Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 76

Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 76
Kl. 20.00 Tónlistarhópurinn Camerarctica heldur tónleika á vegum Kammer- músíkklúbbsins í Bústaðakirkju ásamt föngulegum hópi blásara. Á efnisskránni eru verk eftir Tele- mann, Sjostakovitsj og Zelenka. Hljóðfæraleikarar eru Hildigunnur Halldórsdóttir, Bryndís Pálmadóttir, Svava Bernharðsdóttir, Sigurður Halldórsson, Hallfríður Ólafsdóttir, Eydís Franzdóttir, Kristín Mjöll Jak- obsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir. Í aðdraganda þess að Leikfélag Reykjavíkur tók verkið Dag vonar til sýninga á ný var meðal annars rætt um hvort verkið væri „íslensk klassík“. Ef íslenskir leikhúsgest- ir hefðu sterka hefðarvitund væri svarið við þessari spurningu vafa- lítið jákvætt en að mínu mati er slík vitund lítt áberandi meðal þorra þeirra sem sækir leiksýn- ingar hérlendis. Klassík er sí-gild og í því felst ekki aðeins að við- fangsefni verka eigi alltaf við heldur að verkið „lifi“ með þjóð- inni. Það eru fá leikrit sem koma upp í hugann sem fallið gætu alveg að þeirri skilgreiningu – margir kannast við Útilegumennina, Fjalla-Eyvind og Stundarfrið en þeim fækkar sem hafa séð verkin með eigin augum. Þau eru ekki sýnd og af einni ástæðu sérstak- lega – spurningunni um hvort þau eigi erindi við íslenska leikhús- gesti í dag? Verk Birgis Sigurðssonar var fyrst sýnt á afmæli Leikfélags Reykjavíkur árið 1987. Nú tuttugu árum síðar er verkið fært á fjalir íslensks atvinnuleikhúss á ný. Íslensk leikrit eru iðulega einnota og því fagnaðarefni að verki sé gefið annað tækifæri en í ljósi fyrrgreinds hefðarleysis set ég á ný spurningarmerki við erindi þess við leikhúsgesti dagsins í dag. Fyrir mér var sýningin áhuga- verðust í ljósi sögunnar, verkið fyrst og fremst forvitnilegt vegna þess hvað það var okkur þá – tíma- mótaverk sem talaði sterkt til áhorfenda sinna, vakti spurningar og deilur sem færðu okkur nær því sem við erum í dag. Þetta er samt krassandi stykki. Dagur vonar er stofudrama þar sem togstreita innan óvenjulegrar fjölskyldu ýtir persónum verksins fram á háskalega hengibrún. Þar takast á hugmyndir um skilgrein- ingu fortíðarinnar, geðsýkinnar, listarinnar og fjölskyldubandanna en framsetning þeirra er ekki beinlínis „fersk“ eins og hún var mögulega á níunda áratugnum. Texti Birgis Sigurðssonar er enn mjög kraftmikill og fallega ljóð- rænn og í sýningunni vaknaði hann til lífsins í meðförum frá- bærra leikara. Birgir skrifar rosa- leg samtöl og húmanískur mann- skilningur hans sem höfundar skín í gegnum hverja einustu persónu, þrátt fyrir áherslu á breyskleika mannskepnunnar vekur Dagur vonar bjartsýni eins og önnur verk hans. Leikstjórinn, Hilmir Snær Guðnasson, velur að halda sögu- tíma verksins óbreyttum. Einu vísanirnar til hans felast í svið- setningunni sjálfri, leikmynd og búningum auk þess sem kalda- stríðsóttinn og atómsprengjufárið svífa yfir vötnum. Nálgun Hilmis er hófstillt og settleg, hann fer mjúkum höndum um þetta verk og mér er nær að halda að áherslur hans séu á hliðstæðri bylgjulengd við þær fyrstu. Leikhópurinn og aðrir aðstand- endur verksins standa sig með ágætum. Að öðrum ólöstuðum verð ég að taka ofan fyrir Sigrúnu Eddu Björnsdóttur sem leikur móðurina og ástkonuna Láru. Hún er einfaldlega uppáhaldsleikkon- an mín núna og fær fullt hús stjarna. Tök hennar á hinni sterku en jafnframt útlifuðu og buguðu konu