Fréttablaðið - 12.01.2007, Page 66
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fjölmiðlar eru mjög
vanafastir þegar það
kemur að listaumfjöllun í
kringum áramót. Síðustu
dagar ársins fara í það að
velja það sem þótti skara
fram úr á árinu sem er að
kveðja og fyrstu dagarnir
eftir áramótin eru notaðir
til þess að spá í það hvaða
nýliðar séu líklegir til að
slá í gegn á nýju ári. Þetta
er mjög áberandi í
tónlistarheiminum,
sérstaklega í Bretlandi þar
sem fjölmiðlar eru ólatir
við að kynna til sögunnar
nýja listamenn sem eiga eftir að bjarga tónlistarlífinu og sigra
heiminn. Þó að það sé misjafnt hvað mikið af þessu gengur eftir og
helmingurinn af þeim sem tilnefndir eru séu einfaldlega þau nöfn sem
kynningarfulltrúar plötufyrirtækjanna sjá sér hag í að hlaða lofi á
hverjum tíma þá er samt alltaf gaman að skoða þessar tilnefningar.
Nema hvað!
Og hvaða listamenn eru svo taldir líklegastir til að meikaða á árinu
2007? Sú hljómsveit sem mest er látið með í Bretlandi er skosk og
heitir The View. Hún kemur frá fátæku úthverfi Dundee-borgar og er
helsta vonarstjarna plötufyrirtækisins 1965 Records sem James
Endeacott, maðurinn sem uppgötvaði The Strokes og The Libertines,
stofnaði. Oasis og Primal Scream eru á meðal aðdáenda. NME setti
hana á forsíðu nýliðatölublaðsins síns og Guardian veðjar líka á hana.
Og tónlistin? Hresst og ungæðislegt rokk, en frekar hefðbundið samt.
Fyrsta platan, Hats off to the Buskers, kemur út 22. janúar.
Önnur nöfn sem oft eru nefnd eru m.a. Noisettes („svar Breta við
Yeah Yeah Yeahs“), Jamie T (strákur frá Wimbeldon sem blandar
saman rappi og popplagasmíðum, – textarnir minna á The Streets), The
Twang (fimmmenningar frá Birmingham, „hinir nýju Stone Roses“),
Mika (hann er fæddur í Beirut og minnir á Scissor Sisters), Sadie Ama
(breskt r&b undur), Just Jack („í sama flokki og The Streets og Lily
Allen“) og Airwaves og Íslandsvinirnir í Klaxons sem blanda saman
gítarrokki, elektró og danstónlist. Fyrsta stóra platan þeirra, Myths of
the Near Future, kemur út í febrúar…
Nýtt ár, nýjar stjörnur
Bandaríska tónlistarkonan
Norah Jones gefur út sína
þriðju sólóplötu 29. janúar
næstkomandi. Platan nefn-
ist Not Too Late og hefur að
geyma þrettán glæný lög.
Fyrsta smáskífulag plötunnar,
Thinking About You, kom út seint
á síðasta ári og hefur fallið vel í
kramið. Lagið er rólegt með blús-
uðum djasskeim eins og Noruh er
von og vísa; bæði afslappandi og
fallegt.
Nýja platan er sögð hennar
persónulegasta til þessa og voru
lögin samin annaðhvort af Noruh
Jones einni eða með aðstoð bassa-
leikarans Lee Alexander. Tóku
þau jafnframt plötuna upp í sam-
einingu í heimahljóðveri þeirra.
Norah Jones fæddist í New York-
borg 30. mars árið 1979 en ólst
upp í Texas frá fjögurra ára aldri
hjá móður sinni. Faðir hennar er
indverski tónlistarmaðurinn Ravi
Shankar, sem meðal annars starf-
aði með Bítlunum á sínum tíma
og þá aðallega George Harrison.
Norah hlustaði mikið á Billie
Holliday og Bill Evans á sínum
yngri árum en fór ekki að hafa
áhuga á að spila djass fyrr en í
menntaskóla. Fljótlega fór hún
að fá verðlaun fyrir frammistöðu
sína og hóf að læra djasspíanó-
leik í framhaldinu. Í staðinn fyrir
að ljúka háskólagráðu í píanó-
leiknum ákvað hún að einbeita
sér að lagasmíðum.
