Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 62

Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 62
ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN! Þegar ég var lítil langaði mig til þess að vita allt og vonaði að einn daginn kæmi að því. Núna er ég hins vegar, mér til mikilla von- brigða, ekki komin lengra en það að ég veit það eitt að ég veit ekki neitt, eins og Sókrates sagði. Löngunin til þess að vita sem mest um heiminn sem við lifum í og umhverfi okkar er eðlileg og heil- brigð og þar sem algert áhugaleysi er ekki gott er forvitni ákjósanleg svo framarlega sem hún beinist í réttan farveg. Forvitni getur hins vegar bæði verið jákvæð og... ja, ekki eins jákvæð, því misjafnt er hvaða þáttum umhverfisins við höfum áhuga á. Á meðan sumir hafa mestan áhuga á einkalífi nágranna sinna og fína og fræga fólksins, brýst for- vitni annarra út sem hreinn þekk- ingarþorsti og löngun til þess að fræðast um önnur menningarsam- félög, nýjar hugmyndir og óþekkt- ar stærðir. Ég á ömmu í litlum bæ úti á landi sem veit allt í heiminum. Þá meina ég bókstaflega allt í heiminum því hún er endalaus uppspretta alls konar fróðleiks. Það skiptir engu máli hvort mig vantar upplýsingar um gengi íslenskra unglingahljóm- sveita á erlendri grundu eða útskýr- ingar á ástandinu í Miðausturlönd- um því allt veit hún og getur miðlað af þekkingu sinni til okkar barna- barnanna. Með því að hafa áhuga á því að vita meira, lesa allt sem hún kemst í og fylgjast með fjölmiðlum hefur hún tileinkað sér yfirgrips- mikla þekkingu á öllum sviðum mannlífsins. Það eina sem hún veit ekkert um er hvað er að gerast í næstu húsum við hana, sem skiptir líka engu máli. Mig langar ennþá til þess að verða svona einhvern daginn og ætla því að halda áfram að vera forvitin um lífið, framtíðina og umhverfi mitt í stærra samhengi. Mér er hins vegar alveg sama af hverju eitthvert par úti í bæ ákvað að slíta samvistum, enda kemur mér það ekki við frekar en öðrum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.