íbúð- in er orðin nokkuð hugguleg núna og vonandi fer framkvæmdum að ljúka.“ Þegar Harpa flutti var mikið af dóti sem hvarf á haugana. „Ég teng- ist ótrúlegustu hlutum, fötum til dæmis, tilfinningaböndum. Ég tek upp bol og man þá eitthvað sem gerðist daginn efir að ég keypti hann eða eitthvað álíka. Þó svo ég sé löngu hætt að nota flíkina hef ég það ekki í mér að henda henni og því safnast draslið upp,“ segir Harpa og hlær. Harpa segist einnig hafa það á samviskunni að hafa keypt föt sem hún hefur aðeins notað einu sinni og jafnvel aldrei. „Þetta eru fleira en ein eða tvær flíkur skal ég segja þér,“ segir Harpa. Ekki liggja öll fötin hennar Hörpu ónotuð í neðstu skúffu skápa. „Ég á gullskó sem ég er búin að nota svo mikið að tvisvar hef ég þurft að kaupa innlegg í þá því ég hef gengið botninn niður,“ segir Harpa sem enn notar skóna þó svo gat sé komið á sólana. „Ég verð bara að passa mig í rigningunni,“ bætir hún við og greinilegt er að tilfinningaböndin er sterk gagnvart þessum götóttu gullskóm. Föt sem aldrei eru notuð Rope Yoga stúdíó Ármúla 44 Skráning í gangi Kennari: Emma Bjarnadóttir Uppl.: s. 860 2173 - info@egER.is - www.egER.is Skautaholl.is Opið frá kl. 13 00 allar helgar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.