Fréttablaðið - 12.01.2007, Page 80
Þegar þetta er skrifað er ég á tíunda degi áramótaheitis. Hafi
reynslan kennt mér eitthvað er það
að kúrar virka ekki. Í ár er það því
lífsstílsbreyting sem að er stefnt.
Það er góður byr í seglunum og 620
grömm farin. Eftir standa 6.380.
Skemmtilegasti þáttur nýja lífs-
stílsins er einmitt að stíga á vigtina
og fylgjast með grömmunum fjúka.
Mikilvægt er að eiga vigt sem
mælir þyngd nákvæmlega. Silki-
náttkjóll getur skipt sköpum.
ókostur nýja lífsstílsins
er sennilega sá að maður er allt að
því óvinnufær. Blöðruna þarf að
tæma títt vegna vatnsþambs upp á
nokkra lítra per dag. Hæfilegum
metnaði fylgir líka vigtun reglu-
lega yfir daginn. Sömuleiðis þarf
að vigta og mæla hvern bita
nákvæmlega til að sannreyna að
brauðsneiðin vegi 30 grömm og að
áleggið, sem er að eigin vali, vigti
25. Þetta er þó smávægilegt gjald
fyrir nýjan lífsstíl.
klögumál mitt í fyrri
megrunum hefur tengst því að
þurfa að borða minna. En í nýja
lífsstílnum ku árangurinn felast í
því að borða sig grannan. Kúrinn
er sagður skila tonni á móti því
tonni sem fólk bætir venjulega á
sig í öðrum kúrum. Á nýju ári hef
ég af áfergju lesið viðtöl við fólk
sem hefur náð undraverðum
árangri með því einu að breyta
öllum lifnaðarháttum og misst tugi
kílóa fyrir vikið. Áhugasöm hef ég
skoðað myndir af hvunndagshetj-
um á slitnu stofugólfinu heima hjá
sér, gjarnan vopnað vídeóspólu
með Ágústu Johnson.
í baráttunni við
aukakílóin eru margar. Ég man
eftir fínum frúm á Scarsdale Med-
ical, 14 daga dietkúrnum, auk hefð-
bundinna sítrónukúra, mjólkur-
duftskúra og kolvetniskúra.
Nýstárlegri leiðir eru kaffi/sígó-
kúrinn og vodkakúrinn. Frumleg-
ast fannst mér þó að lesa frétt um
norskan mann sem ætlar að borða
sig nógu feitan til að komast í
magaminnkunaraðgerð.
fyrr fór ég að huga að ára-
mótaheitinu í desember og taldi
kaloríurnar á jólahlaðborðum. Um
miðjan janúar var ég sprungin í
samfloti við meirihluta þjóðarinn-
ar. Í mars var heitið gleymt og hið
ljúfa líf tók við þangað til í desem-
ber að áhyggjurnar helltust yfir
mann. Aldrei meir. Nú er nýtt líf
hafið og að ári verða 6.380 grömm-
in farin.
áramótaheit verður svo
sennilega að bæta samband við
fjölskyldu og vini sem óhjákvæmi-
lega fer í súginn með nýju lífi
svangrar og viðskotaillrar konu.
10. dagur