Fréttablaðið - 12.01.2007, Page 36
Ármann með settið úr
Indiana Jones-mynd
N okkuð hefur verið rætt og ritað um áramóta-partí bankamannsins Ármanns Þorvaldssonar í
Hampden Court Palace í London um síðustu helgi.
Partíið vakti mikla athygli enda meiru kostað til en
venja er þegar Íslendingar bjóða til veislu. Fram
hefur komið að hljómsveitin Duran Duran spilaði
nokkur lög í risatjaldi sem reist var í garði
hallarinnar fyrir þetta eina tilefni.
Það vakti þó jafnvel meiri athygli viðstaddra
þegar inn í tjaldið komið að sviðið og barinn var
fengið úr leikmynd stórmyndarinnar Indiana
Jones and the Temple of Doom sem kom út
árið 1984 og skartaði að sjálfsögðu Íslandsvin-
inum Harrison Ford í hlutverki fornleifafræð-
ingsins geðþekka. Gestir Ármanns kunnu vel
við sig í kunnuglegu umhverfi myndarinnar og
drukku og borðuðu eins og þeir gátu í sig látið af
fínustu veigum og kræsingum.
Heyrst hefur
fréttir
Þ ú segir nokkuð. Þetta er nú bara fyndið,“ sagði athafna-maðurinn Pálmi Haraldsson
í Fons í samtali við Sirkus þegar
honum var bent á að allir
stjórnarmenn 365, sem er
útgefandi Sirkuss, nema hann
hefðu fjárfest í glænýjum Porsche-
sportbílum á undanförnum
mánuðum.
Jón Ásgeir Jóhannesson,
stjórnarformaður 365 og forstjóri
Baugs, Þorsteinn M. Jónsson,
forstjóri Vífilsfells og athafnamennirnir
Magnús Ármann og Árni Hauksson
keyptu sér allir stórglæsilega
Porsche 911 Turbo bíla,
sérsmíðaða í Þýskalandi og er
áætlað að hver bíll hafi ekki
kostað undir 20 milljónum.
Þeir sitja allir í stjórn
fjölmiðlafyrirtækisins 365
ásamt hinum Porsche-lausa
Pálma.
„Það stendur ekki til hjá mér að
endurnýja,“ segir Pálmi og hlær. „Bílar
hafa ekkert að segja í mínu lífi. Ef ég
fengi mér nýjan þá myndi ég kaupa
Volvo XC 90. Það er flottur bíll,“ segir
Pálmi en hann gerir þó síður ráð fyrir því
að endurnýja bíllinn sinn á þessu ári.
„Þetta er fínt eins og það er,“ segir
Pálmi sem ekur um bæinn á Range
Rover.
Bílakostur stjórnarmanna 365
fyrir utan þessa Porsche-bíla er
heldur ekki af verri endanum. Jón
Ásgeir Jóhannesson er þekktur
bílasafnari og er talið að bílar í
hans eigu slagi hátt í þrjátíu.
Magnús Ármann á tvo nýja Range
Rover sem kosta báðir yfir tíu
milljónir og Þorsteinn M. Jónsson
á sömuleiðis Range Rover.
Bílaáhugamenn gætu því gert
margt verra við tímann en að skoða
bílaflota stjórnar 365 þegar hún
kemur saman. - óhþ
AKA ALLIR UM Á GLÆNÝJUM
Ekkert að gerast á Fjölnisvegi
Ríkasti maður Íslands, Björgólfur Thor
Björgólfsson, og sambýliskona hans
Kristín Ólafsdóttir fjárfestu í 150
millljóna króna glæsivillu við Fjölnisveg
síðasta sumar. Þau fengu eignina
afhenta í byrjun september en hafa ekki
enn hafist handa við breytingar. Húsið
stendur eins og draugahús á meðan
Björgólfur Thor og Kristín leigja
einbýlishús í Fossvoginum, fjarri skarkala
miðbæjarins.
Hebbi semur lag fyrir DV
Það er mikill hugur í
liðsmönnum hins nýja DV
sem ætla í stórsókn undir
stjórn nýs ritstjóra
Sigurjóns M. Egilsson-
ar. Annað helgarblað
hinnar nýju áhafnar lítur
dagsins ljós í dag en ekki mun líða á
löngu þar til blaðið fer í daglega útgáfu.
Söngvarinn góðkunni Herbert
Guðmundsson hefur trú á þessu
verkefni því hann labbaði upp á
skrifstofu ritstjóra DV með
kass- ettutæki og spilaði
fyrir hann nýtt DV-
lag sem hann hafði
samið. Ekki fer
neinum sögum af
viðbrögðum ritstjórans.
Áttu 200 milljónir?
Ef þú ert í fasteignahugleiðingum og átt
nóg af peningum þá gæti verið sniðugt
að skoða rúmlega 600 fermetra
glæsivillu sem tískudrottningin Íris Björk
Jónsdóttir í GK hefur sett á sölu á
Sunnuflöt í Garðabænum.
Húsið er ekki enn risið
en verður eitt hið
glæsilegasta sem sést
hefur á höfuðborgar-
svæðinu. Og
verðið?
Kunnugir
segja það
vera
PORSCHE NEMA PÁLMI
Árni Hauksson Mikill fagurkeri sem elskar hraðskreiða bíla.
Magnús
Ármann Hann
og Þorsteinn
eru bestu
vinir og fluttu
inn Porsche-
bílana sína
saman.
Pálmi Haraldsson Á ekki
Porsche og er alveg
sama.
Þorsteinn M.
Jónsson
Flutti inn
sérsmíðaðan
Porsche frá
Þýskalandi.
Jón Ásgeir Jóhannesson Stjórnarformaðurinn bætti Porsche í safnið.
STJÓRN 365 SAMTAKA Í BÍLAKAUPUM Á SÍÐASTA ÁRI
Indiana Jones Vinsæl
Indiana Jones and the
Temple of Doom var
gífurlega vinsæl mynd
þegar hún kom út fyrir 22
árum og vann ein
Óskarsverðlaun.
Ármann Þorvaldsson Bauð ekki bara upp á Duran Duran
heldur líka leikmyndina úr Indiana Jones-mynd, þá
leikmynd sem birtist í upphafsatriði myndarinnar
Indiana Jones and the Temple of Doom.
BLS. 4 | sirkus | 12. JANÚAR 2007