Norah gerði plötusamning við
djassfyrirtækið Blue Note Rec-
ords snemma á árinu 2001 og fór
í kjölfarið að vinna að sinni fyrstu
plötu, Come Away With Me.
Platan kom út snemma árs
2002 og sló umsvifalaust í gegn.
Auk fallegrar tónlistarinnar vakti
Norah athygli fyrir fegurð sína
og fyrir að vera dóttir Ravi Shank-
ar. Töldu margir hana einungis
vera enn einn snoppufríða tónlist-
armanninn sem ætti að eftir að
hverfa í gleymskunnar dá.
Almenningur var ekki á sama
máli og hefur platan selst í átján
milljónum eintaka úti um allan
heim. Vann Jones jafnframt átta
Grammy-verðlaun fyrir plötuna.
Árið 2004 gaf Jones út sína aðra
sólóplötu, Feels Like Home, þar
sem hún blandaði enn á ný saman
blús og djassi, auk þess sem kán-
tríáhrifin voru meira áberandi en
áður. Platan fékk góðar viðtökur
eins og sú fyrri.
Árið áður byrjaði Norah að spila
með hljómsveitinni The Little
Willies, sem lék lög eftir þekkta
bandaríska sveitasöngvara á borð
við Hank Williams og Willie Nel-
son. Sveitin fékk góðar viðtökur
og fljótlega fóru Norah og félag-
ar að semja eigin lög. Má útkom-
una finna á plötunni Little Willies
sem kom út á síðasta ári. Á sama
tíma var Jones í óða önn að semja
lög á næstu sólóplötu sína sem
brátt lítur dagsins ljós og margir
hafa beðið spenntir eftir.
Auk þess að gefa út sína þriðju
sólóplötu mun Norah Jones sjást
á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn í
kvikmyndinni My Blueberry
Nights. Þar fer hún með eitt aðal-
hlutverkanna á móti þekktum
nöfnum á borð við Jude Law,
Natalie Portman og Tim Roth.
Verður gaman að sjá hvort leik-
listin sé eitthvað sem hún muni
einbeita sér í auknum mæli að í
framtíðinni.
Næsta plata bresku hljómsveitar-
innar Kaiser Chiefs mun heita
Yours Truly, Angry Mob og er hún
væntanleg 26. febrúar.
Hún mun fylgja eftir plötunni
Employment sem kom út 2005 og
hefur selst í tæplega tveimur
milljónum eintaka í Bretlandi.
Innihélt hún meðal annars lögin
Oh My God, I Predict a Riot og
Everyday I Love You Less and
Less.
Fyrsta smáskífulag nýju plöt-
unnar nefnist Ruby og kemur það
út 19. febrúar. Kaiser Chiefs mun
síðan fara í tónleikaferð um Bret-
land í febrúar og mars til að fylgja
plötunni eftir.
Nafn komið á nýja plötu
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson,
eða Mugison eins og hann er jafnan kallaður,
hefur bryddað upp á skemmtilegri nýjung á
heimasíðu sinni, Mugison.com. Þar hefur
kappinn tekið upp gítarkennslu fyrir aðdá-
endur sína. Mugison skrifar að aðdáendur
hans óski oft eftir upplýsingum um hvaða
grip hann noti í hverju lagi og hann hafi
ákveðið að bæta úr skorti á þessum
upplýsingum.
„Ég er svo glataður í nöfnum á þess-
um gripum … þannig að ég ætla að
taka upp nokkur vídeó með þeim lögum
sem þið eruð að biðja um,“ skrifar
Mugison sem þegar hefur sett inn
myndband af sér að spila lagið 2 Birds.
Leiðbeiningar með því eru á ensku því það
var danskur aðdáandi sem bað
tónlistarmanninn um það lag.
Mugison er hins vegar boð-
inn og búinn að setja inn
myndbönd með leiðbein-
ingum á íslensku fyrir
hérlenda aðdáendur.
Hægt er að senda
honum tölvupóst á net-
fangið mugison@
gmail.com.
Kennir aðdáendum að
spila lögin sín