Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 13

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 13
Greiningardeild Glitnis hefur hækkað verðmat sitt á Landsbank- anum úr 28 krónum í 33 krónur á hlut. Hækkunin kemur í kjölfar birtingar Landsbankans á uppgjöri fjórða ársfjórðungs sem var langt yfir væntingum greiningardeild- arinnar. Telur hún nú að vöxtur bankans verði hraðari en áður var áætlað. Greining Glitnis mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í félaginu, horft til langs tíma. Verð- matið er 9,6 prósentum hærra en verð hlutabréfanna á markaði á þeim tíma sem það var gefið út, sem var 30,1. Telur því greiningar- deildin gott rými fyrir hækkun hlutabréfa bankans. Er því spáð að eftir sex mánuði muni gengi bréfa í félaginu standa í 33,0. Hækka verðmat á Landsbankanum Olíurísinn Shell skilaði 25,36 millj- arða bandaríkjadala hagnaði á síð- asta ári. Þetta jafngildir 1.738 milljörðum íslenskra króna sem er methagnaður í sögu olíufélagsins. Afkoman svarar til þess að Shell hafi hagnast um 201 milljón króna á hverri klukkustund í fyrra. Helstu ástæðurnar fyrir met- afkomunni er vöxtur olíugeirans í Bandaríkjunum og aukin gasfram- leiðsla í Nígeríu. Greinendur vara við því að vegna lágs olíuverðs á þessu ári geti aðstæður á olíumark- aði orðið erfiðari og því geti harðn- að eitthvað í ári hjá olíurisanum Shell. Shell skilar góðu ári Hilton-hótelkeðjan, sem er ein sú stærsta í heimi, skilaði 207 milljón dala hagnaði á síðustu þremur mánuðum liðins árs. Það jafngild- ir tæpum 14,2 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar nam hagnaður keðjunnar 105 milljónum dala, eða tæpum 7,2 milljörðum kóna, á sama tíma í fyrra. Afkoman er í takt við spár markaðsaðila í Bandaríkjunum. Tekjur hótelkeðjunnar námu 2,23 milljörðum dala á tímabilinu en það svarar til 152,9 milljarða íslenskra króna sem er rúm tvö- földun á milli ára. Hilton-keðjan mokgræðir Fræðslufundaröð SPRON Fræðslufundir SPRON um fjármál einstaklinga og heimila Á næstu vikum býður SPRON viðskiptavinum sínum til fræðslufunda um lífeyrismál, fjármál heimilanna, sparnað og fjárfestingar og skattaskil á Hótel Nordica. Nánari upplýsingar og skráning á spron.is eða í þjónustuveri í síma 550 1400. Lífeyrismál 6. febrúar kl. 17–19 Fjármál heimilanna 13. febrúar kl. 17–19 Sparnaður og fjárfestingar 20. febrúar kl. 17–19 Skattaskil 13. mars kl. 17–19A RG U S 07 -0 02 7 Japanski tæknirisinn Sony skilaði tæplega 160 milljarða jena hagnaði á síðasta fjórðungi liðins árs. Það svarar til 90,3 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar nam hagn- aður Sony fyrir ári 95,4 milljarða króna. Helsta ástæðan fyrir samdrætt- inum er taprekstur á leikjatölvu- deild fyrirtæksins sem er til- kominn vegna seinkunar á markaðssetningu á PlayStation 3 (PS3) leikjatölvunni um allan heim og lélegri sölu á PSP-handleikja- tölvunni en búist var við. Forsvars- menn Sony eru engu að síður bjart- sýnir í afkomuspá fyrir yfirstandandi rekstrarfjórðung og telja að hagnaðurinn muni nema 60 milljörðum jena, eða 33,9 milljörð- um króna, á tímabilinu. Samdráttur hjá Sony FL Group skilaði 44,6 milljarða króna hagnaði á síðasta ári saman- borið við 17,5 milljarða hagnað ári fyrr. Aukningin nemur 158 pró- sentum á milli ára. Þar af nam hagnaður FL Group á fjórða árs- fjórðungi 33,6 milljörðum króna en það er 215 prósenta aukning á milli ára og nokkuð yfir meðalspá greiningardeilda bankanna. Eigið fé FL Group nam 142,6 milljörðum króna við síðustu ára- mót en það er 92 prósenta aukning og var arðsemi eigin fjár 42,9 pró- sent. FL Group varð hreint fjárfest- ingafélag á árinu eftir að það seldi flugfélögin Icelandair Group með 23 milljarða króna hagnaði og danska flugfélagið Sterling Air- lines til Northern Travel Holding ehf. á síðasta ársfjórðungi. FL Group eignaðist 34,8 prósenta hlut í félaginu í kjölfarið. Þá seldi félag- ið jafnframt 16,9 prósenta hlut sinn í breska lággjaldaflugfélag- inu EasyJet og bæði keypti og seldi 22,6 prósenta hlut sinn í Straumi- Burðarási. Á móti jók FL Group við sig í Glitni, finnska flugfélag- inu Finnair og keypti tæpan 6 pró- senta hlut í bandaríska flugrekstr- arfélaginu AMR Corporation undir lok árs. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir í uppgjörinu að árang- urinn sé einstaklega góður. „Við horfum til ársins 2007 með mikilli bjartsýni og markmið okkar er að ná enn betri árangri.“ Metár FL Group í takti við væntingar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.