voru aðdáunarverð. Mér varð hugsað til frammistöðu henn- ar í Sporvagninum Girnd og Stjörnum á morgunhimni og gleðst yfir því að hún fái tækifæri á að glansa í íslensku leikriti líka í bita- stæðu hlutverki við sitt hæfi. Syni Láru leika Rúnar Freyr Gíslason og Gunnar Hansson. Hlutverk þeirra beggja kalla á fjölhæfan leikara, þumbinn og verkfallsvörður leynir á sér og hið ofurnæma skáld reynist forhert- ara en við fyrstu sýn. Rúnar Freyr skilar kamelljóninu Reyni með afbrigðum vel, mér fannst hann einkar sannfærandi og samleikur hans við konurnar tvær – móður- ina og hina umhyggjusömu Guð- nýju á efri hæðinni – var eftir- minnilegur. Gunnar fær vandasamt hlutverk ungskáldsins Harðar og fer grínleiðina. Reynd- ar er það kærkomið í samhengi við hádramatíkina í verkinu að geta skellt aðeins upp úr en þó þvælist spaugarinn aðeins fyrir þegar hitinn hleypur í skáldið. Það er eins og kveikiþráðurinn hans sé ósannfærandi stuttur. Dótturina Öldu leikur Birgitta Birgisdóttir en hlutverk hennar er gífurlega mikilvægt þótt hún segi fátt. Sjúkdómur Öldu heldur heim- ilisfólkinu í bókstaflegri gíslingu og hún er líka áminning fortíðar- innar og allra synda hennar og glötuðu tækifæra. Ég var heilluð af frammistöðu Birgittu, sakleysi hennar, raddbeitingunni og svip- brigðunum sem hún ljáði Öldu en að sama skapi fannst mér erfitt að horfa upp á það hvernig „geðsýk- isköstin“ voru sviðsett. Það var eitthvað svo fyrirsjáanlegt að láta hana hlaupa um með skaftpott og rymja eins og naut. Eins í mónal- ógunum hennar þegar ljósin eru tekin niður og leikið einmana selló-stef gat ég lítið annað en dæst. Ellert A. Ingimundarson leikur óbermið Gunnar sem er elskhugi Láru en vera hans á heimilinu gerir það að enn meira átakasvæði en áður. Lostafull samskipti hans við Láru eru þyrnir í augum bræðranna og Guðnýjar og hann á í stöðugri valdabaráttu sem sníkju- dýrið á heimilinu. Ellert leikur alkóhólistann mjög vel en hann var síður sannfærandi í hlutverki ofbeldismannsins, næstum of dag- farsprúður til að lýsa þessari grimmd sem grípur hann. Sam- leikur hans og Sigrúnar Eddu var góður en ég gat vart orða bundist í lokaatriðinu þar sem heldur keyrði um þverbak í dramatíkinni. Hanna María Karlsdóttir gerir hvað hún getur úr litlítilli rullu Guðnýjar. Hún er stuð- og stuðn- ingspúði fyrir alla fjölskylduna, trúlegur klettur í öllu þessu öldu- róti. Heildarmynd verksins var í hæfi- legum stíl við áherslurnar, leik- myndin hagleg en helst til of stór – maður fann lítt fyrir þrengslun- um þótt innilokunin væri augljós. Gervi og búningar voru til prýði og aldrei til trafala. Lýsingin var lítið nýtt í þessari sýningu nema í fyrrgreindum vörpunum á Öldu og hefði að ósekju mátt undir-stinga drungann. Tónlist Egils Ólafssonar fannst mér notaleg og viðeigandi en hún fjaraði of skarpt inn og út og á milli stefjanna varð suðið í kösturunum næstum óþægilega áberandi. Leikritið Dagur vonar er hluti af hefð sem við hömpum sjaldan. Ef við ætlum á annað borð að tala um klassík í samhengi við íslenskt leikhús ættum við að vera miklu duglegri að dusta rykið af fleiri verkum, gefa þeim framhaldslíf, gagnrýna þau og endurskoða á skapandi hátt. Hefðin er gagnslaus ef við stillum henni upp og mænum bara á hana af skilyrðislausri aðdá- un á þeim örfáu tyllidögum sem „menningararfurinn“ er til umræðu. „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR !

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.