Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 4

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 4
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, lagði ekki fram boðaða kæru hjá sýslumannsembættinu á Selfossi í fyrradag þegar hann mætti þar til skýrslutöku. Þetta staðfesti Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður. Guðmundur hafði sagt í fjölmiðlum að hann myndi kæra eina af stúlkunum fjórum sem kært hafa hann fyrir kynferðislega misbeitingu meðan þær voru skjólstæðingar Byrgis- ins. Kvaðst Guðmundur myndu kæra stúlkuna fyrir nauðgun. Af því hefur ekki orðið enn. Guðmundur kærði ekki Allir í betra form fyrir sumarið Komdu í Rope Yoga Byrjum aftur 24. apríl Mánud. Miðvikud. og fimmtud. Kl. 6.30, 7.30, 10.00, 18.30 og 19.30 Sími. 691 0381 . Hámark 10 manns í tíma. Kennari: Kristín Björg Kennt kl.7.00, 8.00, 11.00, 18.30 Takk fyrir Rope yoga. Hef enga líkamsrækt geta stundað ðleikar í hnakka og vöðvafestum hafa hrjáð mig um margra ára skeið. Eftir að ég byrjaði hjá Kristínu Björ eika og ég hef styrkt vöðva mina áherslulaust. FRÁBÆRT. Björg Traustadóttir. Betri heilsa Kennari: Kristín Björg s. 691 0381 Maðurinn sem slasaðist í snjóflóði í Hrappsstaðaskál í Hlíðarfjalli 21. janúar síðastliðinn er kominn til meðvitundar. Honum er þó enn haldið í öndunarvél. Læknir á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri segir manninn á batavegi, en of snemmt sé að segja til um hvort hann nær fullum bata. Kominn til meðvitundar Í væntanlegri skipan heildaráætlunar um nýtingu og vernd náttúruauðlindanna er gert ráð fyrir því að tekið verði gjald fyrir leyfi og nýtingu. Þetta kom fram í máli Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þegar hann setti Sprotaþing 2007 í Laugardalshöll í gær. „Með slíku auðlindagjaldi skapast tæki- færi til að byggja upp á einhverju tíma- bili auðlinda- sjóð sem þjóðin getur notað til sérstakra þjóð- þrifaverkefna. Alaskabúar hafa þegar góða reynslu á þessu sviði, en þeir endurgreiða líka öllum almenningi úr slíkum auð- lindasjóði þegar arðstaða hans leyfir,“ sagði Jón. „Ég tel að auðlindasjóður eigi að geta tekið virkan þátt í eflingu þess nýsköp- unar- og sprotakerfis sem íslenska þjóðin þarf á að halda. Þá væri arðinum af auðlindum Íslendinga varið til að byggja hér undir fram- tíðarárangur og auk þess geta beinar greiðslur til almennings, þegar þannig ber undir, orðið öflug samfélagsstoð,“ sagði ráð- herra ennfremur. Þessi hugmynd er ekki alger- lega ný af nálinni, því hugmyndin að stofnun auðlindasjóðs kom fram í máli Víglundar Þorsteins- sonar, stjórnarformanns BM-Vall- ár, á fundi Samtaka iðnaðarins í lok nóvember á síðasta ári. Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að miklu skipti hvernig útfærsla auðlindagjalds geti orðið, til dæmis hvort greiða þurfi þegar virkjað er á eignarlandi. Einhver þurfi að borga brúsann og þeir sem geri það alltaf að end- ingu séu kaupendur raforkunnar. Guðmundur bendir á að samning- ar um sölu á raforku til stóriðju séu bundnir til 20–30 ára og við þeim verði ekki hróflað. Þá leggist gjaldið á almenna notendur og nýja stóriðjusamninga. