Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 43
Los Angeles og töluðu margir um að
Magni hefði eflst allur við heimsókn-
ina. Áhorfendur heima á Íslandi
fylgdust spenntir með þessum
fagnaðarfundum og ekki minnkuðu
vinsældir þáttanna hér heima. Í
gömlu viðtali DV við Magna sagðist
hann hafa fundið hluta af sér þegar
hann kynntist Eyrúnu Huld, að hún
væri allt það sem hann gæti hugsað
sér í lífsförunaut. Eyrún hefur að sama
skapi átt auðvelt með að hrósa honum
og hefur bæði kallað hann yndislegan
föður og unnusta.
„Hann er opinn, skilningsríkur og
traustur. Þeir Marínó eru mjög nánir
og ást Magna leynir sér aldrei þegar
þeir eru tveir saman. Hann er
duglegur, heiðarlegur og umfram allt
góður vinur, sagði Eyrún Huld í viðtali
og stolt hennar leyndi sér ekki.
Lífið er ekki rokk og ról
Á meðan á raunveruleikaþættinum
stóð fékk Magni að hringja heim í
hverri viku. Í viðtali við DV sagði
Eyrún að Magni hefði aðallega verið
að fá fréttir að heiman og hún að
heyra hvernig honum liði en lítið hafi
verið spjallað um keppnina sjálfa.
Í viðtölum sagði Magni að fjarveran
frá fjölskyldunni væri honum erfiðust
í keppninni. „Ég er orðinn nógu
gamall til að vita hvað skiptir máli í
lífinu og það er ekki rokk og ról. Rokk
og ról er í öðru sæti. Ef ég fengi ekki að
heyra í konunni myndi ég ekki fara út.
Ég segi það af fullri alvöru. Ef mér yrði
tilkynnt að ég mætti ekki tala við hana
myndi ég bara segja þeim að fara
norður og niður,” sagði Magni áður en
hann hélt út til að freista gæfunnar.
Fjölskyldan í fyrsta sæti
Magni gekk í heimavistarskólann á
Eiðum á unglingsaldri þar sem hann
sökkti sér ofan í tónlistina og stofnaði
meðal annars hljómsveitina Shape sem
gaf út eina plötu. Líf hans tók hins
vegar breytingum þegar hann gekk til
liðs við Á móti sól árið 1999. Hljóm-
sveitin hefur gefið út sex plötur og er
ein af þekktustu sveitaballahljóm-
sveitum landsins auk þess sem frægð
sveitarinnar hér á landi hefur aukist
eftir velgengi Magna í Rockstar-
ævintýrinu. Tónlist hefur alltaf átt allan
hug Magna sem kemur úr mikilli
tónlistarfjölskyldu. Þeir sem þekkja
hann best segja hins vegar að
fjölskyldan skipi stærstan sess í hans
hjarta og að hann reyni að komast
austur eins oft og hann getur. Á milli
þess sem Magni spilar tónlistina hefur
hann starfað við að smíða úr plexígleri
hjá fyrirtækinu Akron.
Stolt af íslensku þjóðinni
Eyrún Huld lauk B.A. prófi í íslensku
vorið 2004 frá Háskóla Íslands og
hefur meðal annars starfað hjá
flutningafyrirtækinu Flytjanda. Eyrún
þykir hafa staðið sig vel í öllu því
fjölmiðlafári sem myndast hefur í
kringum þetta ævintýri Magna og
flestir eru því sammála að hún hafi
greinilega bein í nefinu. Þegar í ljós
kom að Magni gæti endað sem
sigurvegari Rockstar-keppninnar
sagðist Eyrún alveg geta hugsað sér að
flytja til Bandaríkjanna á meðan
Magni myndi elta draum um frægð og
frama. Fjölskyldan yrði einfaldlega að
aðlagast nýjum aðstæðum.
„Ég gæti vel hugsað mér að flytja út,
það er allt opið enda væri bara
gaman að prófa að búa í Bandaríkjun-
um í einhvern tíma,” sagði Eyrún á
sínum tíma í viðtali við DV og bætti
við hversu ánægð hún væri með
íslensku þjóðina og hversu þétt hún
stæði við bak Magna.
„Hvernig sem fer er hann sigur-
vegari. Hann hefur fengið alveg
frábæra lífsreynslu út úr þessu,
fengið að kynnast þessum heimi,
þessum tónlistarmönnum og spila
með þessu húsbandi sem er víst að
hans mati eitt besta bandið sem hann
hefur heyrt spila.“
Á leið í tónleikaferðalag
Magni og Eyrún hafa haldið sig utan
við sviðsljós fjölmiðlanna síðan fréttir
af slitum samvista þeirra bárust
landsmönnum. Eyrún neitaði Sirkus
viðtali þegar eftir því var leitað en í
viðtali við Fréttablaðið sagðist Magni
vera á leið út til Ameríku í sjö vikna
tónleikaferðalag með félögum sínum
úr Rockstar, þeim Toby Rand og
Dilönu auk þess sem hljómsveit Dave
Navarro, The Panic Channel, muni
einnig spila á tónleikum.
„Þetta er svolítið öðruvísi en að troða
upp í Hreðavatnsskála, bæði verður
rútan mun flottari og svo erum við að
spila á tónleikastöðum sem hýsa tugi
þúsundir áhorfenda,“ segir Magni léttur
í bragði. Í viðtali við Morgunblaðið
sagðist Magni hafa sótt um sem
gítarleikari í húsbandinu fræga enda
oft lýst yfir aðdáun sinni á hæfileika
hljómsveitarmeðlima. Hins vegar
sagðist hann ekki hættur með Á móti
sól. Sú hljómsveit væri og yrði áfram
hljómsveitin hans.
Álagið varð of mikið
Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast
með Magna á síðastliðnu ári. Margir
segja að hann hafi loksins fengið þá
athygli sem hann ætti skilið enda hafa
margir viðurkennt að hafa ekki fattað
hversu góður söngvari Magni væri fyrr
en Kaninn kenndi okkur að meta
hann. Við fylgdumst ekki aðeins með
Magna heldur fengum við líka að
kynnast fjölskyldu hans og margir tóku
það afar nærri sér þegar fréttir af
skilnaði hans og Eyrúnu bárust.
Íslendingar ætluðu að springa úr
stolti yfir frammistöðu Magna í
Rockstar, bæði vegna söngsins og
framkomu hans og þess hvernig
honum tókst að halda sér niðri á
jörðinni þrátt fyrir velgengni sína. Það
er hins vegar ekkert grín að viðhalda
ástinni frammi fyrir alþjóð eins og
Hollywood-stjörnurnar hafa oft
sannað. Álagið verður á köflum of
mikið. Magni hefur blásið á allar
kjaftasögur og sagði í viðtali við
Morgunblaðið að svo framarlega sem
hans nánasta fjölskylda og vinir vissu
sannleikann þá væri honum sama
hvað aðrir héldu.
„Fyrsta reglan ef maður ætlar að
verða eitthvað þekktur eða frægur, eða
hvað sem maður vill kalla það, er að
vita að það þýðir ekkert að berjast við
kjaftasögur, það gerir hlutina bara
helmingi verri.”
nærmynd
sirkus
Magni Ásgeirsson Magni fékk bæði viðurnefnið Magni „okkar“ og Magnificent og þótti
standa sig frábærlega í Rockstar Supernova raunveruleikaþættinum þar sem hann
endaði í fjórða sæti.
12. JANÚAR 2007 | sirkus | BLS. 11