Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 48

Fréttablaðið - 03.02.2007, Page 48
 { Kópavogur } 8 Í Neðstutröð er starfrækt rakarastofa sem er meðal elstu fyrirtækja í Kópa- vogi. Stofan er merkileg fyrir margra hluta sakir en óhætt er að segja að í henni sé skemmtilegt andrúmsloft. „Afi minn, hann Torfi, byrjaði með þetta fyrirtæki í skúr hérna og þegar faðir minn fór að læra keypti hann helminginn af húsinu og opnaði stofu þar. Stofan hefur því verið hérna í Neðstutröð alla tíð,“ segir Andri Týr Kristleifs- son, sem starfar á stofunni ásamt föður sínum, Kristleifi Gauta Torfasyni. Rakarastofan var að hefja sitt 46. starfsár og hefur því lifað tímana tvenna. „Þetta er ein af fáum stofum á landinu sem lifði af kreppuna og bítlatímabilið og fá fyrirtæki í bænum sem eru eldri,“ segir Andri en hann segir að viðskiptin hafi alltaf verið góð á stofunni. Rekstur hennar byggist á dyggum fastakúnnum. „Það eru nokkrir fastakúnnar sem koma hingað mjög reglulega og þeir bera allir einhverja titla nema einn þeirra. Við gerðum hann því að stjórnar- formanni hjá okkur. Sá maður horfir mikið á fundi Alþingis í sjónvarpinu sér til skemmtunar og þegar þingmennirnir láta eitthvað út úr sér sem honum líkar ekki þá kemur hann yfir og skammar okkur,“ segir Andri og greinilega mikið líf sem einkennir rakarastofuna. „Það skapast oft ansi fjörugar umræður hérna inni og er rætt um allt milli himins og jarðar. Það er þó mest um það að pólitíkin sé til umræðu. Það hefur verið skipt um ríkisstjórnir mörgum sinnum á dag á þessari stofu,“ segir Andri en hann telur að þær deilur sem skapist um hana á stofunni séu þó allar á vinsamlegum nótum. „Svo er gaman að segja frá því að við erum í samstarfi við elstu rak- arastofu í heimi sem er starfrækt í London. Við erum í góðu samstarfi og flytjum inn vörur frá þeim. Ég var sjálfur að vinna hjá þeim í London síðasta sumar og það var mjög sérstök lífsreynsla. Þetta er aðal snobbstofa heims og þarna eru kúnnar á borð við Filippus prins. Svo hitti ég viðkunnanlegan mann sem kom þangað undir nafninu John Woodward en reyndist síðan vera John Major, fyrrum forsætisráðherra Bretlands.“ Það er ekki mikið um að svona lítil fyrirtæki standi í því að flytja sérstaklega inn vörur en þó er það gert á þessari rakarastofu. Hægt er að fá góðar vörur og persónulega þjónustu í þessu skemmtilega fjölskyldufyr- irtæki. - egm Í samstarfi við elstu rakarastofu heims Rakarastofan við Neðstutröð í Kópavogi var að hefja sitt 46. starfsár. Stofan er í nánu samstarfi við elstu rakarastofu heims, sem starfrækt er í London, og flytur inn vörur þaðan. K V I T T U N F Y L G I R Á V I N N I N G U R ! B E N S Í N D Í S E L Ódýrt eldsneyti + ávinningur! w w w . e g o . i s Hvar e r þitt EGO?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.