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að sam- kvæmt lýsingum af ræðu ráðherra sé ekki sé ljóst nákvæmlega hvaða útfærslu hann sé að tala um, en tekur fram að hann hafi ekki heyrt ræðu Jóns Sigurðssonar í gær. Friðrik segir að ekkert sé við því að segja ef ríkið kjósi að inn- heimta gjald sé virkjað á þjóðlend- um eða ríkislandi, það verði þá eins og hver önnur leiga. Önnur staða sé uppi séu auðlindir á einka- landi nýttar. Þá sé þegar búið að greiða fyrir réttinn til að nýta landið og alveg út í bláinn að taka sérstakt auðlindagjald til viðbótar við það. Iðnaðarráðherra vill stofna auðlindasjóð Gert er ráð fyrir auðlindagjaldi í heildaráætlun um nýtingu og vernd náttúru- auðlinda. Hægt að byggja upp sjóð sem tekur þátt í nýsköpun, segir ráðherra. Gjaldið mun leggjast á neytendur og nýja stóriðjusamninga, segir forstjóri OR. 35 ára gamall portú- galskur karlmaður, Americo Luis Da Silva Gonçalves, var á fimmtu- dag dæmdur í fjögurra ára fang- elsi fyrir nauðgun og stórfellda líkamsárás gegn 45 ára konu. Maðurinn nauðgaði konunni á heimili hennar í Vesturbænum hinn 10. september síðastliðinn. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn. Maðurinn hefur ekki áður gerst sekur um brot en við ákvörð- un dómsins var litið til þess hversu hrottafengið brot hans var. Maðurinn kleip í kynfæri og brjóst konunnar, sló hana bæði með flötum lófum og krepptum hnefum, sneri upp á ökkla hennar og sló honum upp við vegg. Konan hlaut eymsli víðs vegar á líkam- anum í árásinni, meðal annars sprungur og bjúg á kynfærum sem reyndust svo illa leikin að ekki var unnt að skoða þau. Mað- urinn hætti ekki þrátt fyrir að konan hefði margsinnis beðið hann um það. Konan hefur þurft að glíma við alvarlegar afleiðingar árásarinn- ar, bæði líkamlegar og andlegar. Hún var rúmföst í viku eftir árás- ina, átti erfitt með svefn, fékk martraðir og átti erfitt með að fara út úr húsi. Þess vegna fór konan fram á að maðurinn greiddi henni skaðabætur og ákvað dóm- urinn þær skyldu vera 1.200 þús- und krónur. Manninum var og gert að greiða sakarkostnað að upphæð tæplega 700 þúsund krónur. 4 ára fangelsi fyrir nauðgun Vopnaðir liðsmenn Fatah- hreyfingarinnar gerðu árás á háskóla sem er tengdur Hamas- samtökunum og kveiktu þar í byggingum í gær. Sautján manns, þar á meðal fjögur börn, létust í átökum fylkinganna, sem er mesta mannfall sem orðið hefur á einum degi frá því að í brýnu sló fyrst milli Fatah og Hamas. Frá því skammvinnt vopnahlé var rofið á fimmtudag höfðu í gær alls 24 látið lífið og 245 særst í skotbardögum. Leiðtogar fylkinganna sögðust í gær hafa fallist í grundvallarat- riðum á nýtt vopnahlé, á fundi í egypska sendiráðinu. Fleiri fundi þyrfti til að semja um fram- kvæmdaatriði. Síðasta vopnahlé hélt aðeins í tvo sólarhringa. Leiðtogar boða nýtt vopnahlé Valgerður Sverris- dóttir utanríkisráðherra leiðir viðskiptanefnd Útflutningsráðs til Suður-Afríku í lok þessa mánaðar. Um fimmtán fyrirtæki hafa staðfest þátttöku í ferðinni, meðal annars Icelandair, Lands- bankinn og Landsvirkjun. Lagt verður af stað 24. febrúar og er ferðinni heitið til Jóhannesarborgar, Pretoríu og Höfðaborgar. Viðskiptanefnd til Suður-Afríku Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður, hefur sent Skipulagsstofnun athugasemdir við tillögu Landsnets hf. að matsáætl- un um lagningu háspennulína frá virkjunum á Hellisheiði að Straums- vík og Geithálsi. Hann vill að vinnu við áætlunina verði frestað. Línumannvirkin eiga að bera rafmagn frá fyrirhuguðum Þjórsár- virkjunum til uppbyggingar stór- iðjuvera í Straumsvík og á Grundar- tanga. Hjörleifur rökstyður kröfuna um frestun með því að lögð verði fyrir í umhverfismat heildstæð áætlun um öll stóriðjuáform suð- vestanlands. Matsáætlun verði frestað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.