Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 03.02.2007, Síða 10
 Yfirfærsla á flug- tengdum verkefnum varnarliðs- ins yfir til flugmálastjórnar Kefla- víkurflugvallar lauk síðastliðið haust. Við það urðu töluverðar breytingar á umsvifum og rekstri stjórnarinnar, enda gífurleg við- bót við þá starfsemi sem áður heyrði undir embættið. Meðal þeirra deilda sem fluttust yfir voru slökkvilið og þjónustudeild flugvallarins. Alls fjölgaði starfs- mönnum flugmálastjórnarinnar um 135 við þessar breytingar. Björn Ingi Knútsson flugvallar- stjóri segir að yfirfærslan hafi gengið vel og að starfsemin hafi slípast til á skömmum tíma. „Þetta var og er ansi mikið verkefni en samstilltur hópur starfsmanna, hvort sem þeir voru starfsmenn flugmálastjórnar eða þeir starfs- menn sem voru að flytjast yfir frá varnarliðinu, gerði það að verkum að þetta hefur gengið vonum fram- ar.“ Hann segir auðveldara að reka flugvöllinn nú en áður þegar hann heyrir undir færri aðila. „Nú er þetta á einni hendi á forræði flug- vallarstjóra. En þetta hefur auð- vitað heilmikla kostnaðaraukn- ingu í för með sér. Aukin framlög beint úr ríkissjóði til okkar á árinu 2007 nema tæpum einum og hálf- um milljarði og tekjur okkar eru áætlaðar í kringum 1.100 milljón- ir. Við erum líka að fara úr því að vera með um 70 starfsmenn hér áður í 205 starfsmenn. Það er því tvöföldun í veltu og þreföldun í starfsmannahaldi.“ Allur völlurinn á einni hendi „Ég sé ekki að nærvera prests hér innan skólans hafi trufl- að einn eða neinn,“ segir Svein- björn Markús Njálsson, skóla- stjóri Álftanesskóla. „Enda á Vinaleiðin vel saman við þá mann- ræktarstefnu sem við erum með í skólanum.“ Sveinbjörn fer ekki leynt með þá skoðun sína að í ljósi þess að meirihlutinn aðhyllist Þjóðkirkj- una og í ljósi hefðarinnar eigi Þjóðkirkjan að fá pláss í skóla- starfi umfram önnur trúfélög. Skólinn eigi ekki endilega að vera spegilmynd alls þjóðfélagsins heldur fyrirmynd fyrir börnin. „Og það er mjög gott að umræða sé um sálgæsluna,“ segir Svein- björn. „Hún er framlenging á þeirri stoðþjónustu sem kirkjan hefur boðið sínum sóknarbörnum og er okkur mjög mikilvæg. Hún er að hlusta á og hlúa að tilfinning- um, en ekki trúboð.“ Að mati Sveinbjörns er það misskilningur að sálgæsla eigi að vera í höndum sálfræðinga því hún snúist um að rækta gildi og læra af mistökum. Að auki hafi fólk mismunandi hugmyndir um hlutverk sálfræð- inga í skólanum. Góð reynsla er af ýmiss konar starfsemi félagasamtaka innan skólans, segir Sveinbjörn. Ung- mennafélagið hafi lengi verið virkur samstarfsaðili. Einnig hafi Gídeonfélagið gefið Nýja testa- mentið um áraraðir. Aðspurður vill Sveinbjörn þó ekki að Kóraninum verði dreift í skólanum. „Það byggist á því að ég þekki ekki og hef ekki kynnt mér með sama hætti Múhameðstrú. Það þýðir ekki að ég treysti þeim ekki, en hér erum við auðvitað með áttatíu prósent nemenda sem tilheyra Þjóðkirkjunni.“ Skóli sé fyrirmynd frekar en spegilmynd Ekið var á hrein- dýr við Þorgeirsstaðaá í Lóni í nágrenni Hafnar í Hornafirði í fyrrinótt. Lögreglan segir að ekki hafi orðið slys á fólki en nauðsynlegt hafi verið að aflífa hreindýrið, sem var mikið sært eftir áreksturinn. Bíllinn skemmdist þó lítillega. Lögreglan ítrekar við öku- menn að aka varlega á þessum slóðum og hefur farið í gang með umferðarátak. Nauðsynlegt að aflífa dýrið Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að smygla 730 grömmum af hassi innvortis hingað til lands frá Spáni. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn. Maðurinn var handtekinn þegar hann kom hingað til lands í águst 2006 og lagði lögreglan hald á hassið næstu daga á lögreglu- stöðinni við Hverfisgötu í Reykja- vík. Ákærði játaði brot sitt og sýndi iðrun og var litið til þess við ákvörðun dómsins. Honum var gert að greiða 240 þúsund króna sakarkostnað. Smyglaði 730 hassgrömmum www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18.00 12.00 - 18.00 Morgunmatur IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café með graslaukssósu, kúskús og grænmeti frá kl. 9:00 - 11:00 mánudaga - laugardaga Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun Grænmetisbuff KOMPLEMENT geymslukassar 30x35 cm 3 stk. í pk. 1.990,- KOMPLEMENT fataslá 100 cm 695,- KOMPLEMENT innskotshilla 100 cm 2.290,- PAX fataskápur 100x58x236 cm birkiáferð 9.450,- PAX fataskápur 50x58x236 cm birkiáferð 8.450,- KOMPLEMENTvírkarfa 50x58x16cm 895,- KOMPLEMENT skartgripakassi með lás 4.990,- KOMPLEMENTskúffa 100x58x16 cm 3.990,- KOMPLEMENT skórekki 100 cm 4.990,- KOMPLEMENT buxnaslá 100 cm 2.790,- KOMPLEMENT skúffa með hólfum 3.790,- PAX & KOMPLEMENT hirslur Í nýrri verslun IKEA í Garðabæ getur að líta glæsilegt úrval af PAX fataskápum og geymslulausnum. Hér sést aðeins brot af þeim. PAX fataskáparnir fást í tveimur dýptum, 50 og 35 cm, og þremur hæðum, 77, 201 og 236 cm. Til eru 17 mismunandi gerðir af PAX hurðum/rennihurðum og í 8 stærðum. Þú getur einnig raðað saman mismunandi hurðum til að skapa meiri fjölbreytni og persónuleika. Hér er aðeins brot af þeim útfærslum sem hægt er að fá. Komdu við hjá okkur og skoðaðu úrvalið, einnig er skemmtilegt PAX skipulagsforrit á netinu, þar sem þú getur sett upp þinn eigin draumaskáp. http://ikea.is/start.htm 290,-195,- skpiulagiðSkipuleggjum © In te r I KE A Sy ste m s B .V .2 00 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.