Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 8

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 8
Hver var valin söngkona ársins á Íslensku tónlistarverð- laununum? Hvað heitir nýja Rocky- myndin? Hver er forseti Venesúela? Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir framtíð Alcan á Íslandi og starfsmanna álversins í Straumsvík velta á því hvort Hafnfirðingar samþykki fyrirhug- aða stækkun álversins í íbúakosn- ingu þann 31. mars. Rannveig sagði þetta í fyrirlestri á stefnumóti Alcan og Samtaka atvinnulífsins í Hafnarborg í Hafnarfirði í gær. Yfirskrift stefnumótsins var Hag- sæld í Hafnarfirði. Þar var fjallað um atvinnulífið í bænum og fyrir- hugaða stækkun álversins. Rannveig sýndi graf á stefnu- mótinu um samkeppnishæfni álversins í Straumsvík í alþjóðlegu samhengi og sagði að það þyrfti að stækka álverið til að tryggja sam- keppnishæfni þess. „Þau álver sem eru efst á kúrfunni yfir háan fram- leiðslukostnað detta smám saman upp fyrir í bókstaflegri merkingu, þeim er lokað. Það má segja að með því að stækka ekki verksmiðjuna, á meðan aðrar verksmiðjur stækka eða stærri verksmiðjur eru byggð- ar, þá ýtumst við ofar á kúrfuna. Án þess að halda áfram að þróa fyrirtækið þá verður það smám saman ósamkeppnisfært. Það er þróunin sem við óttumst,“ segir Rannveig. Jafnframt sagði hún, og varpaði mynd af dreng í FH-búningi á skjá- inn, að Alcan vildi sýna mikla sam- félagslega ábyrgð. „Ef fyrirtækið stækkar og blómstrar munu styrk- ir frá fyrirtækinu aukast eftir því sem árin líða,“ sagði Rannveig. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í sínum fyrir- lestri að með stækkun álversins myndu skapast 303 ný störf hjá Alcan og að launagreiðslur ykust um tæpa 2 milljarða. Hannes sagði að tekjur Hafnarfjarðarbæjar myndu hækka úr tæpum 500 millj- ónum í rúmar 1.400 ef af stækkun yrði. Jafnframt sagði Hannes að eftir að Alcan hefði fært sig yfir í íslenskt skattaumhverfi og greiddi 18 prósenta tekjuskatt myndu árlegar tekjur ríkisins vegna starf- semi Alcan verða 4 til 5 milljarðar ef álverið yrði stækkað. Undir lok stefnumótsins skor- aði fundarstjórinn Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, á Hafnfirðinga að greiða atkvæði með stækkun álversins í Straumsvík, því með því myndu skapast störf sem færðu verkamönnum um 300 þúsund krónur á mánuði og iðnaðarmönn- um um 450 þúsund krónur á mán- uði. Vilhjálmur sagði að þetta væru störf sem yrðu ekki til nema með „vinnu, vinnu, vinnu“ og yrðu ekki til á kaffihúsum. Rannveig segir framtíð ál- vers og starfsmanna í húfi Rannveig Rist segir að stækka þurfi álverið, þannig að framleiðslugeta þess verði 460 þúsund tonn í stað 180 þúsund, til að tryggja samkeppnishæfni þess. Hannes G. Sigurðsson segir stækkað álver auka tekjur Hafnar- fjarðarbæjar um tæpan milljarð. Tekjur ríkisins af stækkuðu álveri verða á milli fjórir og fimm milljarðar. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hefur verið skipaður formaður Umferðarráðs af Sturlu Böðvars- syni samgönguráðherra. Kjartan hefur áður setið í samgöngunefnd Reykjavíkur, umhverfisráði og skipulagsráði. Einnig var hann lengi formaður nefndar um gerð umferðar- öryggisáætlunar í Reykjvík. Óli H. Þórðarson, sem hefur verið formaður Umferðarráðs um árabil, lét af störfum síðastliðið haust. Kjartan stýrir Umferðarráði Martti Ahtisaari, sérleg- ur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Kosovo-málinu, kynnti í gær miðl- unartillögu sína um framtíðarstöðu Kosovo fyrir fulltrúum Serbíu- stjórnar í Belgrad og hinnar kjörnu bráðabirgðahéraðsstjórnar í Pristina. Í áætluninni leggur Ahtisaari til að Kosovo verði sjálfráða eining undir alþjóðlegu eftirliti, sem geti sett sér sína eigin stjórnarskrá og sótt um sjálfstæða aðild að alþjóða- stofnunum. Þess er annars gætt að nefna hvergi orðið „sjálfstæði“. Það dugar þó Serbíustjórn ekki. Boris Tadic Serbíuforseti hafnaði áætluninni snarlega. „Ég tjáði herra Ahtisaari að Serbía og ég, sem forseti landsins, mundum aldrei fallast á sjálfstæði Kosovo,“ lýsti Tadic yfir að loknum fundi þeirra Ahtisaaris. Talsmenn Kosovo-Albana voru heldur ekki sáttir, en þeir krefjast fulls sjálfstæðis. „Þetta er miðlunartillaga,“ sagði Ahtisaari. Serbar rekja sögulegan uppruna þjóðarinnar til Kosovo, en níu af hverjum tíu núverandi íbúum hér- aðsins eru Kosovo-Albanar. Serbar hafna tillögunum Tæplega fimmtugur síbrotamaður hefur verið dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir líkams- árás sem hann framdi á skemmti- staðnum Mónakó á Laugavegi í september árið 2005. Maðurinn hrinti öðrum manni af stól og sló og sparkaði í höfuð hans og líkama. Fórnarlambið marðist í andliti, á höfði og brjóstkassa í árásinni. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn og eru 4 mánuðir hans skilorðsbundnir. Maðurinn hefur 17 sinnum hlotið refsidóma fyrir margvísleg brot. Honum var einnig gert að greiða sakarkostnað í málinu, rúmlega 200 þúsund krónur. Sló og sparkaði í höfuð manns Ragnar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Þjónustumið- stöðvar Breið- holts, hefur verið ráðinn sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkur- borgar. Ragnar lauk meistaraprófi í stjórnun frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, hann er einnig menntað- ur grunn- og framhaldsskóla- kennari frá Kennaraháskóla Íslands og með BS-próf í landa- fræði og jarðfræði. Nýr sviðsstjóri Menntasviðs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.